Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Snyrtivörur

Veldu vel fyrir húðina og umhverfið

Snyrtivörur

Snyrtivörur eru ómissandi hluti af daglegu lífi og flestir nota margar tegundir á dag.

Það þarf að vanda valið því ýmsar snyrtivörur innihalda efni sem geta haft skaðleg áhrif á heilsu og umhverfi. Þetta eru til dæmis rotvarnarefni, ilmefni, litarefni eða önnur efni sem geta valdið ofnæmi.

Efnin finnast í vörum eins og til dæmis tannkremi, sjampói, handsápu og kremum en líka í andlitsfarða, þvotta- og snyrtivörum fyrir börn og húðflúrsvörum. Framleiðendur snyrtivara eru skyldugir að gefa upp innihaldsefni á umbúðum.

Hvað getum við gert?

Flestir nota margar snyrtivörur á hverjum degi. En það þarf að vanda valið því ýmsar snyrtivörur innihalda efni sem geta haft skaðleg áhrif á heilsu og umhverfi. Þetta eru til dæmis rotvarnarefni, ilmefni, litarefni eða önnur efni sem geta valdið ofnæmi.

Helstu ofnæmisvaldarnir eru rotvarnar- og ilmefni og ættu viðkvæmir að forðast þau. Framleiðendur snyrtivara eru skyldugir að gefa upp innihaldsefni á umbúðunum.

Hér þurfum við líka sérstaklega að minnast á hárlitunarefni, en bæði fastir litir og skollitir geta valdið ofnæmi eða haft önnur neikvæð áhrif á heilsu. Hver kannast ekki við yfirgnæfandi efnalyktina á hársnyrtistofum?

Nokkur góð ráð:

  1. Dragðu úr notkun snyrtivara eins og hægt er.
  2. Veldu umhverfisvottaðar vörur, til dæmis með Svaninum eða Evrópublóminu, án ilmefna. Þær taka bæði tillit til heilsu og umhverfis og standast strangar kröfur um efnainnihald. Þegar vottaðar vörur eru keyptar þarf ekki að hafa áhyggjur af því að þær innihaldi rotvarnarefni, ofnæmisvaka, efni sem geta verið hormónaraskandi eða séu ekki ákjósanleg í náttúrunni.
  3. Kauptu vörur (til dæmis sápur) í stærri umbúðum og fylltu á minni umbúðir sem þú átt fyrir. Einnig er hægt að draga úr umbúðanotkun með því að kaupa handsápu í stykkjum en ekki fljótandi. Hjá sumum hársnyrtistofum er til dæmis hægt að koma með gamla sjampóbrúsann og fá áfyllingu.
  4. Hægt er að kaupa margnota bómullarskífur til að hreinsa farða af í stað einnota.
  5. Veldu hársnyrtistofu sem notar náttúrulegri liti og síður skaðlega umhverfi og heilsu fólks.
  6. Hvattu hárgreiðslustofuna þína til að nota umhverfisvænni liti.
  7. Takmarkaðu notkun slíkra vara fyrir börn og notaðu eingöngu umhverfisvottaðar vörur.

Vörutegundir

Krem og sápur

Til eru kynstrin öll af kremum, sápum og sjampói eins og sjá má í hillum verslana. En þrátt fyrir fjölbreytnina og loforð framleiðanda um margs konar verkun þá eiga krem, sápur og sjampó það sameiginlegt að þau innihalda oft á tíðum efni sem geta verið skaðleg heilsu okkar. Þessi efni gefa vörunni ákveðna eiginleika eins og lykt eða áferð og rotvarnarefni tryggja góðan líftíma vörunnar. Framleiðendum ber skylda til að tilgreina innihaldsefni á umbúðum og því er hægt að sneiða hjá vörum sem innihalda skaðleg efni með því að kynna sér hver þau eru. Ekki hika við að spyrja afgreiðslufólkið ráða.

