Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Garðurinn

Sjálfbær garður með fjölbreyttu lífríki

Sjálfbær garður

Væri ekki frábært ef hægt væri að koma í veg fyrir efnanotkun í garðinum og það sem félli til af úrgangi væri endurnýtt á staðnum?

Það er ýmislegt hægt að gera til að garðurinn verði sem sjálfbærastur og með fjölbreytt lífríki!

Með því að búa til moltu úr grasi, greinum, blómum og öðru sem fellur til erum við komin með góða og næringarríka mold til að bera á beðin.

Stór hluti heimilisúrgangs okkar eru matarleifar en með því að jarðgera hann heima, getum við dregið verulega úr magni þess sorps sem við sendum frá okkur. Við jarðgerð er lífrænum úrgangi umbreytt í moltu sem þykir einn besti jarðvegsbætir sem völ er á, hún gerir jarðveginn frjósamari, léttari og um leið heilbrigðari.

Góð ráð til að minnka efnanotkun

Allir ættu að kappkosta að halda efnanotkun í garðinum í lágmarki. Athugaðu að öll notkun eiturefna dregur úr líffræðilegri fjölbreytni í garðinum og fækkar nytjadýrum eins og köngulóm, sníkjuvespum og jarðvegsdýrum. Hér eru nokkur góð ráð til garðeigenda:

  1. Hafðu fjölbreyttan gróður í garðinum til að auka líkurnar á því að þar byggist upp fjölbreytt dýralíf. Ýmsir fuglar og gagnleg skordýr geta aðstoðað í baráttunni við skaðvalda á plöntum, því fjölbreyttara sem lífríkið er, þeim mun betra!
  2. Týndu skaðvaldana af plöntunum með höndunum í þeim tilfellum sem það er hægt, til dæmis lirfur sem herja á berjarunna og snigla undir salatinu.
  3. Notaðu aðferðir sem ekki byggjast á notkun efna til að uppræta illgresi til dæmis með því að reita það í höndunum, nota verkfæri eða sprauta á það með heitu vatni.
  4. Komdu í veg fyrir að illgresið nái sér á strik með því að rækta þekjandi plöntur og nota yfirlagsefni til þekja jarðveginn.
  5. Sprautaðu vatni á plönturnar til að vinna á trjámaðki þegar hann herjar á plönturnar snemma sumars. Maðkurinn fellur á jörðina og verður fuglum að bráð.
  6. Notaðu gildrur til að veiða snigla í.
  7. Beittu skiptiræktun í matjurtagarðinum með því að rækta mismunandi tegundir á hverjum stað á hverju ári, til dæmis kartöflur í eitt tímabil, salat það næsta, svo tegundir sem vaxa beint upp af fræi og þannig koll af kolli. Plöntur nýta næringarefni í jarðveginum á mismunandi vegu og því getur skiptiræktun aukið frjósemi jarðvegsins.
  8. Notaðu nytjadýr í staðinn fyrir skordýraeyða í gróðurhúsum, þú getur keypt nytjadýr í sumum garðyrkjuverslunum.
  9. Til varnar gegn sveppasjúkdómum er mikilvægt að velja réttan efnavið því sumar tegundir plantna hafa myndað ákveðið þol gegn sjúkdómum. Eins skiptir hreinlæti mjög miklu máli ef notuð eru áhöld í garðverkin.
  10. Sumir sveppasjúkdómar þurfa að nýta sér fleiri en eina plöntutegund sem hýsil til þess að vaxa og í þeim tilfellum er ekki ráðlegt að hafa þær plöntutegundir saman í garðinum. Þetta á til dæmis við um lerki og ösp þar sem ryðsveppurinn þarf á báðum þessum tegundum að halda fyrir lífsferil sinn.

Þarf að „eitra“ garðinn?

Margir garðeigendur spyrja sig: Þarf ég að láta „eitra“ hjá mér?

