Kvartanir

Raforkueftirlit Umhverfis- og orkustofnunar fer með framkvæmd og eftirlit samkvæmt III.–VI. kafla raforkulaga nr. 65/2003, samanber 1. mgr. 3. gr. a laganna. Um eftirlit og úrræði Raforkueftirlitsins er fjallað í VII. kafla laganna en um leyfisveitingar í VIII. kafla.

Í 3. gr. b raforkulaga er fjallað um starfshætti Raforkueftirlitsins. Þar kemur fram að Raforkueftirlitið er sjálfstætt í störfum sínum þegar það sinnir eftirliti samkvæmt raforkulögum. Þá skal Raforkueftirlitið hafa samráð við Samkeppniseftirlitið um eftirlit með starfsemi og gjaldskrá flutningsfyrirtækisins og dreifiveitna eftir því sem við á, samanber 2. mgr. 3. gr. b raforkulaga.

Nánar er fjallað um inntak raforkueftirlits í 2. mgr. 24. gr. raforkulaga. Þar segir að hafa skuli eftirlit með því að fyrirtæki sem starfa samkvæmt raforkulögum fullnægi þeim skilyrðum sem um starfsemina gilda samkvæmt lögunum, reglugerðum settum samkvæmt þeim og öðrum heimildum.

Hér eru birtar ákvarðanir Raforkueftirlitsins vegna kvartana hagsmunaaðila á raforkumarkaði. Í töflunni getur þú leitað í ákvörðununum og síað eftir ári, fyrirtækinu sem kvörtunin beinist að og efnisflokki.

Viltu senda Raforkueftirlitinu kvörtun vegna aðila á raforkumarkaði? Notaðu þá formið hér fyrir neðan.

Skjalalisti töflunnar

2026

2025

2024

2023

2022

2021

2020

2019

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800