Hinn náttúrulegi ilmur af ungabarni er einstakur og algjör óþarfi að nota sápur, sjampó og krem daglega jafnvel þó um sé að ræða vörur sem ætlaðar eru börnum. Varast skal vörur með ilm- og rotvarnarefnum því ilmefnin geta valdið ofnæmi og rotvarnarefnin hormónaröskun. Ofnæmið lýsir sér oftast í ertingu í húð, útbrotum og öndunarerfiðleikum og ætti að leita læknis ef slík viðbrögð koma fram hjá barninu..

Almennar ráðleggingar:

  • Leitaðu eftir umhverfismerktum vörum, til dæmis með Svaninum og Evrópublóminu. Slíkar vörur taka bæði tillit til heilsu og umhverfis og standast strangar kröfur um efnainnihald.
  • Veldu ekki vörur sem innihalda efnið D5 (síloxan). Það gefur sjampói ákjósanlega áferð en er ofnæmisvaldandi.
  • Veldu ekki vörur sem innihalda rotvarnarefnin paraben. Paraben eru talin raska hormónajafnvægi í mönnum og dýrum. Gættu þess að snyrtivörur sem þú kaupir innihaldi ekki bönnuð paraben en þau eru ísóprópýl-, ísóbútýl-, fenýl-, bensýl- og pentýlparaben. Ef þú rekst á slíkar vörur láttu Umhverfis- og orkustofnun vita á ust@ust.is
  • Veldu ekki vörur sem innihalda musk-xýlen en það er ilmefni sem er ofnæmisvaldandi og brotnar mjög hægt niður í náttúrunni.
  • Spurðu afgreiðslufólkið ráða - það á að þekkja innihald vörunnar. Óskaðu eftir vörum án ilm- og rotvarnarefna, að minnsta kosti án ofangreindra efna.

Ráðleggingar vegna ungabarna:

  • Forðast að þvo ungabörnum með sápum. Húð barna er þunn og viðkvæm, þess vegna eru þau gjörn á að fá útbrot og exem vegna ertingar. Líkur á útbrotum og exemi eru meiri ef ilmefni og rotvarnarefni eru í sjampói, sápu og kremi sem notað er.
  • Forðast að smyrja húð barnsins með kremi. Í flestum tilvikum er ekki þörf á að bera krem á hana.
  • Kaupið krem og sápur án ilmefna því ilmefni valda oft ofnæmi. Á innihaldslista vöru kallast ilmefni oftast „parfume“, „parfum“ eða „aroma“. Svansmerktar vörur fyrir ungabörn mega ekki innihalda ilmefni en slíkt er þó leyfilegt fyrir eldri börn.

Sólarvörn

Blessuð sólin gleður en því miður geta geislar hennar valdið húðkrabbameini og því er mikilvægt að verja húðina. Það er hægt með því að hylja húðina, halda sig í skugga eða nota sólarvörn. Ber að hafa í huga að áhrif sólar magnast við endurkast geislanna frá snjó, sjó og vötnum. Ýmsar tegundir og gerðir af sólarvarnarkremum finnast á markaði og geta sum innihaldsefnin verið skaðleg heilsu og umhverfi.

Sólarvarnarstuðull (oft skammstafaður SPF fyrir Sun Protection Factor) segir til um hve vel sólarvörnin hindrar útfjólubláa geisla sólarinnar (UVA og UVB) en það eru þeir geislar sem eru skaðlegir húðinni. Því hærri SPF tala, því betri vörn og er nauðsynlegt að velja sólvörn sem ver húðina gegn bæði UVB og UVA geislum. Áður var talið að UVA geislar væru skaðminni en UVB en rannsóknir nú benda til þess að UVA geislar séu ekki síður hættulegir en UVB. Ástæðan er sú að UVA geislar komast dýpra inn í húðina en UVB geislar og geta þannig haft víðtækari áhrif, meðal annars á frumur ónæmiskerfisins (heimild: Vísindavefurinn). Einnig er mikilvægt að hafa í huga að engin sólvörn ver húðina 100% gegn útfjólubláum geislum sólar.

