Aðrar merkingar
Merki sem ná til afmarkaðra þátta
Merki sem ná til afmarkaðra þátta
Mörg merki á vörum ná aðeins til eins þáttar, til dæmis orkunotkunar, uppruna hráefnis, viðskiptahátta eða heilsu. Þau geta verið gagnleg, en þau eru ekki umhverfismerki í sama skilningi og áreiðanleg umhverfismerki, sem taka til alls lífsferils vörunnar.
Orka og raftæki
Þessi merki segja til um að varan uppfylli ákveðin skilyrði varðandi orku eða endurvinnslu raftækja. Til dæmis er Energy Star til marks um að vara sé sparneytin á rafmagn, en merkið gerir enga kröfu um hráefnaval, notkun efna eða orkusparnað í framleiðslu.

Orkumerki ESB
Upplýsinga- eða skyldumerkiMerkið sýnir orkunýtni vörunnar á skalanum A (græn, sparneytin) til G (rauð, mikil orkunotkun). Það sýnir einnig táknmyndir sem greina frá árlegri orkunotkun vörunnar og öðrum eiginleikum, svo sem hávaða.
Árið 2021 var orkumerki Evrópusambandsins breytt og kröfur hertar. Nýja merkið er einfaldara, er á skalanum A–G og kemur í stað merkjanna sem fóru upp í A+, A++ og A+++.
Orkumerkið er skylda á meðal annars eftirfarandi vöruflokkum:
- kæli- og frystiskápum
- uppþvottavélum
- þvottavélum og þvottavélum með þurrkara
- þurrkurum
- ljósaperum
- sjónvörpum og skjám
- loftræstikerfum fyrir heimili
- hjólbörðum
- snjallsímum og spjaldtölvum

Energy Star
Nær til afmarkaðs þáttarMerkið er undir eftirliti Umhverfisverndarstofnunar Bandaríkjanna (EPA). Energy Star er valfrjáls merking fyrir sparneytin tæki, til dæmis tölvur, tölvuskjái, prentara og ljósritunarvélar. Vörurnar skulu vera sparneytnar á orku, bæði við notkun og í dvala.
Merkið gerir enga kröfu um hráefnaval, notkun efna eða orkusparnað í framleiðslu. Samningur Evrópusambandsins og Bandaríkjanna um Energy Star rann út árið 2018 og merkið er því ekki lengur notað opinberlega í Evrópu, en það má enn sjá á innfluttum vörum.

Raftækjamerkið
Upplýsinga- eða skyldumerkiÁ raf- og rafeindatækjum sem skila skal til endurvinnslu er lítil mynd af yfirstrikaðri sorptunnu á hjólum. Merkið er til dæmis að finna á raftækjum, rafhlöðum og ljósaperum.
Merkið þýðir að ekki má henda vörunni í almennt sorp heldur ber að skila henni til endurvinnslu. Öll ný raftæki skulu bera merkið. Raftækjaúrgangur er bæði hættulegur og sístækkandi úrgangsflokkur, því raf- og rafeindatæki innihalda fjölda efna sem eru slæm fyrir umhverfið, einkum þungmálma.

TCO Certified
Áreiðanlegt umhverfismerkiAð merkinu standa sænsku samtökin TCO Development. Vörur sem merktar eru TCO-merkinu mega ekki innihalda klór- eða brómeruð eldvarnarefni og eru endurvinnanlegar. TCO gerir meðal annars kröfur um:
- upplýsingaflæði til neytenda
- samfélagslega og umhverfislega ábyrga framleiðslu
- minni hitalosun frá vörum og þar af leiðandi minni orkunotkun og betri loftgæði innandyra
- minni losun þungmálma, brómeraðra eldvarnarefna og annarra efna
TCO Certified er áreiðanlegt og viðurkennt umhverfismerki af tegund 1.