Hér eru nokkur atriði sem garðeigandinn getur haft til hliðsjónar til þess að stuðla að því að sem minnst röskun verði á lífríki garðsins og jafnframt að viðkvæmur gróður sé varinn fyrir skemmdum af völdum skaðvaldanna.

Baráttan í garðinum

Í byrjun sumars á hverju ári fer að bera á hinum ýmsu skordýrum í görðum landsmanna og í flestum tilfellum eru þau gagnleg, en geta þó stundum verið skaðleg og valdið skemmdum á gróðri. Þá geta ýmsir sveppasjúkdómar og í sumum tilfellum bakteríur herjað á garðagróður og einnig valdið skemmdum á honum og þar eru ryðsveppir á víði og ösp meðal annars áberandi.

Ákveðnar plöntutegundir eru einnig í vissum tilfellum taldar óæskilegar, ekki endilega vegna þess að þær valdi beinum skemmdum á öðrum garðagróðri, heldur vaxa þær í samkeppni við hann og keppa við hann um pláss, næringu og birtu. Þetta köllum við illgresi og finnst það einfaldlega ekki eiga heima á ákveðnum stöðum og má þar nefna arfa í beðum, fífla eða annan gróður í hellulögnum og gangstéttum og jafnvel gras er talið illgresi við þessar að stæður.

Á undanförnum árum hafa ný meindýr verið að skjóta upp kollinum hér á landi og verið að valda skemmdum á gróðri í görðum. Á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands og Skógræktarinnar má finna ítarefni um hin ýmsu skordýr og skaðvalda.

Áhrif úðunar á lífríki garðsins

Mikilvægt er að átta sig á því að skordýraeyðar drepa öll skordýr sem þeir lenda á, hvort sem þau eru skaðleg eða gagnleg. Hin gagnlegu skordýr lifa oft á tíðum á meindýrunum sem eru að hrjá plönturnar okkar og leggja okkur því lið í baráttunni gegn þeim, auk þess sem þau geta sjálf verið fæða fyrir önnur dýr. Mörg skordýr eru mikilvæg fæða fyrir garðfugla og með því að úða gegn þeim erum við að draga úr fæðuframboði fyrir fuglana sem við viljum gjarnan hafa í kringum okkur.

Svipaða sögu má segja af illgresiseyðum, en margir þeirra drepa einnig annan gróður heldur en þann sem ætlað er að útrýma. Þannig getur úðun haft neikvæð áhrif á þann gróður sem við viljum hafa í garðinum. Þó eru til sérvirkir illgresiseyðar og þarf því að vanda vel val á illgresiseyðum ef gripið er til notkunar á þeim. Lífríki garðsins er þannig samofið og með úðun erum við að grípa óþyrmilega inn í gang náttúrunnar.

Ekki þarf alltaf að úða garðinn

Margar trjá- og runnategundir sem verða fyrir skemmdum af völdum meindýra ná sér aftur á strik þótt ekkert sé úðað vegna þess að ný laufblöð vaxa fram og fela þau sem hafa skemmst. Þetta á til dæmis við um birki. Aðrar tegundir geta aftur á móti orðið fyrir miklum skemmdum af völdum meindýra sem þær ráða ekki við að lagfæra og því reynist í vissum tilfellum nauðsynlegt að beita úðun til að verja þær. Mikilvægt er þá að úða einungis þær tegundir sem bera meindýr eða sjúkdóma til þess að raska sem minnst vistkerfi garðsins.

Í sumum tilfellum getur verið gagnslaust að úða þó svo að meindýrin séu sýnileg vegna þess að þau geta vafið sig inn í laufblöð og sum þeirra lifa inni í laufblöðum og hola þau að innan eins og til dæmis birkikemba og birkiþéla sem herja á birki. Ef um er að ræða sveppasjúkdóma getur oft á tíðum reynst erfitt að beita úðun með sveppaeyðum vegna þess að sveppirnir lifa oft inn í plöntuhlutum eða laufblöðum og verða ekki sýnilegir fyrr en seint á lífsferli sínum til dæmis eins og ryðsveppir í ösp og víði og mjöldögg á ýmsum tegundum af toppum.