Athugið að ætíð er betra að nota sólarvörn sem inniheldur einhver óæskileg efni heldur en að láta húðina brenna! Ef eina sólarvörnin við hendina er þannig þá skaltu nota hana en fjárfesta síðan í nýrri sem uppfyllir neðangreind skilyrði við fyrsta tækifæri.

  • Veldu Svansmerkta vöru ef hún er í boði. Svansmerkt sólarvörn tekur tillit til heilsu og umhverfis því hún inniheldur sem minnst af skaðlegum efnum og er án ofnæmisvaldandi (svo sem ilmefni) og hormónaraskandi efna (svo sem paraben). Gættu þess að snyrtivörur sem þú kaupir innihaldi ekki bönnuð paraben en þau eru ísóprópýl-, ísóbútýl-, fenýl-, bensýl- og pentýlparaben
  • Veldu sólarvörn með sólarvarnarstuðli 15 (SPF 15) eða hærra sem ver húðina gegn bæði UVA og UVB geislum sólar. Börn ættu að nota sólvörn með sólvarnarstuðli 30 (SPF 30) eða hærri.
  • Taka skal fullyrðingum um að sólvarnir séu vatnsheldar með fyrirvara og bera á sig sólvörn aftur eftir böðun. Prófun í Danmörku á 6 gerðum sólvarna, með SPF á bilinu 30-50 og vatnsheldar samkvæmt upplýsingum á umbúðum, sýndu að 5 þeirra reyndust ekki að fullu vatnsheldar. Eftir eina ferð í vatn minnkaði vatnsheldnin niður fyrir 50% og SPF stuðullinn um 70-85%. Ein þessara sólvarna reyndist vera vatnsheld en í prófuninni kom í ljós að hún hafði lægri sólvarnarstuðul (SPF) en stendur á umbúðum hennar og inniheldur fleiri óæskileg efni en hinar sólvarnirnar (heimild: tímaritið Forbrugerrådet Tænk (152), júni 2014).
  • Veldu sólarvörn án ilmefna en þau geta valdið ofnæmi. Í innihaldslista vörunnar kallast ilmefni „parfume”, „parfum” eða „aroma”.
  • Veldu sólarvörn án rotvarnarefnanna parabena sem hafa sýnt hormónaraskandi áhrif í dýrum.
  • Veldu sólarvörn án UV geislavarnarefnisins 4-Methylbenzylidene camphor (4-MBC) sem einnig hefur sýnt hormónaraskandi áhrif í dýrum.
  • Berðu sólvörnina á þig áður en farið er út í sól svo að kremið nái að fara inn í húðina.
  • Notaðu það magn sólvarnar í hvert skipti sem ráðlagt er á umbúðunum. Annars er hætta á að sólvarnarstuðullinn lækki og vörnin verði minni en kemur fram á umbúðunum.

Svitalyktareyðir

Svitalyktareyðar hafa þá verkun að hemja vöxt baktería sem lifa í svita og/eða minnka svitamyndun. Þetta eru fjölbreyttur vöruflokkur sem getur innihaldið sömu efnin og krem eða tannkrem sem geta haft skaðleg áhrif á heilsu manna og umhverfi. Svitalyktareyðar innihalda oft ilmefni sem mörgum finnst ákjósanlegt til að yfirgnæfa svitalyktina. Hins vegar geta ilmefni valdið ofnæmi.

Tannkrem

Góð tannhirða er undirstaða góðrar tannheilsu og því mikilvægt að bursta tennurnar. Sum tannkrem innihalda þó efni sem ekki eru ætluð til að koma í veg fyrir holumyndun eða tannholdsbólgu. Hér má helst nefna rotvarnarefnið tríklósan sem hefur sýklaeyðandi áhrif. Notkun þess er umdeild þar sem það getur valdið því að bakteríur verði ónæmar fyrir sýklalyfjum.

