30 ár af Pokémon og úrgangi

Í dag er alþjóðlegi vasaskrímsladagurinn (e. International Pokémon Day), en vasaskrímslin fagna 30 ára afmæli! Dagurinn er haldinn hátíðlegur í tilefni upprunalegu tölvuleikjanna, sem komu út 27. febrúar árið 1996. Síðan þá hafa vasaskrímslin notið gífurlegra vinsælda á heimsvísu í formi tölvuleikja, leikfanga og safngripa.









