Nemendur í HR leysa gagnaverkefni fyrir Umhverfis- og orkustofnun

Umhverfis- og orkustofnun og Háskólinn í Reykjavík tóku þátt í skemmtilegu samstarfsverkefni á dögunum. Nemendur í tölvunarfræði og verkfræði fengu raunverulegt gagnaverkefni frá Umhverfis- og orkustofnun sem þau þurftu að leysa.
Verkefnið fólst í því að greina tækifæri til betrumbóta í hönnun á gagnagrunni sem tengist dreifikerfi með raforku. Nemendurnir þurftu einnig að leysa ákveðnar fyrirspurnir sem grunnurinn átti að geta gert.
Verkefnið var lokaverkefni í áfanganum Gagnasafnsfræði.
Átta hópar í forritunarkeppni
Nemendurnir höfðu einnig kost á því að taka þátt í keppni þar sem besta lausnin var verðlaunuð. Átta hópar skráðu sig til leiks með fjórum nemendum í hverjum hóp.
„Okkur þótti rosalega gaman að taka þátt í verkefni sem tengist ekki bara náminu heldur líka atvinnulífinu og gaman að kynnast svona raunverulegum verkefnum“ sagði Helgi Espel Lopez nemandi úr sigurliðinu.
Í sigurliðinu voru auk Helga þeir Andri Már Kristjánsson, Arnór Steinn Leifsson og Baldur Máni Pálmason.

Kynning á verkefnunum í keppninni og verðlaunaafhending fór fram í HR þann 10. apríl 2026.
Dýrmætt að fá ferskar hugmyndir
Flest verkefnanna voru mjög vel unnin að mati dómnefndar. Hún var skipuð Bjarka Smára Smárasyni, sérfræðingi í stafrænni þróun hjá Umhverfis- og orkustofnun, og Hjörvari Grétari Steinssyni, sviðsstjóra á sviði fjármála og stafrænnar þróunar.
„Það er mjög dýrmætt fyrir okkur að fá ferskar hugmyndir frá nemendunum og niðurstöðurnar munu nýtast okkur til að halda áfram að bæta okkar gagnagrunna“ sagði Bjarki Smári.
Sigurliðið hlaut sameiginleg verðlaun frá Umhverfis- og orkustofnun og Háskólanum í Reykjavík.









