Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Útgáfa á starfsleyfi fyrir Samherja fiskeldi ehf. á Reykjanesi

Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi fyrir Samherja fiskeldi ehf. á Reykjanesi fyrir landeldi á laxfiskum. Tillaga að starfsleyfi var auglýst á tímabilinu 2. júní til og með 1. júlí sl. og hægt var að senda inn athugasemdir vegna hennar á sama tímabili. Engar athugasemdir bárust á auglýsingatíma.

Aftast í starfsleyfinu fylgir greinargerð þar sem farið er yfir málsmeðferðina og tekin afstaða til niðurstöðu umhverfismats, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800