Unnið að uppfærslu nokkurra sérvefa okkar. Þeir ættu að vera að fullu komnir upp innan skamms.

Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Úthlutun styrkja úr jarðhitaleitarátaki 2025

Ísafjörður

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur tilkynnt niðurstöður úr jarðhitaleitarátaki sem opnað var í vor. Markmið átaksins er að stuðla að aukinni nýtingu jarðhita til húshitunar á svæðum þar sem nú er notast við rafmagn eða olíu.

Alls bárust 48 umsóknir frá sveitarfélögum, orkufyrirtækjum og aðilum í þeirra umboði. Verkefnin voru fjölbreytt en heildarkostnaður verkefna sem sótt var um nam 6.093 m.kr. og sótt var um 4.082 m.kr. í styrki.

Alls hljóta 18 verkefni styrk:

  • 8 verkefni sem snúa að jarðhitarannsóknum
  • 8 verkefni sem tengjast uppsetningu varmadælna
  • 2 verkefni sem miða að uppbyggingu varmageymslna

Mögulegur ávinningur af verkefnunum er verulegur. Með frekari borunum, varmadælum og varmageymslum gæti allt að 80 GWh af vetrarraforku losnað á næstu árum. Þá gæti árangur í jarðhitaleit bætt við um 40 GWh.

Mat umsókna var í höndum Loftlags- og orkusjóðs í samvinnu við Umhverfis- og orkustofnun.

Skoða myndina í fullri stærð

Image

Fleiri fréttir

Skoða
14. ágúst 2026
Óskað eftir upplýsingum um fyrirhugaðar framkvæmdir og starfsemi 2028-2033 sem gætu haft áhrif á vatnshlot
Umhverfis- og orkustofnun óskar eftir upplýsingum um fyrirhugaðar framkvæmdir og starfsemi á tímabilinu 2028-2033 sem kunna að hafa áhrif á vatnshlot og umhverfismarkmið þeirra. Eingöngu er hér átt við framkvæmdir þar sem líkur eru á því að sækja þurfi um heimild til breytingar vatnshlots skv. 18 gr. laga nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Upplýsingarnar verða nýttar við endurskoðun vatnaáætlunar Íslands. Framkvæmda- og rekstraraðilar eru hvattir til að senda inn upplýsingar um verkefni sem eru á undirbúnings-, hönnunar- eða áætlunarstigi, jafnvel þótt endanleg útfærsla liggi ekki fyrir eða óvíst sé hvort af framkvæmdinni verði. Mikilvægt fyrir gerð nýrrar vatnaáætlunar Umhverfis- og orkustofnun vinnur nú að endurskoðun vatnaáætlunar Íslands fyrir tímabilið 2028-2023. Áætlunin mun fara í opinbert 6 mánaða kynningarferli í lok árs 2026. Markmiðið með ofangreindri gagnaöflun er að fá sem besta yfirsýn yfir fyrirhugaðar framkvæmdir og umsvif sem munu líklega kalla á að sækja þurfi um heimild til breytingar vatnshlots á komandi árum. Endurskoðuð vatnaáætlun verður staðfest í byrjun árs 2028 samkvæmt lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Fyrsta vatnaáætlun tók gildi í apríl 2022 og gildir til 2027. Framkvæmdir sem geta haft áhrif á vatnshlot Þegar framkvæmdir eða starfsemi geta haft áhrif á vatnshlot þarf að meta hvort þær geti komið í veg fyrir að umhverfismarkmið vatnshlotsins náist. Gera þarf svokallað áhrifamat á vatnshlot áður en leyfi eru veitt fyrir framkvæmdir eða starfsemi. Þar er metið hvort framkvæmdin/starfsemin geti komið í veg fyrir að umhverfismarkmið vatnshlots náist eða valdið því að ástand þess versni. Umhverfismarkmið vatnshlota eru lagalega bindandi. Upplýsingar birtar með vatnaáætlun Þær upplýsingar sem framkvæmdaraðilar setja fram í eyðublaðinu verða birtar óbreyttar í viðauka við drög að vatnaáætlun 2028–2033. Stofnunin leggur áherslu á að framkvæmd þarf ekki að vera tilgreind í vatnaáætlun til að síðar sé hægt að sækja um heimild til breytinga á vatnshloti. Hins vegar getur verið ávinningur af því að verkefni komi fram í áætluninni þar sem almenningi gefst þá kostur á að kynna sér þau og koma sjónarmiðum sínum á framfæri á kynningartíma áætlunarinnar. Skilafrestur Skilafrestur er til og með 30. september 2026. Upplýsingum skal skilað í gegnum stafrænt eyðublað á vef Umhverfis- og orkustofnunar. Lagagrunnur Endurskoðun vatnaáætlunar fer fram samkvæmt lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Samkvæmt 20. gr. laganna skal meðal annars gera grein fyrir fyrirhuguðum framkvæmdum, sjálfbærum umsvifum og breytingum á vatnshlotum sem kunna að hafa áhrif á ástand vatns. Nánari upplýsingar Fyrir frekar upplýsingar er hægt að senda fyrirspurn á netfangið vatn@uos.is.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800