Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Íslenska gámafélagið hefur endurvinnslu á gleri

Glersandur í lófa

Íslenska gámafélagið framleiðir nú glersand og glermöl úr endurnýttu hráefni.

Umhverfis- og orkustofnun hefur gefið út ráðgefandi álit þess efnis að glerumbúðaúrgangur hætti að vera „úrgangur“ þegar hann hefur farið í gegnum endurnýtingaraðgerð fyrirtæksins.

Draga úr álagi á auðlindir

Með því að vinna vörur úr úrgangi frekar en úr nýju hráefni er að draga úr álagi á auðlindir. Með tilkomu afurðanna úr glerinu er hægt að minnka efnistöku úr náttúrunni, til dæmis úr sandnámum eða ám.

Tómar glerumbúðir í poka

Íslenska gámafélagið framleiðir nú glersand og möl úr gömlum umbúðum.

Hægt að nýta á ýmsa vegu

Glersandinn og glermölina er hægt að nýta á ýmsa vegu í stað annarra steinefna, til dæmis sem íblöndunarefni í malbiksframleiðslu.

Endurnýtingin á glerúrganginum sem álitið fjallar um er skilgreint sem endurvinnsla. Verið er að endurvinna úrgangsefni í vöru til notkunar í öðrum tilgangi en upprunalegum.

Álit Umhverfis- og orkustofnunar er unnið í samræmi við reglugerð um endurnýtingu úrgangs nr. 1078/2015.

Fleiri fréttir

Skoða

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800