Á ég að láta úða garðinn?

Hvað þarf að hafa í huga þegar garðaúðarinn birtist og býður þjónustu sína?

  • Kanna hvort viðkomandi sé með leyfi til garðaúðunar og geti framvísað gildu notendaleyfi fyrir plöntuverndarvörum frá Umhverfis- og orkustofnun.
  • Einungis fagmenn, sem hafa starfsleyfi til úðunar garða, mega taka að sér í atvinnuskyni að úða garða. Þessir aðila hafa þekkingu og reynslu á sviði úðunar garða og aðgang að réttu efnunum til þess að ná árangri. Þeir skulu framkvæma úðun samkvæmt settum reglum sem eiga við um úðun garða.
  • Meta þörf fyrir úðun áður en hafist er handa. Garðeigandinn ætti sjálfur að fara út í garðinn og taka þátt í matinu þannig að hann upplifi ástandið í eigin persónu og að tekin sé meðvituð ákvörðun.
  • Ef skoðun leiðir í ljós skemmdir á gróðri en lítið sem ekkert sést af skaðvöldum, þá er orðið of seint að úða og í raun og veru hreinlega skaðlegt vegna þess að með því er verið að drepa saklaus nytjadýr, auk þess sem laufblöðin á plöntunum láta oft á sjá eftir úðun.
  • Ef hvorki sjást skemmdir né skaðvaldar á gróðri er sömuleiðis gangslaust að úða, þá hefur ef til vill maðkurinn enn ekki klakist út og virka efnið nær því ekki til hans. Rétti tíminn til þess að bregðast við er því mjög skammur og mikilvægt að fylgjast vel með og grípa til aðgerða á hárréttum tíma.

Köngulær eru nytjadýr

Alltaf er nokkuð um það á sumrin að köngulær geri sig heimakomnar utan á húsum landsmanna, sumum til nokkurs ama. Einkum mun það vera krosskönguló sem á þetta til og þá er stundum gripið til þess ráðs að úða allt húsið að utan með skordýraeyði til þess að ráða niðurlögum hennar.

Köngulær stinga ekki né bíta

Hér er rétt að staldra við og íhuga aðeins hvaða skaða köngulærnar valda okkur í raun. Þær láta okkur mannfólkið til dæmis alveg í friði, eru ófleygar og stinga hvorki né bíta. Hins vegar veiða köngulær í vef sinn ýmis fleyg skordýr sem okkur kunna að þykja hvimleið, þær geta jafnvel veitt geitunga og komið þeim fyrir kattarnef.

Skordýraeyðir mikið inngrip

Í umhverfi okkar er urmull skordýra og annarra smádýra og á milli þeirra er flókið samspil. Sum þeirra eru fæða fyrir stærri dýr, önnur eru rándýr eða sníkjudýr sem lifa á hinum smádýrunum og enn önnur geta valdið skaða á gróðri. Við úðun með skordýraeyði drepast öll þessi smádýr hvort sem þau eru til ama eður ei og því erum við með þessum aðgerðum að grípa óþyrmilega inn í gang náttúrunnar og jafnvel að skapa meiri vanda heldur en við leysum.

Með sópinn að vopni

Best af öllu er að forðast algerlega eiturefnanotkun og beita aðeins þeim aðferðum sem ekki hafa neikvæð áhrif á umhverfið. Það má til dæmis losna við köngulóavefi með því að sópa þeim burt eða sprauta á þá vatni. Aldrei ætti að úða að utan heilu húsin algerlega óháð því hvar vandinn er til staðar heldur einbeita sér að þeim stöðum þar sem dýrin eru til ama. Á þann hátt höldum við neikvæðum áhrifum á lífríkið í lágmarki og náum um leið að leysa þann vanda sem við er að etja.