Tannhvítun

Tannhvítun og tannhvítunarvörur

Tannhvítunarvörur eru snyrtivörur og um þær gildir því reglugerð nr. 577/2013 um snyrtivörur sem innleiðir reglugerð nr. 1223/2009 (EB) sama heitis.

Algengast er að virka efnið í tannhvítunarvörum sé vetnisperoxíð (hydrogen peroxide) eða önnur efni sem losa það og þá er yfirleitt um að ræða karbamíðperoxíð (carbamide peroxide). Hlutfallið milli þessara efna er almennt um 3:1 sem þýðir til dæmis að 15% karbamíðperoxíð er ígildi um það bil 5% vetnisperoxíðs. Dæmi um önnur efni sem notuð eru til tannhvítunar og losa vetnisperoxíð eru þalíð hexóník sýra (6-phthalmide-hexonic acid) og natríum perbórat (sodium perborate). Vetnisperoxíð gerir tennur hvítari með því að hvarfast við uppsafnaðan lit á yfirborði þeirra og líka lit sem er undir yfirborði þeirra svo sem í glerungi eða tannbeini.

Vörur til munnhirðu sem eru í sölu til almennings, þar með talið munnskol, tannkrem og vörur til tannhvítunar, mega ekki innihalda meira en 0,1 % af vetnisperoxíði eða ígildi þess. Ef innihald vetnisperoxíðs eða ígildi þess er á bilinu 0,1% - 6% mega eingöngu tannlæknar nota þessar vörur en með öllu er óheimilt að nota tannhvítunarvörur með hærri styrk.

Þegar tannlæknir framkvæmir tannhvítunaraðgerð skal fyrsta notkunin í hverri notkunarlotu eingöngu framkvæmd af honum sjálfum eða undir beinu eftirliti hans, ef jafngilt öryggisstig er tryggt. Eftir það er heimilt er að afhenda viðskiptavininum vöruna til þess að ljúka við notkunarlotuna. Mikilvægt er að hafa í huga að tannhvítunarefni geta verið skaðleg tönnum sem eru ekki í fullkomnu ástandi og ber tannlækni því ætíð að ganga úr skugga um það að tennur viðkomandi einstaklings þoli tannhvítunarmeðferð. Aldrei má nota tannhvítunarefni sem innihalda vetnisperoxíð í hærri styrk en 0,1%, eða ígildi þess, fyrir einstaklinga sem eru yngri en 18 ára.

Öll markaðssetning, notkun og sala snyrtivara til tannhvítunar sem ekki uppfyllir ofangreindar kröfur er ólögleg.

Tannkrem í sölu til almennings sem auglýst eru til hvítunar innihalda sjaldan vetnisperoxíð eða ígildi þess, heldur önnur efni sem einungis fjarlægja bletti á yfirborði tannanna. Þau breyta því ekki lit sem er undir yfirborði þeirra eins og vetnisperoxíðið gerir.

Rakstur

Það eru til ýmsar vörur til raksturs, hvort heldur sem á að nota þær á skeggið, fótleggina eða aðra líkamshluta. En það skiptir máli hvað er valið því sumar þessar vörur innihalda efni sem geta haft skaðleg áhrif á heilsu og umhverfið. Hér er bæði átt við raksápu og háreyðingarkrem.

