Sjávarútvegur
Góð ráð fyrir útgerðir
Plast í hafinu
Vöktun Umhverfis- og orkustofnunar á ströndum á Íslandi og skráningum Hafrannsóknastofnunar á plasti í sjó við Ísland ber á sama stað niður - stærsta uppspretta plasts í sjónum við Íslandsstrendur kemur frá sjávarútvegi. Það er því mikið hagsmunamál fyrir íslenskan sjávarútveg að vinna að því að plast endi ekki í sjónum til að vernda fiskistofna og annað lífríki sjávar.

8.000.000%
tonn af plasti enda í sjónum á ári hverju
Af hverju er plast í hafinu vandamál?
„Lengi tekur sjórinn við“ sögðu menn og trúðu að hafið gæti tekið við úrgangi okkar mannanna út í hið óendanlega. Annað hefur þó komið á daginn. Plast er manngert efni sem brotnar seint eða aldrei niður og hverfur því aldrei úr náttúrunni endi það þar. Þetta hefur margvísleg skaðleg áhrif í för með sér:
Áhrif á lífríki
+Heilsuspillandi efni
+Ímynd landsins
+Kostnaður við hreinsanir
+Dregið úr plastmengun í sjávarútvegi

Koma ónýtum veiðarfærum í endurvinnslu
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi eru með samning við Úrvinnslusjóð um úrvinnslu á veiðarfæraúrgangi úr gerviefnum. Samtökin eru skuldbundin samkvæmt samningnum til að reka eða semja við þriðja aðila um rekstur á viðurkenndri móttökustöð fyrir endurnýtanlegan veiðarfæraúrgang úr gerviefnum og koma honum til endurvinnslu. Sjá nánar og um móttökustöðvar á vefsíðu samtakanna hér.
Velja umbúðir sem haldast í hringrás
Sjávarútvegur nýtir mikið af umbúðum til að flytja og viðhalda verðmætum afurða sinna. Eftirfarandi atriði er mikilvægt að hafa í huga þegar velja á umbúð:
1. Sleppa umbúðum - eru einhverjar umbúðir óþarfi?
2. Draga úr magni umbúða - er möguleiki að til dæmis þynna og létta þær?
3. Endurnotkun - geta einhverjar umbúðir verið margnota?
4. Einnota umbúðir - tryggja að þær séu endurvinnanlegar og að sem mestu leyti úr endurunnu plasti
Nánari leiðbeiningar má finna í umfjöllun okkar um umbúðir hér á vefnum.
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





