Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Nýtt kerfi fyrir gagnaskil vegna borholna

Borhola við Námafjall

Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið í notkun nýtt kerfi fyrir gagnaskil vegna borholna. Gagnaskil með tölvupósti og öðrum sambærilegum leiðum verða lögð af.

Ef þú berð ábyrgð á því að skila inn borholugögnum þarftu að sækja um aðgang að kerfinu.

Þegar þú sækir um aðgang er mikilvægt að þú sendir inn skrár um þær borholur sem þú berð ábyrgð á. Þannig er auðveldlega hægt að tengja þig við þær í kerfinu.

Eftir að umsóknin hefur verið móttekin höfum við samband við þig til að veita þér aðgang að nýja kerfinu.

Tengt efni

Fleiri fréttir

Skoða
27. janúar 2026
Stjórnvaldssekt lögð á þrotabú Fly Play hf.
Umhverfis- og orkustofnun hefur lagt stjórnvaldssekt á þrotabú Fly Play hf. að upphæð 2.347.677.600 krónur. Sektin er lögð á þar sem engum losunarheimildum var skilað fyrir tilskilinn frest vegna losunar frá starfsemi Fly Play hf. á árinu 2024. Heildarlosun Fly Play hf. á árinu 2024, samkvæmt vottaðri losunarskýrslu félagsins, var 164.865 tonn CO₂. Félaginu bar því að standa skil á 164.865 losunarheimildum vegna losunar á árinu 2024, fyrir 30. september 2025, en eitt tonn af CO₂ jafngildir einni losunarheimild. Fjárhæð stjórnvaldssektarinnar er lögbundin og samsvarar 100 evrum í íslenskum krónum vegna hverrar losunarheimildar sem ekki er staðið skil á. Miðað er við viðmiðunargengi Seðlabanka Íslands þann 30. september 2025. Greiðsla sektarinnar hefur ekki áhrif á skyldu til að standa skil á losunarheimildum vegna losunar frá starfsemi Fly Play hf. á árinu 2024. Um ákvörðunina Ísland er aðili að viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir sem miðar að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá iðnaði, flugi og skipaflutningum. Stjórnvaldssektin var lögð á í samræmi við 1. mgr. 30. gr. laga nr. 96/2023 um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.   Þrotabú Fly Play hf. getur skotið ákvörðun um álagningu sektarinnar i til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins innan þriggja mánaða frá móttöku hennar.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800