Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Grænþvottur

Villandi umhverfisfullyrðingar

Hvað er grænþvottur?

Grænþvottur er þegar fyrirtæki setur fram rangar eða villandi upplýsingar um umhverfiságæti eigin vöru. Grænþvottur er græn markaðssetning sem gefur til kynna að frammistaða seljandans eða ágæti vörunnar eða þjónustunnar sé meira frá sjónarhóli sjálfbærrar þróunar en innstæða er fyrir. Í skýrustu birtingarmynd sinni er um að ræða fyrirtæki sem vill vísvitandi blekkja neytendur.

Það er þó alls ekki alltaf svona svart og hvítt. Fyrirtæki geta gerst sek um grænþvott bæði vísvitandi og óviljandi. Oft fer það líka eftir þekkingu í samfélaginu og stöðu neytenda hvort um grænþvott er að ræða eða ekki.

Hvernig get ég forðast grænþvott?

Það er mikilvægt að vera gagnrýnin á þær upplýsingar sem fyrirtæki setja fram. Spyrjið spurninga eins og „hvað er náttúrulegt?“ eða „er náttúrulegt betra fyrir mig?“. Auðveld leið til að komast hjá grænþvotti er að læra að þekkja nokkur áreiðanleg umhverfismerki og leita að þeim þegar við verslum.

Spurningar sem gott er að spyrja

  1. Er fullyrðingin nákvæm, eða almenn eins og „umhverfisvæn“, „græn“ eða „náttúruleg“?
  2. Er hún studd vottun óháðs aðila eða gögnum sem hægt er að kynna sér?
  3. Á hún við alla vöruna eða aðeins hluta hennar, til dæmis umbúðirnar?
  4. Er merkið áreiðanlegt umhverfismerki eða merki sem framleiðandinn hefur búið til sjálfur?

Grænþvottur og lög

Samkvæmt lögum nr. 57/2005 um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu eru viðskiptahættir villandi ef þeir eru líklegir til að blekkja neytendur eða ef neytendum eru veittar rangar upplýsingar. Grænþvottur getur því verið ólöglegur.

Neytendastofa ber ábyrgð á að lögunum sé fylgt. Ef þú sérð markaðssetningu eða auglýsingar þar sem þú telur að verið sé að blekkja neytendur, eða að sannanir vanti fyrir fullyrðingum, getur þú tilkynnt það til Neytendastofu, bæði nafnlaust og undir nafni.

Evrópusambandið hefur hert reglur um umhverfisfullyrðingar með tilskipun (ESB) 2024/825. Samkvæmt henni verða almennar umhverfisfullyrðingar, eins og „umhverfisvænt“ eða „grænt“, sem ekki eru studdar gögnum bannaðar, og sama gildir um sjálfbærnimerki sem hvorki byggja á vottunarkerfi né eru sett af stjórnvöldum. Reglurnar gilda í ríkjum Evrópusambandsins frá 27. september 2026.

Kynning á grænþvotti

Hér má sjá kynningu frá sérfræðingi Umhverfisstofnunar, nú Umhverfis- og orkustofnunar, um grænþvott.

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800