  • Lestu innihaldslýsinguna í raksápu, vaxi og háreyðingarkremi áður en þú kaupir þær.
  • Veldu vörur án ilmefna.
  • Veldu vörur án bakteríudrepandi efnanna tríklósan og natríum bórats
  • Veldu vörur án rotvarnarefnanna paraben sem eru talin geta raskað hormónajafnvægi líkamans. Gættu þess að snyrtivörur sem þú kaupir innihaldi ekki bönnuð paraben en þau eru ísóprópýl-, ísóbútýl-, fenýl-, bensýl- og pentýlparaben
  • Þegar keypt er ný rakvél þá er sniðugt að spyrjast fyrir um tegund þar sem hægt er að fá nýja rafhlöðu ef sú sem fylgir vélinni skemmist.
  • Þegar keypt er skafa skal velja tegund þar sem hægt er að skipta um blað, en ekki henda heilli sköfu í hvert sinn sem blaðið verður bitlaust.
  • Til eru græjur sem brýna rakvélablöð.

Forðastu eftirfarandi rotvarnarefni sem geta valdið ofnæmi

  • Efni sem gefa frá sér formaldehýð
  • Methyldibromo glutaronitrile (aðeins í vörum sem eru skolaðar af, til dæmis raksápu)
  • Imidazolidinylurea/Diazolidinylurea.
  • Iodopropynylbutylcarbamat (IPBC).
  • Methylisothiazolinone og methylchloroisothiazolinone (Kathon).
  • Bromo-2-nitropropane-1,3-diol (bronopol).

Háreyðingarkrem geta innihaldið mörg af þeim efnum sem nefnd eru hér að ofan. Auk þess innihalda slík krem efni sem eiga að tryggja mjög hátt sýrustig en slíkt er nauðsynlegt til að fjarlægja hárin. Þessi efni geta verið slæm fyrir húðina og því er það góð regla að prófa kremið á litlu húðsvæði áður en það er notað í stórum stíl. Þannig er hægt að sjá hvernig húðin bregst við.

Hárlitur

Hægt er að skipta hárlitum í tvær gerðir; Fasta (permanent) liti þar sem litarefnið fer inn í hárið og ekki er hægt að þvo úr og skolliti sem lita hárið í lengri eða skemmri tíma en skolast burt eftir nokkra þvotta. Báðar þessar tegundir af hárlitum geta valdið ofnæmi, sem og augnabrúna- og augnháralitir og jafnvel strípuefni. Ljósar strípur (aflitun) geta auk þess innihaldið ætandi efni sem geta valdið skaða. Árið 2007 rannsakaði Evrópusambandið 46 hárlitunarefni og þar voru 10 þeirra metin mjög ofnæmisvaldandi, 13 ofnæmisvaldandi og 4 frekar ofnæmisvaldandi.

Það eru litarefnin sjálf í hárlitunum sem valda ofnæminu. Þetta eru efni eins og p-phenylene diamine (PPD) og efni sem líkjast PPD eins og toluene-2,5-diamine resorcinol, 4-amino-2-hydroxytoluene og p-aminophenol. Þessi efni eða hluti þeirra eru notuð í nær öllum hárlitum, augnabrúna- og augnháralitum og jafnvel strípuefnum. Resorcinol er mest notaða litarefnið í hárlitum og er það á lista Evrópusambandsins yfir efni sem sýnt hafa hormónaraskandi áhrif. Litarefni sem eru notuð til að dekkja hár eru oft með mun hærri styrk efna heldur en þau sem eru í ljósari litum.

Ofnæmiseinkennin koma oftast í ljós á fyrstu dögunum eftir að hárið hefur verið litað. Þekkt viðbrögð eru roði, útbrot, upphleypt húð og sár í hársverði, andliti og/eða hálsi og bólgur í andliti. Einnig getur andlitið bólgnað og í sumum tilfellum þarf að leggja fólk inn á sjúkrahús. Hjá flestum eru útbrotin horfin eftir nokkrar vikur en sumir þurfa að kljást við kláða í fleiri ár eftir hárlitunina. Einnig er hægt að þróa með sér ofnæmi þegar hár er litað oft en það er hægt að minnka líkurnar með því að velja frekar strípur úr skollitum heldur en að heillita hárið sem þýðir að efnin eru í mikilli snertingu við hársvörðinn.

