Auglýsing: Styrkir til strandhreinsana árið 2026

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr verkefninu Strandhreinsun Íslands.
Félagasamtök, áhugamannafélög, íþróttafélög og aðrir lögaðilar geta sótt um styrk til hreinsunar á strandlengju Íslands á árinu 2026.
Verkefnið Strandhreinsun Íslands hefur verið framlengt til þriggja ára og nær nú yfir tímabilið 2026 - 2028. Markmiðið er að styðja við áframhaldandi hreinsun stranda og draga úr mengun í hafinu.
Úthlutunarreglurnar hafa verið uppfærðar. Umsóknaraðilar geta nú til dæmis sótt um styrk til endurhreinsunar á strandbútum.
Umsóknarfrestur er til 17. apríl 2026.









