Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Áreiðanleg umhverfismerki

Merki sem neytendur geta treyst

Hvað eru áreiðanleg umhverfismerki?

Hin áreiðanlegu og altæku umhverfismerki eru ekki svo afskaplega mörg og því ætti hver og einn að geta lagt nokkur þeirra á minnið. Merkin eru meðal þeirra sem talin eru í hæsta gæðaflokki merkja og geta neytendur því treyst því að þegar þeir kaupa vöru eða þjónustu sem merkt er Svaninum, Evrópublóminu eða öðrum sambærilegum merkjum þá séu þeir að velja það besta fyrir umhverfi og heilsu.

Með því að læra þau algengustu er hægt að nota þau sem leiðarljós í gegnum þann frumskóg af merkjum sem finna má á umbúðum.

Hvað einkennir áreiðanleg umhverfismerki?

Áreiðanleg umhverfismerki eiga fimm atriði sameiginleg:

1

Valfrjáls

Framleiðendur sækja sjálfir um vottun. Merkið er valfrjáls leið til að markaðssetja umhverfiságæti vöru eða þjónustu.

2

Óháð úttekt

Úttekt er sinnt af óháðum þriðja aðila, ekki af framleiðandanum sjálfum.

3

Viðmið sérfræðinga

Viðmiðin eru sértæk fyrir hvern vöruflokk og þróuð af sérfræðingum.

4

Allur lífsferillinn

Gerðar eru kröfur til hráefnis, framleiðslu, notkunar og förgunar.

5

Sífelldar umbætur

Viðmiðin eru hert á nokkurra ára fresti svo vörur og þjónusta batna stöðugt.

Allt ofangreint er í samræmi við ISO-staðalinn 14024 um umhverfismerki.

Algengustu umhverfismerkin á íslenskum markaði

Hér eru dæmi um þau áreiðanlegu umhverfismerki sem algengust eru á vörum og þjónustu hér á landi.

MerkiLandStofnaðRekið af
SvanurinnNorðurlöndin1989Norræna ráðherranefndin
BlómiðEvrópusambandið1992Framkvæmdastjórn ESB
Blái engillinnÞýskaland1978Þýsk stjórnvöld
Bra MiljövalSvíþjóðfyrir yfir 30 árumNaturskyddsföreningen
Green SealBandaríkin1989Samtök án hagnaðarmarkmiðs
Merki Svanurinn

Svanurinn

NorðurlöndinStofnað 1989

Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna. Hann var stofnaður árið 1989 af Norrænu ráðherranefndinni og tekur til alls lífsferils vöru og þjónustu. Umhverfis- og orkustofnun sér um Svaninn á Íslandi.

Svansviðmið eru til fyrir um 60 flokka vöru og þjónustu og yfir 40.000 vörur og þjónusta bera merkið á Norðurlöndunum.

Dæmi um vottaðar vörur og þjónustu: snyrtivörur, prent- og ljósritunarpappír, húsgögn, leikföng og þvottaefni.

Merki Blómið

Blómið

EvrópusambandiðStofnað 1992

Blómið (EU Ecolabel) er opinbert umhverfismerki Evrópusambandsins og gildir á öllu Evrópska efnahagssvæðinu. Það var sett á laggirnar árið 1992 og í dag bera yfir 120.000 vörur og þjónusta merkið.

Í vottunarferlinu er allur lífsferillinn metinn: umhverfisáhrif af auðlindanýtingu, framleiðsla, flutningur og notkun. Blómið gefur neytendum, opinberum aðilum og innkaupaaðilum fyrirtækja færi á að kaupa sannarlega umhverfisvænni vörur og þjónustu.

Dæmi um vottaðar vörur og þjónustu: húsgögn, málning, eldhús- og klósettpappír, hótel, textíll og skór.

Merki Blái engillinn

Blái engillinn

ÞýskalandStofnað 1978

Blái engillinn (Der Blaue Engel) er áreiðanlegt þýskt umhverfismerki og var stofnað árið 1978. Það er eitt elsta umhverfismerki í heimi.

Þýsk yfirvöld ákveða innan hvaða vöruflokka er hægt að fá vottun. Viðmið merkisins eru þróuð í samvinnu við fulltrúa frá umhverfisyfirvöldum, iðnaði og neytendasamtökum ásamt öðrum hagsmunaaðilum og sérfræðingum.

Dæmi um vottaðar vörur og þjónustu: sápur og sjampó, dýnur, tölvur og prentarar og leikföng.

Merki Bra Miljöval

Bra Miljöval

SvíþjóðStofnað fyrir yfir 30 árum

Bra Miljöval er þróað af sænsku náttúruverndarsamtökunum Naturskyddsföreningen í samvinnu við samtök verslunar.

Merkjasamtökin hafa mótað heildstæð umhverfisviðmið sem framleiðendur eða dreifingaraðilar verða að uppfylla. Í þeim felst til dæmis að við framleiðslu má ekki nota efni sem eru þrávirk eða skaðleg umhverfinu. Einnig eru gerðar kröfur um orkunotkun og að hægt sé að endurvinna vöruna eða að niðurbrot hennar hafi ekki skaðleg áhrif á umhverfið.

Dæmi um vottaðar vörur og þjónustu: rafmagn, matvöruverslanir, snyrtivörur og eldsneyti.

Merki Green Seal

Green Seal

BandaríkinStofnað 1989

Margar bandarískar vörur á markaði hérlendis eru merktar Green Seal. Merkið telst til áreiðanlegra umhverfismerkja og er rekið af samtökum sem eru ekki starfrækt í hagnaðarskyni.

Samtökin voru stofnuð árið 1989 og Green Seal er elsta merki sinnar tegundar í Bandaríkjunum.

Dæmi um vottaðar vörur og þjónustu: hreinsiefni, þvottaefni, snyrtivörur, málning og pappírsvörur.

Varist grænþvott

Mörg merki á umbúðum eru ekki áreiðanleg umhverfismerki. Sum eru sett á af framleiðandanum sjálfum og önnur ná aðeins til afmarkaðs hluta framleiðslunnar eða hráefnisnotkunarinnar. Ef merki er ekki vottað af óháðum aðila og byggir ekki á lífsferilsnálgun telst það ekki eiginlegt umhverfismerki.

Athugið líka að umhverfismerki tákna ekki að varan sé lífræn.

Nánar um grænþvott · Lífræn vottun · Aðrar merkingar

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800