Orkubú Vestfjarða, kt. 660677-0299, hefur sótt um virkjunarleyfi ásamt heimild til breytinga á vatnshlotum vegna Kvíslatunguvirkjunar, í samræmi við 3. mgr. 18. gr. laga nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Umsóknin var auglýst á vefsíðu Umhverfis- og orkustofnunar þann 12. desember 2025.
Umhverfis- og orkustofnun leggur fram til kynningar áform um að veita heimild samkvæmt 18. gr. laga um stjórn vatnamála til breytingar á vatnshlotunum Svartagilsvatn (nr. 101-998-L), Efri-Kotvötn (nr. 101-997-L) og Þjóðbrókargil (nr. 101-433-R), vegna framkvæmda við 9,9 MW Kvíslatunguvirkjun. Heimildin yrði hluti af ákvörðun um veitingu virkjunarleyfis komi til þess.
Einnig má nálgast viðbótargögn sem borist hafa á meðan rannsókn málsins hefur staðið hér að neðan.
Athugasemdafrestur er til og með 14. júní 2026. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast stofnuninni á netfangið uos@uos.is eða í gegnum tengil á vef hér fyrir neðan, merktar Kvíslatunguvirkjun og vísa skal í málsnúmerið UOS-2660.





