Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Samgöngur

Minni losun á leiðinni

Samgöngur og umhverfið

Flestum finnst þægilegast að grípa í einkabílinn þegar fara þarf á milli staða. En ef við viljum draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum okkar er oft auðveldast að byrja á samgöngunum.

Vegasamgöngur eru ein af stærstu uppsprettum losunar gróðurhúsalofttegunda á Íslandi og hafa auk þess áhrif á loftgæði. Við bruna á jarðefnaeldsneyti, og ekki síður við framleiðslu þess og flutning til landsins, losnar mikið af gróðurhúsalofttegundum.

Íslendingar nota einkabílinn meira en flestar aðrar Evrópuþjóðir. Það er því mikið svigrúm til breytinga. Nánar má lesa um losun Íslands á síðunni Staðan á Íslandi.

Göngum, hjólum og tökum strætó

Ganga og hjóla

Að ganga og hjóla er gott fyrir umhverfið og fjárhaginn og er líka góð hreyfing. Vegalengdir milli heimilis og vinnu eru víða stuttar, ekki síst á höfuðborgarsvæðinu, og slíkar vegalengdir eru fljótfarnar á hjóli. Göngu- og hjólastígar batna með hverju árinu og um leið minnkar álag á vegi og kostnaður samfélagsins við viðhald þeirra.

Almenningssamgöngur

Að nota almenningssamgöngur í stað einkabíls dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda, minnkar álag á vegi og sparar peninga. Árskort í strætó kostar aðeins brot af rekstrarkostnaði einkabíls og fyrir mismuninn má leyfa sér leigubíl eða bílaleigubíl þegar þarf. Margir verða hissa þegar þeir skoða strætóleiðir í nágrenninu hvað munar litlu í tíma.

Venjum börnin á að ganga, hjóla eða taka strætó. Þau eru fljót að læra á kerfið og verða sjálfstæðari fyrir vikið.

Samgöngusamningar

Samgöngusamningar verða sífellt algengari hjá stofnunum og fyrirtækjum. Í slíkum samningi skuldbindur starfsfólk sig til að ganga, hjóla eða nota almenningssamgöngur til og frá vinnu, oftast minnst þrisvar í viku, og fær á móti styrk frá vinnustaðnum. Vistvænar samgöngur hafa líka heilsufarslegan ávinning og draga úr kostnaði við bílastæði.

Samakstur og deilibílar

Þurfum við endilega að eiga eigin bíl? Þegar við notum vistvænar samgöngur þurfum við sjaldnar á bíl að halda. Þá getur verið hentugt að samnýta bíl með öðrum, sameinast í bíl á leið í vinnuna eða nota deilibílaþjónustu, þar sem greitt er fyrir þann tíma sem bíllinn er notaður.

Bílar

Bílar eru ekki umhverfisvænir og verða það aldrei, vegna umhverfisáhrifa sem fylgja framleiðslu þeirra, notkun og förgun. Það er þó hægt að velja bíla sem hafa minni neikvæð umhverfisáhrif en aðrir.

Á Íslandi eru það fyrst og fremst bílar sem ganga alfarið fyrir rafmagni, því rafmagnið er framleitt hér á landi úr endurnýjanlegum orkugjöfum. Hleðslustöðvum fjölgar ár frá ári um allt land. Upplýsingar um styrki til kaupa á rafbílum eru á síðunni Rafbílastyrkir.

Þegar við þurfum að leigja bíl getum við óskað eftir rafbíl. Þannig sköpum við eftirspurn og hvetjum bílaleigur til að bjóða upp á fleiri slíka kosti.

Bílaþvottur

  • Þvoðu bílinn á þvottastöð þar sem frárennslisvatn er hreinsað. Það er betra en að þvo hann á planinu heima, þaðan sem óhreinindi og efni renna beint út í umhverfið.
  • Notaðu eins lítið af hreinsiefnum og hægt er.
  • Veldu umhverfisvottuð hreinsiefni og bón.

Ferðalög

Flug er einn stærsti þátturinn í losun gróðurhúsalofttegunda hjá mörgum einstaklingum. Ein flugferð fram og til baka til Kaupmannahafnar losar um 370 kíló af koltvísýringi á hvern farþega. Það er svipuð losun og þegar venjulegum bensínbíl er ekið um 2.600 kílómetra, eða tvisvar sinnum hringinn í kringum landið.

Við getum dregið úr losun með því að fljúga sjaldnar, velja beint flug frekar en flug með millilendingum, dvelja lengur í hverri ferð og nota lestir þar sem það er hægt. Reiknivél Alþjóðaflugmálastofnunarinnar sýnir losun einstakra flugferða.

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800