Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um að veita Landsvirkjun, kt. 420269-1299, virkjunarleyfi fyrir Þeistareykjavirkjun í Þingeyjarsveit. Með leyfinu er heimiluð stækkun virkjunar sem þegar er í rekstri þannig að framleiðslugeta hennar aukist í 180 MWe.
Ákvörðunin er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu þessari, sbr. 37. gr. raforkulaga nr. 65/2003 og 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.





