Átt þú eftir að sækja um rafbílastyrk?

Um næstu áramót lækka hreinorkustyrkir til fólksbíla úr 900.000 kr. í 500.000 kr.
Umsóknir sem verða samþykktar eftir 31. desember 2025 fá að hámarki 500.000 kr. óháð því hvenær ökutækið er keypt eða nýskráð.
Til að sækja um styrk þarf ökutæki að vera nýskráð hjá Samgöngustofu og skráður eigandi getur sótt um. Önnur skilyrði má sjá á www.orkusjodur.is.
Ertu ekki viss um að þú eigir eftir að sækja um styrk? Umsóknarkerfið lætur þig vita!









