Raforkuöryggi
Öruggt aðgengi að rafmagni er grundvallarþörf fyrir samfélagið allt og raforkukerfið gegnir afar mikilvægu hlutverki við að sjá samfélaginu fyrir stöðugu framboði raforku.
Orkubúskapur og raforkukerfi Íslands eru einstök að mörgu leyti með tilliti til raforkuöryggis:
- Ísland er eyja og raforkukerfið þarf því að vera algerlega sjálfbært um raforku. Flest önnur lönd Evrópu eru hins vegar með samtengd raforkukerfi.
- Við reiðum okkur að stærstum hluta á vatnsorku. Framboð vatns er talsvert mismunandi milli ára og er vatni því safnað í miðlunarlón til að minnka líkur á vatnsorkuskorti. Aukist eftirspurn eftir raforku hratt þarf að gera ráðstafanir svo að ekki gangi of hratt á vatnsforðann.
- Háspennulínur eru útsettar fyrir náttúruöflunum og það er krefjandi verkefni að tryggja örugga afhendingu raforku um allt land, óháð veðri og eldsumbrotum.
Hugtakið raforkuöryggi er skilgreint í raforkulögum:
„Raforkuöryggi felst í að notendur hafi aðgang að raforku þegar hennar er þörf og þar sem hennar er þörf, með hliðsjón af almennri stefnumörkun stjórnvalda á hverjum tíma og skilgreindum áreiðanleika og gæðum.“
Eftirlit
Eftirlit með raforkuöryggi er á hendi Raforkueftirlitsins.
Í 1. gr. raforkulaga nr. 65/2003 er lýst markmiðum laganna, þar á meðal að tryggja fullnægjandi raforkuöryggi, hagsmuni neytenda og neytendavitund á raforkumarkaði. Í 24. gr. laganna kemur fram að eftirlit samkvæmt lögunum, að undanskildum verkefnum tengdum virkjunarleyfum, er falið Raforkueftirlitinu. Raforkueftirlitið hefur því það mikilvæga hlutverk að hafa eftirlit með raforkuöryggi þjóðarinnar.
Raforkuöryggi er fólgið í mörgum ólíkum þáttum og hefur Raforkueftirlitið skilgreint nánari viðmið svo að hægt sé að setja mælanleg markmið. Mælanleg markmið eru nauðsynleg til að hægt sé að hafa virkt og gagnsætt eftirlit með raforkuöryggi.
Viðmið um fullnægjandi raforkuöryggi
Við eftirlit með raforkuöryggi notar Raforkueftirlitið eftirfarandi viðmið fyrir fullnægjandi raforkuöryggi til skemmri og lengri tíma:
- Næstu fimm til tíu ár sé nægt framboð orkukosta, sem ákvarðast út frá umhverfislegum, efnahagslegum og samfélagslegum sjónarmiðum og orkuþörf vegna orkuskipta.
- Framleiðslu- og flutningsgeta geti mætt áætlaðri aukningu í eftirspurn næstu tvö til fimm ár.
- Framleiðsluöryggi til eins árs, það er að fyrir hendi séu allir innviðir og það skipulag sem telst nauðsynlegt til að tryggja rekstur næsta árið og mæta breytilegu álagi og náttúrulegum sveiflum, til dæmis í vatnsbúskap, rekstrarstöðvunum og svo framvegis.
- Rauntímaöryggi, það er að sú framleiðslu- og flutningsgeta sem þegar er til staðar nýtist ávallt til að anna eftirspurn í rauntíma. Í því felst einkum að stjórnstöð flutningskerfisins sé ávallt í stakk búin að bregðast við álagsþörf í rauntíma með skilvirkum verkferlum og aðgengi að reiðuafli. Þá eru einnig metnar líkur á aflskorti, það er getu raforkukerfisins til að anna eftirspurn þær stundir þegar raforkunotkun er mest, til dæmis á annasömum dögum um hávetur.
Tvö minnisblöð um raforkuöryggi voru gefin út árið 2024. Þau eru aðgengileg undir Raforka á síðunni Bæklingar og skýrslur á vef Orkustofnunar.
Raforkuspá
Við mat á raforkuöryggi er byggt á raforkuspá um eftirspurn eftir raforku, sem tekur tillit til orkuþarfar vegna orkuskipta almennra notenda.
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





