Hljóð og heyrn
Hljóð og hávaði
Hljóð er bylgjuhreyfing í lofti. Eðlisfræðilega er enginn munur á hávaða og hljóði en frá sálrænu sjónarhorni er hljóð upplifun. Hávaði er skilgreindur sem óæskilegt eða skaðlegt hljóð.
Hávaði er talinn eitt af stærstu heilbrigðisvandamálum nútímans. Þótt hávaði sé ekki lífshættulegur getur hann haft mikil áhrif á heilsu okkar og lífsgæði. Áhrifin fara eftir því af hvaða toga hávaðinn er, tíðnisviði hans og styrk, hvernig hann breytist með tímanum og á hvaða tíma sólarhringsins við heyrum hann.
Mælieining fyrir hljóð er desíbel (dB), sem er lógaritmískur kvarði. Þriggja dB hækkun á hljóðstigi jafngildir tvöföldun á styrk þess. Til að taka tillit til breytilegrar næmni mannseyrans fyrir mismunandi tíðni hljóðs er beitt ákveðinni síu við mælingar og þá er talað um dB(A). Venjulegt samtal getur verið um 60 dB. Fari hávaði yfir ákveðin mörk getur hann valdið heyrnarskemmdum. Hættumörk eru talin vera við 80–85 dB jafngildishljóðstig eða 120–130 dB við styttri hljóðtoppa. Hættan eykst með auknum hljóðstyrk og þeim tíma sem dvalið er í hávaða.
Áhrif hávaða á heilsu
Hávaði dregur mjög úr lífsgæðum. Hann getur valdið varanlegum heyrnarskaða og eyrnasuði, truflað svefn og hvíld, dregið úr málskilningi og námsgetu og valdið streitu.
Heyrnarskerðing er algengasta afleiðing hávaða og algengasti óafturkræfi vinnuskaðinn.
Hávaði getur breytt eðlislægu svefnmynstri. Svefntruflanir geta meðal annars leitt til þreytu, streitu, depurðar og minni framkvæmdagetu. Streita eykur framleiðslu streituhormóna, hækkar blóðþrýsting og eykur hættu á hjarta- og æðasjúkdómum.
Börn og hávaði
Rannsóknir sýna að mikill hávaði hefur neikvæð áhrif á málþroska og náms- og lestrargetu barna. Börn eiga erfiðara en fullorðnir með að greina talað mál í hávaða og ná ekki sömu hæfni og fullorðnir fyrr en við 13–15 ára aldur. Talið er að rekja megi stóran hluta lestrarörðugleika barna til hávaða í kennslustofunni.
Væg heyrnardeyfa hjá börnum og fullorðnum dregur verulega úr hæfni til að skilja mál og heyra hátíðnihljóð (6.000–8.000 Hz), einkum þar sem hljómburður er lélegur. Margir óraddaðir samhljóðar eru á þessu tíðnisviði og talið er að 60% af getu okkar til að heyra rétt, og þar með skilja það sem sagt er, byggist á því að heyra samhljóða en aðeins 5% á getunni til að heyra sérhljóða.
Bandarískar rannsóknir hafa leitt í ljós að um 70% framhaldsskólanema hafa forstigseinkenni varanlegrar heyrnardeyfu. Einnig fjölgar ört þeim unglingum sem þjást af eyrnasuði (tinnitus) og segja margir þeirra að það hafi byrjað eftir að þeir hlustuðu á háværa tónlist. Ætla má að ástandið hér á landi sé ekki mjög frábrugðið.
Hvað er til ráða?
Á vinnustöðum er reynt að draga úr hávaða véla og tækja með ýmsum ráðum og starfsfólki eru útvegaðar heyrnarhlífar þar sem jafngildishávaði er yfir 85 dB. Reynt er að draga úr hávaða frá umferð með hljóðmönum og bættu skipulagi. Unnið hefur verið að því að framleiða hljóðlátari bíla, flugvélar og önnur tæki en fjölgun þeirra dregur úr gagnsemi þessara aðgerða.
Mikilvægt er að gæta að hljóðvist húsnæðis strax á hönnunarstigi og fylgja því eftir að rétt sé staðið að málum, því erfitt og kostnaðarsamt er að bæta úr göllum eftir á. Til er hljóðflokkunarstaðall fyrir húsnæði sem eðlilegt er að nota við hönnun.
Í eldra húsnæði, skólum og leikskólum
- Setja hljóðdempandi efni í loft og á veggi.
- Nota frekar mjúk gólfefni en hörð og millilag þar sem hörð gólfefni eru notuð.
- Fækka börnum í kennslustofum, breyta dagskrá, skipta bekkjum í minni hópa og nýta allt húsnæðið.
- Nota mottur þar sem leikið er með hávær og hörð leikföng og setja tappa undir borð- og stólfætur.
- Velja vel hönnuð húsgögn sem ekki valda miklum hávaða.
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins





