Sendinefnd frá Taívan kynnti sér íslenska reynslu af jarðhita

Fimmtán manna sendinefnd frá National Science and Technology Council (NSTC) í Taívan heimsótti Umhverfis- og orkustofnun í apríl 2026. Markmið var að kynna sér íslenska reynslu af nýtingu jarðhita, stjórnsýslu, rannsóknum og tæknilegri þróun.
Íslensk reynsla í brennidepli
Á fundinum var fjallað um íslenska reynslu af jarðhitanýtingu, hlutverk stjórnvalda og stofnana, rannsóknir, gagnasöfnun, leyfisveitingar, eftirlit og auðlindastýringu. Sérstök áhersla var lögð á að árangur Íslands byggist á góðu samspili stefnumótunar, rannsókna og samstarfs opinberra aðila, fyrirtækja og vísindasamfélagsins.
Rætt var um hvernig leyfisveitingar og umhverfisvernd spila saman.
Einnig var fjallað um reynsla Umhverfis- og orkustofnunar af alþjóðlegu jarðhitasamstarfi innan Uppbyggingarsjóðs EES, meðal annars í Póllandi, Rúmeníu og Búlgaríu. Eftirspurn eftir slíkri þekkingarmiðlun hefur aukist, ekki síst eftir orkukreppuna í Evrópu, þar sem jarðhiti er talinn mikilvægur valkostur til að styrkja orkuöryggi og styðja við loftslagsmarkmið. Fram kom að samstarfið hefur þegar skilað góðum árangri, meðal annars í Póllandi.
Aukinn áhugi á jarðhita
Fulltrúar NSTC kynntu stöðu jarðhitaverkefna í Taívan, rannsóknaráherslur og framtíðaráform.
Fram kom að verkefnin í Taívan beinast meðal annars að jarðeðlisfræðilegum rannsóknum, þrívíddarlíkönum, bor- og vöktunartækni og mati á möguleikum djúpra og háhitakerfa. Til lengri tíma er stefnt að þróun djúpra jarðhitaborhola og útbreiðslu Enhanced Geothermal Systems og Advanced Geothermal Systems
Taívan vinnur að uppbyggingu jarðhitanýtingar sem hluta af orkuskiptum landsins og markmiðum um kolefnishlutleysi árið 2050.
NSTC er ríkisstofnun sem ber ábyrgð á að móta og samræma tækni- og vísindastefnu Taívans. Hún fjármagnar meðal annars rannsóknir og styður nýsköpun. Stofnunin leggur áherslu á lausnir á borð við jarðhita, vetni og kolefnisföngun. Hún stuðlar einnig að samstarfi milli háskóla, atvinnulífs og alþjóðlegra samstarfsaðila til að efla tæknilega þróun Taívans.
Áframhaldandi samstarf
Fundurinn skapaði góðan grundvöll fyrir áframhaldandi samtal um jarðhita, nýsköpun, orkuskipti og alþjóðlegt rannsóknasamstarf.
Lilja Ólafsdóttir, sviðsstjóri umhverfisgæða, tók á móti sendinefndinni fyrir hönd Gests Péturssonar forstjóra. Auk Lilju voru Baldur Pétursson, verkefnisstjóri í teymi alþjóðamála, og Hörn Halldóru- og Heiðarsdóttir, sérfræðingur teymi orkuskipta og orkunýtni, einnig þátttakendur í fundinum.

Baldur Pétursson fjallaði um reynslu Umhverfis- og orkustofnunar af alþjóðlegu jarðhitasamstarfi.