Látum fagmenn um verkið

Einungis fagmenn, sem hafa starfsleyfi til eyðingar meindýra og eru handhafar notendaleyfis fyrir útrýmingarefnum, mega taka að sér í atvinnuskyni að eyða köngulóm og skordýrum í híbýlum manna og á öðrum þeim stöðum þar sem þessi dýr eru til ama. Þessir aðila hafa þekkingu og reynslu á sviði meindýravarna og aðgang að réttu efnunum til þess að ná árangri.

Plöntuverndarvörur

Plöntuverndarvörur eru notaðar í ræktun skrautplantna og matvæla, svo sem ávaxta, grænmetis og kornvöru, til þess að koma í veg fyrir eða draga úr skaða af völdum sveppa, illgresis, skordýra og annarra meindýra.

Stýriefni teljast líka til plöntuverndarvara en þau eru meðal annars notuð til þess að örva rótarmyndun græðlinga og stýra vaxtarlagi plantna.

Aðeins er heimilt að setja plöntuverndarvöru á markað hérlendis ef hún hefur fengið leyfi hjá Umhverfis- og orkustofnun og stofnunin heldur úti skrá yfir vörur sem leyfðar eru til notkunar hverju sinni. Ítarlegar rannsóknir eru gerðar á því hvort efni í plöntuverndarvörum geta valdið okkur sjálfum eða umhverfinu skaða og áhætta af notkun þeirra er metin áður en leyft er að setja þær á markað.

Plöntuverndarvörum er skipað í tvo flokka eftir því hversu hættulegar þær eru í meðhöndlun og notkun, það er vörur til almennrar notkunar og notendaleyfisskyldar vörur.

  • Ef lítil hætta stafar af vörunum er þær leyfðar til notkunar fyrir almenning.
  • Ef vörur eru taldar vera vera hættulegar í meðhöndlun eru þær notendaleyfisskyldar.

Sérstakt notendaleyfi, sem gefið er út af Umhverfis- og orkustofnun, þarf til þess kaupa og nota plöntuverndarvörur sem eru notendaleyfisskyldar og ætlaðar til notkunar í atvinnuskyni. Þá þurfa þeir sem stunda garðaúðun í atvinnuskyni að vera handhafar notendaleyfis fyrir plöntuverndarvörum og vera með gilt starfsleyfi frá Heilbrigðisnefnd sveitarfélaga.

Góð ráð um rétta notkun plöntuverndarvara

1. Veldu áhættulitla plöntuverndarvöru

Þegar kemur að því að velja plöntuverndarvöru til að bregðast við einhverjum vanda er vert að benda á þann valkost að nota vörur sem hafa sem minnst neikvæð áhrif á náttúruna. Á markaðnum eru vörur sem aðeins innihalda náttúruleg virk efni, svo sem pýretrín, sápur eða olíur sem brotna tiltölulega hratt niður í náttúrunni og valda því lágmarksskaða á umhverfinu.

2. Veldu plöntuverndarvöru sem er tilbúin til notkunar

Plöntuverndarvörur geta verið á ýmsu formi svo sem úðablöndur tilbúnar til nokunar, fljótandi þykkni til blöndunar, duft, kyrni og fleira Með því að velja vörur sem eru tilbúnar til notkunar þarft þú ekkert að gera nema að nota vöruna á réttan hátt. Þannig er hægt að minnka áhættu sem getur skapast ef blanda þarf plöntuverndarvöru fyrir notkun. Má þar nefna að minni líkur verða á því að óþynnt efnablanda hellist út í umhverfið og minni líkur verða á því að þú komist í snertingu við efnablönduna.

3. Fylgdu leiðbeiningum á merkimiða

Mikilvægt er að fylgja nákvæmlega leiðbeiningum um blöndun og meðferð plöntuverndarvara, ekki síst vegna gróðursins sjálfs. Sé notuð of sterk blanda eða úðað í mikilli sól getur það valdið því að blöðin á plöntunum sviðna og skemmast. Á hinn bóginn getur það gerst að úðun beri ekki tilætlaðan árangur gegn skaðvaldinum ef notuð er of dauf blanda eða úðað í rigningu.

