Kerfisáætlun

Raforkueftirlit Umhverfis- og orkustofnunar fer yfir og samþykkir kerfisáætlun flutningsfyrirtækisins, Landsnets, og hefur eftirlit með framkvæmd hennar samkvæmt 9. gr. b raforkulaga nr. 65/2003. Þetta hlutverk kom til með breytingu á raforkulögum árið 2015.

Landsnet skal að minnsta kosti annað hvert ár leggja kerfisáætlun fyrir Raforkueftirlitið til samþykktar, samanber 9. gr. a raforkulaga. Í kerfisáætlun felast tvær áætlanir:

  • Langtímaáætlun sem sýnir þá þætti í meginflutningskerfinu sem fyrirhugað er að byggja upp eða uppfæra á næstu tíu árum.
  • Framkvæmdaáætlun sem sýnir fjárfestingar í flutningskerfinu sem þegar hafa verið ákveðnar og þær sem ráðast þarf í á næstu þremur árum.

Raforkueftirlitið metur kerfisáætlunina með hliðsjón af markmiðum raforkulaga um öryggi, skilvirkni, áreiðanleika afhendingar, hagkvæmni, gæði raforku og stefnu stjórnvalda um lagningu raflína og uppbyggingu flutningskerfis raforku. Við yfirferðina er haft samráð við núverandi og væntanlega viðskiptavini Landsnets. Ákvörðun Raforkueftirlitsins um samþykkt eða synjun kerfisáætlunar er kæranleg til úrskurðarnefndar raforkumála.

Hér eru birtar ákvarðanir Raforkueftirlitsins um kerfisáætlanir Landsnets ásamt áætlununum sjálfum, umhverfisskýrslum, umsögnum hagsmunaaðila og viðbrögðum Landsnets við þeim. Í töflunni getur þú leitað í skjölunum og síað eftir áætlun, aðila og flokki. Nánari upplýsingar um gildandi kerfisáætlun eru á vef Landsnets.

Skjalalisti töflunnar

Kerfisáætlun 2025–2034

Kerfisáætlun 2023–2032

Kerfisáætlun 2021–2030

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800