Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Námskeið í meðferð notendaleyfisskyldra plöntuverndarvara og útrýmingarefna

Að námskeiðinu loknu þarf að sækja um notendaleyfi til Umhverfis- og orkustofnunar.

Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands heldur námskeið í meðferð notendaleyfisskyldra plöntuverndarvara og útrýmingarefna dagana 19. febrúar til 12. mars 2026.  Námskeiðið verður kennt í fjarkennslu. Námskeiðið er fyrir þau sem hyggjast sækja um eða endurnýja notendaleyfi fyrir:

  • Plöntuverndarvörum í landbúnaði og garðyrkju, þar með talið garðaúðun
  • Útrýmingarefnum við eyðingu meindýra
  • Hvort tveggja af ofangreindu

Einnig er í boði að ljúka einungis námshluta fyrir ábyrgðaraðila í markaðssetningu notendaleyfisskyldra plöntuverndarvara og útrýmingarefna. Þessi kostur hentar aðilum sem starfa sinna vegna hyggjast taka að sér hlutverk ábyrgðaraðila hjá dreifingaraðila notendaleyfisskyldra vara.

Námskrá námskeiðsins byggist á ákvæðum í reglugerð um meðferð plöntuverndarvara og útrýmingarefna. Til þess að ljúka náminu þarf að standast próf í lok námskeiðsins.

Að námi loknu þurfa þau sem vilja öðlast réttindi til að kaupa og nota notendaleyfisskyldar plöntuverndarvörur og/eða útrýmingarefni að sækja um notendaleyfi til Umhverfis- og orkustofnunar. Dreifandi notendaleyfisskyldra vara skal tilnefna ábyrgðaraðila í gegnum Island.is.

Skráning og nánari upplýsingar um námskeiðið eru að finna á heimasíðu Endurmenntunar Landbúnaðarháskóla Íslands.

Umsóknarfrestur er til 13. febrúar 2026.

Fleiri fréttir

Skoða
17. febrúar 2026
Slitið malbik veldur mikilli svifryksmengun
Mikil svifryksmengun mældist á höfuðborgarsvæðinu þann 16. febrúar 2026. Styrkur grófs svifryks fór víða yfir heilsuverndarmörk. Mestur styrkur mældist við Grensásveg. Hæsta klukkustundarmeðaltal á grófu svifryki (PM10) var 475 µg/m³ og sólarhringsmeðaltalið var 153 µg/m³. Við Dalsmára í Kópavogi mældist sólarhringsmeðaltalið 99 µg/m³. 11 sinnum yfir heilsuverndarmörk á Grensásvegi Heilsuverndarmörk fyrir gróft svifryk eru 50 µg/m³ að meðaltal fyrir heilan sólarhring. Ekki má fara oftar en 35 sinnum á ári yfir þau mörk. Það sem af er ári hefur svifryksmengun farið 11 sinnum yfir mörkin á Grensásvegi. Algengt á þessum árstíma Í meðalári mælast hæstu svifryksgildi oftast í febrúar og mars. Á þessum árstíma er stærstur hluti svifryksins malbiksryk sem verður til við slit á vegyfirborði. Það er að stærstum hluta af völdum nagladekkja. Þurrt veður og úrkomuleysi auka líkur á háum styrk. Rykbinding og götusópun Síðustu vikur hafa verið óvenju snjóléttar og götur hafa verið rykbundnar talsvert oftar en venjulega. Birgðir af rykbindiefni kláruðust því fyrr en áætlað var. Von er á nýrri sendingu til landsins í lok vikunnar. Það er erfitt að sópa götur í frosti. Um mánaðarmótin janúar-febrúar kom veðurgluggi með hlýindum sem var nýttur til að sópa götur. Vegagerðin sópaði þá helstu þjóðvegi í þéttbýli á höfuðborgarsvæðinu. Reykjavíkurborg sópaði á sama tíma allar þær götur sem má sjá á meðfylgjandi korti. Í mikill umferð þegar um 40% bíla eru á nagladekkjum er slitið malbik hins vegar fljótt að safnast upp aftur í vegköntum. Mynd: Götur sem eru rauðmerkar lét Reykjavíkurborg sópa um mánaðarmótin janúar-febrúar. Götur sem Vegagerðin sópaði eru ekki merktar inn. Það eru: Miklabraut/Hringbraut, Kringlumýrarbraut, Hafnarfjarðarvegur, Sæbraut og Reykjanesbraut að Hvaleyrarholti. Ráðleggingar til almennings Mengun er mest við stórar umferðaræðar en lækkar hratt með fjarlægð frá götu. Þar munar um hverja tíu metra sem farið er frá götu og í um 200 metra fjarlægð er mengun talsvert mikið minni en við götubrún. Fólki sem er viðkvæmt fyrir loftmengun er bent á að: Fylgjast með loftgæðaupplýsingum á loftgaedi.is. Takmarka útiveru nálægt umferðarþungum götum þegar mengun er mikil. Velja frekar gönguleiðir og útivistarsvæði fjarri helstu umferðaræðum.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800