4. Virtu uppskerufrestinn

Þegar plöntuverndarvöru er dreift eða úðað yfir matjurtir þarf að líða ákveðinn tími frá því að efnið er notað þangað til óhætt er að uppskera og neyta afurðanna. Þetta er gert til þess að efnin nái að brotna niður og ekki verði til staðar leifar af þeim í matnum sem við neytum. Ef við virðum uppskerufrestinn og fylgjum í hvívetna leiðbeiningum um notkun plöntuverndarvara á okkur ekki að vera nein hætta búin.

5. Geymdu plöntuverndarvöru á réttan hátt

Mikilvægt er að geyma plöntuverndarvörur alltaf á tryggan hátt þar sem börn eða dýr ná ekki til og að þær séu aðskildar frá matvælum, dýrafóðri, lyfjum og snyrtivörum. Ef þörf er á að blanda plöntuverndarvöru fyrir noktun skal geyma hana í læstum skáp eða rými. Plöntuverndarvörur eiga alltaf að vera geymdar í upprunalegum umbúðum til þess að fyrirbyggja slys eða að þær verði notaðar í öðrum tilgangi. Plöntuverndarvörur geymast eingöngu í tiltekin tíma og á umbúðum varanna kemur fram fyrningardagsetning sem segir til um hvenær ætti að vera búið að nota vöruna. Ef komið er fram yfir þessa dagsetningu er ekki fullvíst að varan hafi tilætlaða virkni og að notkun hennar beri árangur.

Stöndum vörð um umhverfið, notum plöntuverndarvörur á réttan hátt og aldrei að óþörfu.

Pottar og sundlaugar

Notkun ýmissa efna fylgir viðhaldi á heitum pottum og sundlaugum og þá sérstaklega til að tryggja heilnæmi vatnsins. Efni sem algengt er að þurfi að nota við umhirðu heitra potta og sundlauga eru sótthreinsiefni (til dæmis klór og bróm), efni til að stilla sýrustig (pH), efni sem eyða þörungum, hreinsiefni, hleypiefni, svo eitthvað sé nefnt.

Mikilvægt er að notaður sé réttur skammtur af efnum. Röng notkun getur farið illa með búnaðinn. Of mikil notkun getur valdið óþægindum og ertingu ef um sterk efni er að ræða og verið skaðleg umhverfinu. Of lítil notkun getur haft í för með sér sýkingarhættu af völdum baktería.

Merkingar á umbúðum hættulegra efna eiga að vera á íslensku. Sum þessara efna eru ætandi og skulu umbúðir þeirra vera með öryggislok og áþreifanlega viðvörun. Þau skal jafnframt geyma á læstum stað þar sem börn ná ekki til.

Dæmi eru um að hættuleg efni sem notuð eru til viðhalds á heitum pottum séu í umbúðum sem minna á leikföng og geta vakið forvitni barna þó að slíkar umbúðir séu bannaðar.

Nokkur atriði sem hafa skal í huga við notkun efna:

  • Ítarlegar leiðbeiningar varðandi notkun og meðhöndlun efna og skammtastærðir ættu að fylgja efnunum.
  • Þekking afgreiðslufólks er mikilvæg. Neytandinn á að geta fengið leiðbeiningar við kaup á efnum og upplýsingar um hvað beri að varast.
  • Efni skulu ávallt geymd í upprunalegu umbúðunum.
  • Ef notaðir eru lausir skammtarar fyrir efni er mælt með því að nota skammtara sem börn geta ekki opnað. Einnig að fjarlægja þá á meðan að verið er að nota pottinn.
  • Brýna þarf fyrir börnum að fara varlega í námunda við heita potta hvort sem þeir eru í notkun eða ekki.

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800