EPEAT
Áreiðanlegt umhverfismerkiAð merkinu standa bandarísku samtökin Global Electronics Council. EPEAT er valfrjáls merking fyrir tæknivörur og þjónustu. Vörur merktar EPEAT þurfa að uppfylla umhverfisskilyrði, meðal annars um val á hráefnum, samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda í virðiskeðjunni, orkusparnað og hringrásarhönnun. Vörurnar eru flokkaðar í brons, silfur og gull eftir því hversu mörg valkvæð viðmið þær uppfylla til viðbótar.
EPEAT er áreiðanlegt og viðurkennt umhverfismerki af tegund 1.
Sjálfbært hráefni
Sum merki segja til um hvort framleiðsla á tilteknu hráefni teljist sjálfbær. Slík merki má til dæmis finna á vörum úr timbri, svo sem garðhúsgögnum, prentpappír og viðarkolum, og á fiskafurðum.

FSC
Nær til afmarkaðs þáttarÍ FSC-vottaðri skógrækt eru ekki felld fleiri tré en skógurinn nær að endurnýja. Jafnframt tryggir FSC-vottun að dýra- og plöntulíf er verndað og að starfsfólk skógræktarinnar fær nauðsynlegan öryggisbúnað og sæmileg laun. Merkið felur ekki í sér lífræna vottun.
FSC-merkið var stofnað í alþjóðlegu samstarfi umhverfissamtaka, mannréttindasamtaka, skógræktar og timburiðnaðar. Tilgangur þess er að fá framleiðendur til að taka meiri ábyrgð á umhverfislegum, félagslegum og hagrænum þáttum í skógrækt.

PEFC
Nær til afmarkaðs þáttarPEFC er stytting á Programme for the Endorsement of Forest Certification. Merkið tryggir að timbrið kemur úr sjálfbærri skógrækt þar sem tekið er tillit til umhverfismála, líffræðilegrar fjölbreytni og félagslegra og efnahagslegra aðstæðna starfsfólks. Kröfur vottunarkerfisins varða aðeins sjálfbæra nýtingu skóga og timburs eða viðartrefja frá skóginum til neytenda.

MSC
Nær til afmarkaðs þáttarMSC (Marine Stewardship Council) gefur til kynna að ekki sé um að ræða fisktegund í útrýmingarhættu og að veiðiaðferðirnar verndi líffræðilega fjölbreytni hafsins. Merkið felur ekki í sér lífræna vottun.
MSC byggir á þremur meginreglum:
- Veiðarnar leiða ekki til ofveiði.
- Veiðarnar varðveita vistkerfi hafsins, virkni þess, uppbyggingu og fjölbreytni.
- Veiðarnar byggja á skilvirku stjórnkerfi sem fylgir bæði alþjóðalögum og landslögum og tryggir örugga langtímanýtingu.
Sanngjörn viðskipti
Þessi merki sýna að viðskipti með vöruna teljast sanngjörn. Því lengra sem vara ferðast á borð neytenda, því erfiðara er að vita nokkuð um framleiðsluferil hennar. Sum merki eiga að segja neytendum að siðferðilegra sjónarmiða hafi verið gætt við framleiðsluna, svo sem að starfsfólki séu tryggð lágmarksréttindi varðandi laun og aðbúnað. Fairtrade er þeirra þekktast. Sum merki í öðrum flokkum, til dæmis FSC, ná að hluta einnig til viðskiptahátta.

Fairtrade
Nær til afmarkaðs þáttarMerkið tryggir að við framleiðslu vörunnar eru gerðar lágmarkskröfur um verð, vinnuaðbúnað, lýðræðislega þróun og umhverfismál. Þannig er bændum að minnsta kosti tryggt réttmætt lágmarksverð fyrir afurðir sínar, sem meðal annars er ákveðið út frá nauðsynlegum ráðstöfunartekjum á viðkomandi svæði.
Merkið var stofnað í Hollandi árið 1988 og er ekki einskorðað við þróunarlönd. Á Norðurlöndunum má víða finna vottaðar innlendar vörur, og þar eru framleiðendur oft bæði með vottun um sanngjörn viðskipti og lífræna ræktun.
Heilsa og efni
Til eru merki sem segja til um heilnæmi vöru og ná til mismunandi þátta. Skráargatið nær til dæmis til hollustu matvæla en önnur merki gefa til kynna að í vörunni sé ekki að finna óæskileg efni.

