Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Skrifstofur

Góð ráð fyrir skóla, fyrirtæki og opinberar stofnanir

Plastið á skrifstofunni

Það kemur á óvart hversu mikið plast kemur inn á hinn hefðbundna vinnustað. Flestum vörum fylgja umbúðir sem oftar en ekki eru úr plasti, einnota borðbúnaður er stundum í boði í mötuneyti eða á viðburðum tengdum starfseminni og svo eru þættir eins og akstur sem valda losun örplasts. Til að hefja vegferðina í átt að ábyrgari plastnotkun er nærtækast að fara vel yfir öll innkaup, setja upp skilvirka flokkunaraðstöðu og fræða starfsfólk. Hér að neðan höfum við tekið saman góð ráð.

Dregið úr plastnotkun á vinnustaðnum

Image

Útrýma einnota vörum

Byrjið á að kortleggja hvaða einnota vörur þið eruð að kaupa inn. Þetta geta til dæmis verið plastpokar, kaffibollar, vatnsglös og annar borðbúnaður. Í sumum tilfellum eru þessar vörur hreinn óþarfi en oftar en ekki er hægt að finna margnota staðgengla. Vatnsvél og margnota glös er til dæmis betri kostur en vatn og sódavatn í einnota umbúðum og oftar en ekki er hægt að sleppa pokum í flokkunartunnur.

Það er sérstaklega mikilvægt að hafa þessa hluti í huga þegar skipuleggja á viðburði innan eða utan vinnustaðarins. Viðburðum fylgir oft mikil sóun, til dæmis þegar kemur umbúðum, skreytingum og gjöfum. Við bendum á leiðbeiningar Grænna skrefa um sjálfbæra viðburðaskipulagningu.

Image

Lágmarka plastnotkun

Margnota umbúðir

+

Forðist einstaklingsumbúðir

+

Lán, leiga og kaupa notað

+
Image

Vistvænar samgöngur

Dekk eru ein stærsta uppspretta örplasts í náttúrunni og því getum við dregið úr örplastmengun með því að draga úr akstri. Þetta á bæði við um akstur á vegum vinnustaðarins en líka akstur starfsmanna til og frá vinnu. Fjarfundir og fjarvinna eru frábær tól sem koma í veg fyrir samgöngur yfirhöfuð. Vinnustaðir geta boðið upp á hjól, rafhjól, rafskútur, niðurgreiddar strætóferðir og leigu á rafskútum sem starfsmenn geta nýtt á vinnutíma. Samgöngusamningar eru eitt besta tækið sem vinnuveitendur hafa til að hvetja starfsmenn til vistvænna samgangna til og frá vinnu, hvort sem þeir ganga, hjóla eða nota almenningssamgöngur. Á vef Grænna skrefa eru greinargóðar upplýsingar um hvernig er hægt að innleiða samgöngusamninga með farsælum hætti.

Gleymum því svo ekki að vistvænar samgöngur eru auðvitað heilsueflandi og stuðla að minni losun gróðurhúsaloftegunda.

Image

Umhverfisvottaðar vörur

Ef þið getið ekki leigt, fengið lánað eða keypt notað – leitið þá eftir áreiðanlegu umhverfismerkjunum þegar innkaup eru gerð. Merkin eru meðal þeirra sem talin eru í hæsta gæðaflokki merkja og geta því neytendur treyst því að þegar þeir kaupa vöru eða þjónustu sem merkt er Svaninum, Evrópublóminu eða öðrum sambærilegum merkjum þá séu þeir að velja það besta fyrir umhverfi og heilsu.

Úrval umhverfismerktra vara verður sífellt meira hér á landi en dæmi um slíkar vörur eru til dæmis húsgögn, vefnaðarvörur, hreinlætisvörur, ræsti- og þvottavörur, byggingarvörur og húsnæði, kerti, raftæki, rafhlöður og svo mætti lengi telja. Hér á landi hefur undanfarin ár verið mikill uppgangur í Svansvottaðari þjónustu en dæmi um slíkt eru ræstiþjónustur, prentsmiðjur, dagvöruverslanir, hótel, veitingastaðir og ráðstefnur. Sjá nánar á heimasíðu Svansins á Íslandi.

Image

Flokkunaraðstaða

Setjið upp flokkunaraðstöðu fyrir allan úrgang þar sem við á á vinnustaðnum og fjarlægið ruslatunnur á einstaka skrifstofum/við skrifborð. Á vef FENÚR má nálgast flokkunarmerkingar. Fræðið starfsfólk um hvernig bera skal sig að við flokkunina og hvetjið þau til dáða. Flest sorphirðufyrirtæki bjóða upp á fræðslufyrirlestra fyrir sína viðskiptavini.

Image

Við bendum á að á heimasíðu verkefnisins Græn skref – www.graenskref.is - má nálgast fræðslu, leiðbeiningar og upplýsingar um þær aðgerðir sem vinnustaðir geta farið í til að gera reksturinn umhverfisvænni. Formleg þátttaka í verkefninu er einungis fyrir stofnanir ríkisins en allt efni er opið og getur því nýst hverjum sem er.

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800