Fjárfestingaráætlanir dreifiveitna

Dreifiveitur útbúa fjárfestingaráætlanir og senda Raforkueftirlitinu til yfirferðar. Það var fyrst gert árið 2023.

Fjárfestingaráætlunin skal sýna áætlaðar, sundurliðaðar árlegar fjárfestingar ásamt kostnaðaráætlun vegna þeirra yfir næstu fimm til tíu ár, auk markaðsgreiningar og kerfisgreiningar.

Tilgangurinn með áætluninni er að Raforkueftirlitið, viðskiptavinir dreifiveitna og aðrir hagaðilar hafi yfirsýn yfir heildarmyndina í fjárfestingum og núverandi stöðu dreifikerfisins. Áætlunin á einnig að gefa innsýn í greiningu á valkostum til að auka skilvirkni dreifikerfisins og takast á við orkuskipti.

Í fjárfestingaráætluninni á jafnframt að fjalla um aukna skilvirkni og nýtingu á sveigjanleika framboðs og eftirspurnar til að lækka eða fresta fjárfestingarþörf. Slík greining getur náð til einstakra tilvika þar sem stórir flöskuhálsar eru í kerfinu, svo sem stofnstrengir eða dreifistöðvar sem eru ekki að úreldast en gæti þurft að uppfæra vegna orkuskipta. Dæmi um sveigjanleika eru skerðanleg dreifing, rafgeymar, varaafl og notkunarsvörun. Notkunarsvörun getur til dæmis falist í verðhvötum til notenda um að minnka notkun á álagstímum eða í því að notendum sé greitt fyrir að minnka notkun þegar þörf er á.

Raforkueftirlitið notar fjárfestingaráætlunina ekki til að fá einstakar framkvæmdir til umsagnar heldur hefur hana til hliðsjónar við uppgjör tekjumarka og ræðir einstaka þætti við dreifiveitur ef þörf er á, til dæmis varðandi forgangsröðun með tilliti til raforkulaga og orkustefnu Íslands.

Fjárfestingaráætlanir

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800