Umhverfis- og orkustofnun hefur móttekið umsókn Samherja fiskeldis ehf. um endurnýjun starfsleyfis fyrir áframhaldandi starfsemi á landeldi bleikju í áframeldi á Stóru-Vatnsleysu, Vogum, Vatnsleysuströnd.
Umhverfis- og orkustofnun hefur farið yfir umsóknina og metið hana fullnægjandi. Á næstunni verður unnin tillaga að nýju starfsleyfi og verður hún auglýst opinberlega í fjórar vikur.
Öllum gefst tækifæri til að koma með athugasemdir á auglýsingatíma áður en ákvörðun um útgáfu á starfsleyfinu verður tekin.





