Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um að veita Orkubúi Vestfjarða ohf., kt. 660877-0299, virkjunarleyfi fyrir 9,9 MW Kvíslatunguvirkjun í Selárdal í Strandabyggð.
Heimild til breytinga á vatnshloti, sem skv. 3. mgr. 18. gr. laga nr. 36/2011 um stjórn vatnamála skal vera hluti af ákvörðun um veitingu virkjunarleyfisins, nær til vatnshlotanna Svartagilsvatn (101-998-L), Efri-Kotvötn (101-997-L) og Þjóðbrókargil (101-433-R).
Ákvörðunin er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu þessari, sbr. 37. gr. raforkulaga nr. 65/2003 og 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.





