Unnið að uppfærslu nokkurra sérvefa okkar. Þeir ættu að vera að fullu komnir upp innan skamms.

Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Útgáfa á starfsleyfi Elkem Ísland ehf., Grundartanga

Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu starfsleyfis fyrir kísilver Elkem Ísland ehf., Grundartanga. Rekstraraðili hefur heimild til að framleiða allt að 190.000 tonn á ári af kísil og kísiljárni og allt að 45.000 tonn af kísilryki.

Tillaga að nýju starfsleyfi var auglýst á tímabilinu 17. júlí til og með 17. ágúst 2026 þar sem hægt var að koma með athugasemdir vegna hennar. Athugsemdir bárust frá einum aðila við auglýsta tillögu og er gerð grein fyrir þeim í greinargerð.

Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir aftast í starfsleyfinu, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Ákvörðun Umhverfisstofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998, um hollustu hætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðanefnd umhverfis- og auðlindamála.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800