Skráargatið
Nær til afmarkaðs þáttarSkráargatið er norrænt merki, upprunalega sænskt, og er valfrjáls merking fyrir matvælaframleiðendur sem vilja sýna fram á hollustu matvæla sinna. Merkið sýnir hvaða matvæli uppfylla opinberar ráðleggingar um mataræði hvað varðar innihald fitu, sykurs, salts og trefja. Merkið er ekki lífræn vottun.
Matvæli sem ætluð eru börnum yngri en þriggja ára má ekki merkja með Skráargatinu.

Den Blå Krans
Nær til afmarkaðs þáttarBláa merkið er danskt merki sem sýnir að varan hefur verið þróuð í samráði við dönsku astma- og ofnæmissamtökin. Merkið miðast við snertiofnæmi og því má sjá það á vörum sem komast í beina snertingu við húðina. Merkið felur ekki í sér lífræna vottun.
Merkið felur í sér að samtökin hafa farið yfir innihaldsefni vörunnar og staðfest að í ljósi nýjustu rannsókna sé lágmarksáhætta á ofnæmi við notkun hennar. Líta ber á staðfestinguna sem leiðbeiningu en ekki tryggingu.

OEKO-TEX Standard 100
Nær til afmarkaðs þáttarAð baki merkinu (á norrænum vörum oft „Tiltro til tekstiler“) standa alþjóðleg samtök í vefnaðariðnaði. Merkið sýnir að ekki er farið yfir leyfileg viðmiðunarmörk um hættuleg efni í vefnaðarvörunni. Merkið er ekki lífræn vottun og nær ekki til framleiðsluaðferða eða hráefnaöflunar.
Umhverfisstjórnun
Þessi merki eru ekki merkingar á einstökum vörum heldur sýna þau að fyrirtæki eða stofnun vinni samkvæmt ákveðnu umhverfisstjórnunarkerfi. Slík kerfi eru verkfæri til að stýra þeim þáttum starfseminnar sem valda umhverfisáhrifum. Fyrirtækin ákveða sjálf hvaða umhverfismarkmiðum þau vilja ná.

EMAS
Vottar fyrirtæki, ekki vöruEMAS er valfrjálst umhverfisstjórnunarkerfi fyrir fyrirtæki og stofnanir sem mótað var af Evrópusambandinu. Þau sem vinna samkvæmt kerfinu starfa eftir viðurkenndu umhverfisstjórnunarkerfi og setja sér og ná árlegum markmiðum um að bæta sig í umhverfismálum.
Virkni kerfisins er tryggð með skipulögðum og óháðum úttektum. Á Íslandi hefur Umhverfis- og orkustofnun eftirlit með skráningu í kerfið.

ISO 14001
Vottar fyrirtæki, ekki vöruISO 14001 er alþjóðlegur staðall um umhverfisstjórnunarkerfi. Fyrirtæki með vottun samkvæmt staðlinum hafa komið sér upp kerfi til að greina og draga úr umhverfisáhrifum starfsemi sinnar og ákveða sjálf hvaða umhverfismarkmiðum þau vilja ná. Vottunin segir ekkert um einstakar vörur fyrirtækisins.

Grænfáninn
Vottar fyrirtæki, ekki vöruGrænfáninn er alþjóðlegt verkefni um umhverfismennt og menntun til sjálfbærni í skólum (Eco-Schools). Skólar sem vinna markvisst að umhverfismálum samkvæmt skrefum verkefnisins fá að flagga Grænfánanum. Landvernd sér um verkefnið á Íslandi.
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





