Jarðborar þurfa framvegis starfsleyfi frá Umhverfis- og orkustofnun

Breyting á lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, sem tók gildi þann 27. mars 2026, felur í sér breytingar á regluverki um starfsemi jarðborana hér á landi.
Með breytingunni er kveðið á um að jarðborar skuli framvegis háðir starfsleyfi fyrir hvern bor og þann búnað sem honum fylgir, sem veitt er af Umhverfis- og orkustofnun.
Fyrir gildistöku þessarar lagabreytingar bar borunarfyrirtækjum að sækja um starfsleyfi vegna hverrar einstakrar framkvæmdar til viðkomandi heilbrigðisnefndar. Með hinni nýju breytingu er reynt að einfalda og samræma leyfisveitingarferlið og færa eftirlit til Umhverfis- og orkustofnunar.
Þegar fyrirtæki hefur öðlast starfsleyfi fyrir jarðbor, skal tilkynna Umhverfis- og orkustofnun hverja framkvæmd fyrir sig áður en framkvæmd hefst, þar sem fram koma upplýsingar um fyrirhugaða starfsemi, staðsetningu hennar og áætlaðan verktíma.









