Auglýst eftir tilnefningum til Bláskeljarinnar

Umhverfis- og orkustofnun kallar eftir tilnefningum til Bláskeljarinnar 2026. Tilgangur Bláskeljarinnar er að gefa lausnum sem stuðla að hringrásarhagkerfi verðskuldaða athygli. Sérstök áhersla er lögð á að verðlauna lausnir sem sýna hvernig hringrásarhagkerfið getur skapað raunveruleg tækifæri til verðmætasköpunar og betra samfélags um leið og dregið er úr auðlindanotkun, úrgangi og umhverfisáhrifum. Verðlaunin verða afhent af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Bláskelin fær nýtt hlutverk
Í ár verður Bláskelin í fyrsta sinn veitt fyrir framúrskarandi lausnir á sviði hringrásarhagkerfisins. Áður var hún veitt fyrir lausnir sem drógu úr plastnotkun, en nú er leitað að bæði nýjum og rótgrónum lausnum sem halda verðmætum í hringrás – þvert á efnisflokka og geira.
Hverju leitum við að?
Við mat á tilnefningum verður meðal annars horft til:
- Tengsla við hringrásarhagkerfið – hvernig lausnin stuðlar að betri nýtingu auðlinda með auknum líftíma, minni sóun og aukinni hringrás.
- Nýsköpunargildis – hversu nýstárleg og framsækin lausnin er í íslensku samhengi.
- Raunhæfni – hvort lausnin svari raunverulegri þörf, sé framkvæmanleg og hafi möguleika á að ná útbreiðslu.
- Áhrifa – hvaða jákvæðu áhrif lausnin hefur á umhverfi, samfélag og auðlindanýtingu.
Góðar lausnir þurfa ekki alltaf að vera nýjar. Stundum felst hugvitið í því að heimfæra lausnir sem hafa reynst vel erlendis, horfa til baka, enduruppgötva það sem virkaði og laga það að þörfum framtíðarinnar. Við leitum því bæði að nýjum og framsæknum lausnum og rótgrónum verkefnum sem hafa þegar sýnt árangur.
Hver á skilið Bláskelina 2026?
Tilnefna má fyrirtæki, stofnun, einstakling eða samtök fyrir verkefni eða lausn á sviði hringrásarhagkerfisins. Aðilar geta bæði tilnefnt eigin verkefni og annarra.
Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunum.
Tekið er við tilnefningum út 20. október 2026.
Hringrásarhagkerfið – gerum meira úr minna
Hringrásarhagkerfi snýst um að nýta auðlindir á sem hagkvæmastan hátt, hanna vörur og þjónustu með langan líftíma í huga, lengja notkun þeirra með viðgerðum, draga úr öllum óþarfa, endurnotkun og deilingu og halda efnum og verðmætum í hringrás með endurnýtingu og endurvinnslu.
Af hverju Bláskel?
Bláskelin er sjálf hluti af náttúrulegu hringrásarkerfi. Hún síar næringarefni úr sjónum, bindur kolefni og kalk og er hluti af vistkerfi sjávar. Þegar lífveran deyr getur skelin orðið að búsvæði fyrir aðrar lífverur og efni hennar fara aftur inn í náttúrulegar hringrásir. Bláskelin er því tákn hringrásar, fyrir auðlindir sem halda áfram að skapa verðmæti, hring eftir hring.
Hafa samband
Bláskelin er á vegum Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins og Umhverfis- og orkustofnunar og er hluti af aðgerðum Saman gegn sóun, úrgangsforvarnarstefnu ríkisins.
Ef einhverjar spurningar vakna má hafa samband við starfsfólk Saman gegn sóun hjá Umhverfis- og orkustofnun - samangegnsoun@samangegnsoun.is









