Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Svansdagar 2026: Aldrei meira framboð af Svansvottuðum vörum og þjónustu

Fyrirtækið Tandur hlaut Svansvottun fyrir fjórar vörur í flokki snyrtivara vorið 2026.

Svansdagar verða haldnir í þriðja sinn 23.-30. september 2026.

Markmið Svansdaga er að gera Svansvottaðar vörur, þjónustu og byggingar sýnilegri og auðvelda fólki að velja lausnir sem uppfylla strangar kröfur fyrir heilsu, umhverfi og gæði.

Framboðið af Svansvottuðum valkostum er fjölbreytt; allt frá hreinsiefnum, pappírsvörum og sápum, til prent- og ræstiþjónustu, mötuneyta og byggingaframkvæmda.

Áreiðanlegar umhverfisvottanir skipta máli

Niðurstöður kannana hafa sýnt að:

  • 99% Íslendinga þekkja Svansmerkið.
  • 91% treysta því að Svansvottuð vara/þjónusta sé góður kostur fyrir umhverfið.
  • 87% segja að Svansvottun hjálpi þeim að velja umhverfisvænni kosti.

Á sama tíma segjast 83% vera þreytt á að vörur séu markaðssettar „grænar“ án skýringa. Áreiðanlegar umhverfisvottanir skipta því verulegu máli.

Þessi græna þreyta var kveikjan að fyrstu Svansdögunum.

Það er þörf á því að lyfta Svansvottuðum vörum og þjónustu upp og hjálpa almenningi að velja umhverfisvænni kosti. Þeir eru einnig tækifæri fyrir fyrirtæki, stofnanir og aðra innkaupaaðila til að skoða hvernig hægt er að taka sjálfbærari ákvarðanir í rekstri án þess að fórna gæðum eða virkni.

Fleiri fréttir

Skoða
22. september 2026
Nýjar tölur yfir losun gróðurhúsalofttegunda
Heildarlosun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi dróst saman um 3,9% milli 2024 og 2025. Losunin var 10,6 milljón tonn af CO₂-ígildum (CO₂-íg.) árið 2025 og hefur aukist um 2,0% frá árinu 1990. Losun Íslands má skipta í þrjá meginflokka: Samfélagslosun, landnotkun og staðbundin iðnaður (ETS). Samfélagslosun Samfélagslosun Íslands dróst saman um 2,7% á milli 2024 og 2025. Hún var 2,8 milljón tonn CO₂-íg árið 2025. Umfangsmestu losunarflokkarnir voru vegasamgöngur, landbúnaður og fiskiskip. Gert er ráð fyrir að samdráttarkrafa Íslands í skuldbindingum gagnvart ESB verði að draga úr samfélagslosun um 41% árið 2030, miðað við árið 2005. Núgildandi krafa er 29%. Framreikningar sýna að Ísland standist líklega skuldbindingar fyrir tímabilið 2021-2025 þegar tekið er tillit til sveigjanleika milli skuldbindingarkerfa. Fyrir tímabilið 2026-2030 er hins vegar ólíklegt að Ísland standist skuldbindingar sínar, þrátt fyrir slíkan sveigjanleika. Áætlaður samdráttur í losun er um 21% árið 2030, miðað við losun ársins 2005. Tækifæri til samdráttar liggja í því að ráðast í frekari aðgerðir í loftslagsmálum. Það er hægt með því að fylgja eftir aðgerðum sem þegar eru til umræðu ásamt því að finna nýjar leiðir til samdráttar. Ef Ísland nær ekki skuldbindingum sínum ber að greiða fyrir það sem upp á vantar með kaupum á losunarheimildum frá öðrum ríkjum. Landnotkun Losun frá landnotkun var 6,1 milljón tonn CO₂-íg. árið 2025 og hefur dregist saman um tæp 9,1% frá 1990. Meirihluti losunar frá landnotkun stafar af framræstu votlendi. Framreikningar sýna samdrátt í losun frá landnotkun yfir spátímabilið, vegna aukinnar endurheimtar votlendis, vaxandi bindingar í skóglendi og aukinnar landgræðslu. Útlit er fyrir að Ísland muni standast skuldbindingar sínar fyrir tímabilið 2021-2025. Staðbundinn iðnaður (ETS) Losun frá staðbundnum iðnaði á Íslandi (aðallega ál- og kísilver) sem fellur undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS) var 1,7 milljón tonn CO₂-íg. árið 2025 og hefur aukist um 97% frá árinu 2005. Losunin dróst saman um 11% frá árinu 2024 aðallega vegna bilunar hjá Norðuráli og rekstrarstöðvunar PCC Bakka. Samdráttur hefur átt sér stað í viðskiptakerfinu í ESB. Með þátttöku í kerfinu er ekki um að ræða beinar samdráttarkröfur fyrir rekstraraðila á Íslandi.  Umhverfis- og orkustofnun skilaði nýlega til Evrópusambandsins bráðabirgðatölum um losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2025. Skilin eru unnin í nánu samstarfi við Land og skóg sem ber ábyrgð á landnotkunarhluta bókhaldsins.
4. september 2026
Hleðslustöðvum á landsbyggðinni fjölgað um 21
Loftslags- og orkusjóður hefur lokið úthlutun styrkja sem miða að því að þétta net hleðslustöðva fyrir rafbíla. Markmiðið er að tryggja að hvergi sé meira en 100 km á milli hleðslustöðva á þjóðvegum og að hraðhleðslustöð sé að finna í hverju einasta þéttbýli á landinu. Átakið er liður í sértækum aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna stríðsátaka við Persaflóa og hækkandi olíuverðs. Markmiðið er að gera sem allra flestum Íslendingum kleift að slíta sig frá eldsneytisdælunni og keyra um á hreinni íslenskri orku í stað innflutts jarðefnaeldsneytis. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra:  „Við afnámum vörugjöld af rafbílum í upphafi árs og nú snarfjölgum við hleðslustöðvum vítt og breitt um landið, eyðum þannig skallablettunum í hleðslunetinu og vinnum gegn hleðslukvíða. Skilaboðin eru þessi: Núna er rétti tíminn til að skipta yfir á rafmagnsbíl. Með því að skipta óhreinu innfluttu eldsneyti út fyrir íslenska orku spörum við tugmilljarða gjaldeyri, styrkjum orkusjálfstæði Íslands og verjum heimilisbókhaldið fyrir ytri sveiflum sem við höfum enga stjórn á.“  Alls hljóta 17 verkefni víðs vegar um landið styrki, þar af 13 verkefni til uppsetningar á hleðslustöðvum í þéttbýli og fjögur til uppsetningar á þjóðvegakerfinu. Heildarupphæð styrkjanna er 151 m.kr.   Með átakinu fjölgar hleðslustöðvum á landsbyggðinni um samtals 21 og tenglum um 41 og alls staðar verður boðið upp á greiðslu með greiðslukorti án þess að app eða áskrift þurfi til.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800