Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Leiðrétting: Upplýsingar um efnafræðilegt ástand vatnshlotsins Seyðisfjarðar

Snow-covered mountains overlook a colorful coastal village

Rangar upplýsingar birtust um efnafræðilegt ástand vatnshlotsins Seyðisfjarðar (102-1322-C) í vatnavefsjá þann 26. ágúst 2026. Þar kom fram að efnafræðilegt ástand vatnshlotsins væri slæmt, sem er ekki rétt. Hið rétta er að efnafræðilegt ástand vatnshlotsins er metið gott. 

Mistök urðu til þess að vatnshlotið birtist í slæmu efnafræðilegu ástandi. Ástandsmatið hefur nú verið leiðrétt.  

Þau efni sem notuð eru til grundvallar efnafræðilegu ástandi strandsjávarhlota kallast forgangsefni og er eitt þeirra plöntuvarnarefnið díkófól.  Mistök urðu við úrvinnslu gagna og díkófól var rangt metið. Efnið fannst ekki í vatnshlotinu (sjá niðurstöður mælinga).

Díkófól er virkt efni sem áður var notað í plöntuverndarvörum. Það hefur ekki verið leyft í slíkum vörum í ESB síðan 2008. Engar plöntuverndarvörur á markaði á Íslandi innihalda díkófól. 

Fleiri fréttir

Skoða
4. september 2026
Hleðslustöðvum á landsbyggðinni fjölgað um 21
Loftslags- og orkusjóður hefur lokið úthlutun styrkja sem miða að því að þétta net hleðslustöðva fyrir rafbíla. Markmiðið er að tryggja að hvergi sé meira en 100 km á milli hleðslustöðva á þjóðvegum og að hraðhleðslustöð sé að finna í hverju einasta þéttbýli á landinu. Átakið er liður í sértækum aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna stríðsátaka við Persaflóa og hækkandi olíuverðs. Markmiðið er að gera sem allra flestum Íslendingum kleift að slíta sig frá eldsneytisdælunni og keyra um á hreinni íslenskri orku í stað innflutts jarðefnaeldsneytis. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra:  „Við afnámum vörugjöld af rafbílum í upphafi árs og nú snarfjölgum við hleðslustöðvum vítt og breitt um landið, eyðum þannig skallablettunum í hleðslunetinu og vinnum gegn hleðslukvíða. Skilaboðin eru þessi: Núna er rétti tíminn til að skipta yfir á rafmagnsbíl. Með því að skipta óhreinu innfluttu eldsneyti út fyrir íslenska orku spörum við tugmilljarða gjaldeyri, styrkjum orkusjálfstæði Íslands og verjum heimilisbókhaldið fyrir ytri sveiflum sem við höfum enga stjórn á.“  Alls hljóta 17 verkefni víðs vegar um landið styrki, þar af 13 verkefni til uppsetningar á hleðslustöðvum í þéttbýli og fjögur til uppsetningar á þjóðvegakerfinu. Heildarupphæð styrkjanna er 151 m.kr.   Með átakinu fjölgar hleðslustöðvum á landsbyggðinni um samtals 21 og tenglum um 41 og alls staðar verður boðið upp á greiðslu með greiðslukorti án þess að app eða áskrift þurfi til.
1. september 2026
Raforkueftirlitið kallar eftir auknu gagnsæi á íslenskum raforkumarkaði
Raforkueftirlitið hefur sent frá sér leiðbeiningar til Landsnets og annarra aðila á íslenskum heildsöluorkumarkaði um afhendingu og birtingu upplýsinga. Eftirlitið telur að gildandi reglum um gagnsæi á raforkumarkaði hafi ekki verið framfylgt með fullnægjandi hætti hér á landi og að breyttar aðstæður kalli á úrbætur.  Aukin upplýsingagjöf Um er að ræða svokallaða Gagnsæisreglugerð ESB á orkumarkaði, sem hefur verið í gildi á Íslandi frá árinu 2020. Reglugerðin kveður meðal annars á um að upplýsingar um raforkuframleiðslu, notkun, bilanir, ótiltækileika framleiðslueininga, flutningskerfi og jöfnun skuli safnað og birtar opinberlega með samræmdum hætti. Markmið Markmiðið er að tryggja að markaðsaðilar hafi jafnan aðgang að mikilvægum upplýsingum og að íslenskur raforkumarkaður verði gagnsærri og fyrirsjáanlegri. Upplýsingaskylda vegna innherjaupplýsinga á grundvelli 20. gr. h. raforkulaga, sbr. REMIT, og upplýsingaskylda á grundvelli gagnsæisreglugerðarinnar eru ekki ein og hin sama, þótt ákveðið samspil sé þar á milli.  Samræmd upplýsingagjöf Samkvæmt reglugerðinni ber Landsneti að safna upplýsingum frá aðilum á orkumarkaði og birta þær á miðlægum upplýsingavettvangi ENTSO-E og í NUCS-kerfinu. Íslenski orkumarkaðurinn er hluti af innri markaði með raforku samkvæmt EES-samningnum og því þurfa upplýsingar að vera aðgengilegar með sama hætti og eftir sömu stöðlum og annars staðar á Evrópska efnahagssvæðinu. Raforkueftirlitið beinir því nú til Landsnets og aðaleigenda gagna, þar á meðal framleiðenda, stórnotenda og viðskiptavettvanga raforku, að hefja innleiðingu á breyttu verklagi og stöðluðum gagnaskilum. Aðilar eiga jafnframt að hefja samstarf um framkvæmd verkefnisins og tímaramma þess.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800