Umbúðir
Góð ráð fyrir umbúðahönnuði, framleiðendur, heild- og smásölur
Hringrásarhönnun
Evrópusambandið hefur bent á að allt að 80% af umhverfisáhrifum vöru séu ákvörðuð á hönnunarstiginu. Í upphafi skal endinn skoða og því er mikilvægt að umbúðahönnuðir og framleiðendur séu meðvitaðir um að umbúðirnar sem þeir eru að búa til séu hannaðar til að haldast í hringrás eins lengi og mögulegt er. Umbúðir þurfa að vera hannaðar þannig að hægt sé að endurnota þær, gera við þær og/eða endurvinna.
Hér að neðan má sjá þær leiðir sem hægt er að fara til að draga úr plastumbúðum og hanna umbúðir sem geta enst í hringrás til framtíðar.
47 kg
af plastumbúðum á hvern Íslending á ári
28 prósent
endurvinnsla á plastumbúðum á Íslandi síðustu ár
Á Íslandi er magn plastumbúða sem hver íbúi losar sig við um 47 kg á hverju ári eða alls um 16.500 tonn. Þegar við tölum um plastumbúðir er átt við allar umbúðir úr plasti sem tengjast lífi einstaklings, heimili, skóla og vinnu. Endurvinnsla á plastumbúðum á Íslandi síðustu ár er í kringum 25-30%, en inni í þeirri tölu er endurvinnsla drykkjavöruumbúða með skilagjaldi (85% endurunnið), heyrúlluplasts (60-70% endurunnið) og annarra umbúða úr plasti (10-15% endurunnið). Tölfræði um endurvinnslu umbúða er einnig að finna á síðu um tölfræði úrgangs á síðu Umhverfis- og orkustofnunar.
Hringrásarhönnun umbúða

1. Sleppa umbúðum
Mikilvægur liður í að koma á fót hringrásarhagkerfi er að draga úr öllum óþarfa einnota vörum, hvort sem þær eru úr plasti eða öðrum efnum. Þegar kemur að umbúðum ætti fyrsta spurningin því alltaf að vera:
eru þessar umbúðir nauðsynlegar?
Eitt af því sem margir framleiðendur geta hæglega gert er að sleppa annars stigs umbúðum sem oft eru nýttar utan um fyrsta stigs umbúðir til þess að láta vörurnar líta vel út í hillum verslana. Fyrsta stigs umbúðir má hanna þannig að þær þjóni einnig tilgangi annars- og þriðja stigs.
2. Draga úr magni umbúða
Ef ekki er hægt að sleppa umbúðum skal hugað að eftirfarandi til að lágmarka efnisnotkun:
- Laga umbúðirnar að stærð vöru eins og hægt er
- Gera umbúðirnar þynnri og léttari
- Gera vöruna sjálfa léttari og minni til dæmis með því að selja hreinlætisvörur í púðurformi sem kaupandinn bætir vatni við sjálfur
- Selja vörur í miklu magni (e.bulk) þar sem við á
- Birgjar noti fjölnota umbúðir við flutninga á vörum
- Verslanir bjóði neytendum að kaupa fjölnota burðarpoka sem svo er hægt að skila aftur (til dæmis hægt að vera með skilagjald)

3. Endurnotkun
Margnota umbúðir, áfyllingar- og deiliþjónustur og viðgerðir eru mikilvægir þættir þegar kemur að því að skapa hringrás plasts.
Margnota umbúðir
+Áfyllingar- og deiliþjónustur
+Viðgerðir
+4. Einnota umbúðir
Ef ekki er hægt að sleppa eða draga úr plastumbúðum og endurnotkun ekki möguleiki verður að tryggja að umbúðirnar séu endurvinnanlegar og að sem mestu leyti úr endurunnu plasti. Þetta kemur í veg fyrir aukna þörf á frumplasti og heldur plasti í hringrásinni. Framleiðendur umbúða eru lykilaðilar þegar kemur að því að skapa eftirspurn eftir endurunnu plasti.
Hér má finna upplýsingar um þau atriði sem vert er að hafa í huga þegar hanna á einnota umbúðir sem eru endurvinnanlegar og úr endurunnu plasti. Myndin þar fyrir neðan sýnir svo forgangsröðun fyrir efnisval einnota umbúða.
„Það er mest eftirspurn eftir endurunnu plasti í háum gæðaflokki, af algengri gerð og í ljósum lit“
Endurvinnanlegar umbúðir
+Umbúðir úr endurunnu plasti
+Hvaða plasttegundir henta til endurvinnslu?
+Úrvinnslugjald verður hærra á vörum sem erfitt eða ómögulegt er að endurvinna
+Hvaða efni skal velja í einnota umbúðir og borðbúnað?

Forgangsraðið:
- A.m.k. 50% endurunnið plast sem hægt er að endurvinna áfram
- Lífplast gert úr hrati sem er hægt að endurvinna með öðru plasti (bio-PET, bio-PE og bio-PP)
- Svansvottaður borðbúnaður
- Pappír eða pappi úr sjálfbærri skógrækt (merktur FSC eða PEFC eða með áreiðanlegu umhverfismerki – Svanurinn, Evrópublómið, Blái engillinn, Bra Miljöval og Green Seal)
Ef ofangreint gengur ekki þá skal velja:
- Hefðbundið plast sem er ósamsett, af algengri gerð (PET, PE, PP), ólitað og með ákjósanlegum merkingum

FORÐIST:
- Umbúðir úr samsettum efnum, til dæmis ál+plast, plast+pappír, margar gerðir af mismunandi plasti
- PVC plast og frauðplast
- Álpappír
- Lífplast, annað en það sem minnst er á hér að ofan

Endurvinnsla
Síðustu ár hefur einungis um 28% af öllu umbúðaplasti á Íslandi skilað sér í endurvinnslu. Mikilvægt er að hönnuðir og fyrirtæki hjálpi neytendum að koma umbúðum í réttan farveg.
Góð ráð:
Réttar og skýrar flokkunarmerkingar á umbúðunum sjálfum, sjá flokkunarmerkingar FENÚR á fenur.is
Plastmerkingar séu einnig á umbúðum úr plasti, það er endurvinnsluþríhyrningur með númeri plasttegundar inní, sjá hér undir Hvað er plast
Fræðsla til viðskiptavina um rétta flokkun
Fyrirtæki geti tekið á móti umbúðum og komið þeim í réttan farveg fyrir viðskiptavini sína
Gott og opið samtal við sorphirðuþjónustu um stöðuna hverju sinni og úrbætur
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