Starfsfólk hárgreiðslustofa er mun meira útsett fyrir efnunum en almenningur og því er mikilvægt að nota hanska, hafa gott inniloft og huga að öryggi á vinnustaðnum í tenglsum við efni og efnanotkun.

Ekki er mælt með að lita hár barna og unglinga undir 16 ára.

Á höfuðborgarsvæðinu er hægt að fara til hárgreiðslustofa sem sérhæfa sig í grænum lausnum og skaðlausari efnanotkun. Einnig er hægt að ýta

hér

til að sjá frekari umfjöllun um örugga hárlitun.

Naglalakk

Naglalakk inniheldur ekki eiturefni en geta innihaldið efni sem eru óæskileg fyrir heilsuna. Dæmi má nefna lífræna leysiefnið tólúen sem getur valdið ertingu í húð. Nú þegar fást naglalökk án tólúens en algengt er að naglalökk frá Bandaríkjunum innihaldi tólúen.

Almenn ráð til að minnka snertingu sína við óæskileg efni í naglalakki:

  • Loftum út þegar við naglalökkum okkur. Naglalökk og naglalakkaeyðar geta innihaldið leysa sem gufa upp í loftið og við getum andað því að okkur.
  • Hægt er að versla svansvottaðann naglalakkaeyði.
  • Forðumst að fá naglalakk á húðina okkar. Þetta á sérstaklega við vörur sem innihalda akrýlöt og bensófenón. Ef það kemst á húðina er best að taka naglalakkið af og þvo hendurnar með sápu þar sem akrýlötin eru mjög ofnæmisvaldandi.
  • Naglalím getur innihaldið efni eins og akrýlöt og því er gott að forðast þess að fá límið á húðina.
  • Sumar naglavörur sem eru ætlaðar til að styrkja neglur innihalda efnið formaldehýð. Því er mikilvægt að skoða innihaldslýsingu varanna.
  • Ef einhver naglavara er að valda útbrotum, roða eða kláða þá er best að hætta strax notkuninni.
  • Ekki nota naglalökk eða naglalakkavörur á ungabörn.
  • Börn ættu ekki að nota naglalakk alla daga. Best er ef fullorðinn hjálpar barninu að naglalakka sig svo það fari ekki á húðina og lofta vel um á meðan.

Snertiofnæmi

Snertiofnæmi – félagi fyrir lífstíð

Ef þú færð snertiofnæmi fyrir efnum í snyrtivörunum þínum þá fylgir það þér fyrir lífstíð.

Almennt er meiri hætta á að fá snertiofnæmi vegna efna í snyrtivörum sem við skiljum eftir á húðinni en vegna efna í þeim vörum sem við skolum í.

Snertiexem frá snyrtivörum kemur oft fram kringum augun jafnvel þó að skaðvaldurinn sé ekki í augnsnyrtivörum. Skýringin er sú að við förum oft með fingur í andlitið og nuddum á okkur augnlokin og berum þannig efnin þangað.

Ef við fáum snertiofnæmi fyrir ákveðinni snyrtivöru þá þarf jafnvel ekki að nota hana nema á 2 til 3 vikna fresti til að viðhalda exeminu. Þannig getur maskari sem við notum aðra hverja helgi eða sjaldnar verið orsök þráláts exems kring um augu og andlitsfarði sem einungis er notaður um helgar verið orsök exems í andliti.

Góð ráð vegna snertiofnæmis

Því minna sem þú notar, því minni líkur eru á að þú fáir ofnæmi

Dragðu almennt úr efnanotkun þinni. Veltu því fyrir þér hversu mikið af snyrtivörum þú notar og hvort þú þurfir raunverulega á þeim öllum að halda.

