Lífrænt
Merki um lífræna ræktun
Lífræn ræktun
Merki um lífræna ræktun eru til marks um að við framleiðslu hráefna í tiltekna vöru hafi alþjóðlegum stöðlum um lífræna ræktun verið fylgt. Ef merki um lífræna ræktun er á brauði segir það ekki til um hvernig brauðið var bakað eða í hvernig umbúðum það er, heldur aðeins að ákveðin skilyrði hafi verið uppfyllt þegar hráefnin í brauðinu voru ræktuð. Sumir staðlar um lífræna ræktun ná þó lengra, sjá hér að neðan.
Skilyrði um lífræna ræktun fjalla til dæmis um að:
- sáðvara, áburður og varnarefni séu af náttúrulegum toga
- skiptiræktun sé stunduð í stað síræktunar
- búfé fái lífrænt fóður.
Lífræn vottun er ekki það sama og umhverfismerki. Áreiðanleg umhverfismerki, eins og Svanurinn og Blómið, taka til alls lífsferils vörunnar en segja ekki til um hvort hún sé lífræn.
Merki um lífræna ræktun
Hér að neðan eru helstu merki um lífræna ræktun sem finna má hér á landi. Það fer að mestu eftir uppruna vörunnar hvaða merki er á henni.

Tún
Lífræn vottunMerki vottunarstofunnar Túns eru lífræn vottun. Tún er faggild eftirlits- og vottunarstofa fyrir lífræna og sjálfbæra framleiðslu. Tún er þróunarfélag í þágu almannahagsmuna og vinnur að nýsköpun matvælaframleiðslu og náttúrunytja í samræmi við alþjóðlega staðla um tillitssemi við lífríki og náttúru. Siðfræði sjálfbærrar þróunar og heilbrigði allrar lífkeðjunnar eru megin leiðarljós í þjónustu Túns.

Lífræna merki Evrópusambandsins
Lífræn vottunFramleiðsla á vörum sem eru vottaðar með þessu merki skal taka tillit til umhverfis og velferðar dýra. Merkið má finna á vörum sem eru framleiddar í fjölmörgum Evrópuríkjum.
Evrópusambandið gerir kröfu um að yfirvöld í viðkomandi ríki hafi eftirlit með framleiðendum og vörum. Eftirlitinu er ætlað að tryggja að vörurnar séu ósviknar og að kröfum til framleiðsluaðferða sé fylgt. Að minnsta kosti einu sinni á ári láta yfirvöld kanna að framleiðendur standist kröfur um lífræna ræktun.
Merkið nær ekki yfir orku- eða samgönguþætti.

Debio
Lífræn vottunNorska Debio-merkið tryggir að við framleiðslu vörunnar hefur bæði norskum reglum og reglum Evrópusambandsins um lífræna ræktun verið fylgt. Þannig tryggir Debio-merkið að tekið hefur verið tillit til umhverfisins, dýraverndar og lífrænna ræktunarskilyrða.

Demeter
Lífræn vottunFramleiðendur sem nota merkið þurfa að standast tvenns konar eftirlit. Í fyrsta lagi þurfa þeir að fylgja opinberum reglum um lífræna vottun þar sem þeir nota orðið „Bio“ í kynningu á vörum sínum. Í öðru lagi þurfa þeir að standast kröfur Demeter-samtakanna um lífeflda ræktun (biodynamic). Samtökin nota tvö svipuð merki sem eru að öllu leyti sambærileg.

KRAV
Lífræn vottunMerkið er sænskt merki sem vottar og hefur eftirlit með lífrænni ræktun. Merkið tryggir að við framleiðslu er tekið tillit til umhverfisþátta, velferðar dýra, samfélagslegrar ábyrgðar og hollustu. Til að fá merkið fyrir plönturækt þarf ræktunin að minnsta kosti að samræmast reglum Evrópusambandsins um lífrænan landbúnað. Merkið er valfrjálst og framleiðandinn greiðir fyrir notkun þess.

Ø-merkið
Lífræn vottunMerkið má einnig finna á erlendri lífrænni vöru ef hún er unnin í Danmörku. Lífræn unnin matvæli, til dæmis kæfa, sulta og tilbúnir réttir, mega ekki innihalda gervisætuefni eða gervibragðefni og mun færri aukefni eru leyfð en í matvælum sem framleidd eru á hefðbundinn hátt.
Ø-merkið með textanum „Statskontrolleret økologisk“ má einnig finna á lífrænum vörum sem ekki eru matvæli, til dæmis fóðri, fræjum, forræktuðum plöntum og hunda- og kattamat, ef varan er framleidd undir eftirliti með lífrænum vörum í Danmörku. Ø-merkið er notað bæði í rauðum og svörtum lit.

Soil Association
Lífræn vottunMarkmið samtakanna er að vernda umhverfið og stuðla að sjálfbærni, en samtökin eru stærst sinnar tegundar í Englandi. Soil Association-merkið tryggir að vörurnar uppfylli kröfur Evrópusambandsins um lífræna ræktun en jafnframt enn strangari kröfur um sjálfbærni.
Siðferðilegra sjónarmiða er einnig gætt: framleiðendur skuldbinda sig til að nota ekki börn í vinnu, tryggja starfsfólki mannsæmandi lífskjör og forðast mismunun. Meðlimum samtakanna ber einnig að fylgja reglum um velferð dýra og sjálfbæra framleiðslu í landbúnaði og skógrækt.

GOTS
Lífræn vottunGOTS stendur fyrir Global Organic Textile Standard, alþjóðlega staðalinn fyrir lífræna vefnaðarvöru. Samkvæmt kröfum merkisins þarf vefnaðarvara að vera framleidd úr að minnsta kosti 95% lífrænt ræktuðum trefjum og framleiðslan þarf að vera bæði umhverfislega og félagslega ábyrg.
Einnig er hægt að fá vottun fyrir vefnaðarvöru sem inniheldur minna lífrænt hlutfall, en þá með öðru merki (GOTS „made with organic“).

Ecocert
Lífræn vottunEcocert er einkarekin vottunarstofa sem vottar og rekur Ecocert-merkið. Merkið má finna á matvörum, vefnaðarvörum og snyrtivörum.
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





