Merki Umhverfis- og orkustofnunar tilnefnt til verðlauna

Merki Umhverfis- og orkustofnunar hefur hlotið tilnefningu til FÍT verðlaunanna 2026.
Alls eru 67 verk tilnefnd í ár af 357 innsendingum í 15 flokkum. Tilnefningar eru veittar verkum sem þykja framúrskarandi í grafískri hönnun á sínu sviði samkvæmt mati dómnefndar.
Auglýsingastofan Tvist hannaði merkið og ásýnd stofnunarinnar.
Um merkið
Merki Umhverfis- og orkustofnunar endurspeglar starfsemi stofnananna beggja sem sameinuðust. Hvor um sig áttu sterk og langlíf vörumerki.
Innblástur fyrir merkið var sótt í jörðina, stuðlaberg, hleðslu, jafnvægi og upphafsstafi beggja stofnana: U og O.
Litirnir voru sóttir beint í íslenska náttúru. Í merkinu eru þrír grænir tónar en ásýndinni fylgja einnig sex kraftmiklir stuðningslitir.
Merkið sjálft er einfalt, læsilegt og þægilegt í notkun. Það má líta á merkið sem kubba sem má stafla eða leika sér með. Það gefur hönnuðum tækifæri til að skapa spennandi grafískan heim út frá merkinu sjálfu.