Slakaðu á í ilmefnunum

Reyndu að átta þig á hvaða vörur innihalda ilmefni. Veldu ilmefnalausar vörur. Ef þú vilt nota einhvern ilm reyndu þá að nota eins fáar ilmvörur og þú getur. Til dæmis getur þú notað ilmefnalaust krem og svitalyktareyði en þess í stað valið hársápu sem ilmar. Ef þú vilt nota ilmvatn þá er góð hugmynd að úða því á fötin þín en ekki húðina, en gáðu fyrst hvort það komi blettir. Athugaðu að náttúruleg ilmefni geta líka valdið ofnæmi.

Veldu Svansvottaðar snyrtivörur

Auðveld leið til að forðast ofnæmisvaldandi efni í snyrtivörum er að velja ilmefnalausa Svansmerkta vöru. Svansmerktar húð og snyrtivörur uppfylla strangar kröfur varðandi notkun efna sem geta verið ofnæmisvaldandi, ertandi fyrir húðina eða geta haft önnur óæskileg áhrif á heilsuna. Sérstaklega er gætt að efnum sem eru talin raska hormónajafnvægi.

Slepptu því að lita á þér hárið eða notaðu frekar strípur og skol

Kannski þarftu bara nýja hárgreiðslu frekar en að lita á þér hárið. Varist að hárlitunarefni komist í snertingu við hársvörðinn. Ef þú færð exem í hársvörðinn eða andlitið eftir litun er ljóst að þú hefur ofnæmi fyrir einhverjum efnum í hárlitum og ættir því ekki að lita á þér hárið.

Falsanir

Borið hefur á því að falsaðar snyrtivörur hafi verið í sölu hér á landi. Um er að ræða snyrtivörur seldar undir vörumerkjum framleiðenda frá Evrópu eða Bandaríkjunum. Vörurnar bera þess merki að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til snyrtivara sem settar eru á markað á Íslandi og í Evrópu. Staðreyndin er hins vegar sú að þær eru oft á tíðum framleiddar í verksmiðjum utan Evrópu, þar á meðal í Asíu, þar sem gæðaeftirliti er ábótavant og síðan seldar hér á markaði.

Oft eru útlitsleg gæði þessara falsanna mjög mikil og því getur reynst erfitt að sjá hvort um fölsun sé að ræða. Tollayfirvöld hafa stundum brugðið á það ráð að senda sýnishorn af vörunum út til framleiðenda til að fá staðfestingu á því hvort um falsanir sé að ræða.

Af hverju geta falsaðar snyrtivörur verið varasamar?

Ólíkt ósviknum snyrtivörum hafa falsaðar snyrtivörur ekki gengist undir nauðsynlegar prófanir sem skylda er að undirgangast til að geta sett snyrtivörur á markað í Evrópu. Ef varan hefur ekki verið prófuð og fylgir ekki reglum EES um efnainnihald er ómögulegt að vita fyrir víst hvaða efni eru notuð í vörurnar. Þessar vörur geta því mögulega innihaldið efni sem hafa skaðleg áhrif á heilsu manna og geta aukið hættu á ofnæmi og ýmsum húðkvillum.

Hvernig á að komast hjá því að kaupa falsaðar snyrtivörur ?

Best er að varast kaup á snyrtivörum sem boðnar eru til sölu með óhefðbundnum söluleiðum og versla fremur beint frá fullgildum útsölustöðum.

Neytendur ættu að vera sérstaklega vakandi fyrir fölsunum þegar:

  • Salan fer fram í gegnum vefverslun sem ekki tengjast fullgildum útsölustöðum
  • Salan fer fram á markaði með nýjar og notaðar vörur
  • Salan fer fram í heimahúsum eða í gegnum síma
  • Verð vörunnar er mun lægra en venja er
  • Verið er að bjóða eingöngu stakar vörur frá framleiðanda en ekki alla vörulínuna

Viðurlög

Vakin skal athygli á því að það að kaupa falsaðar snyrtivörur jafnt sem bjóða slíkar snyrtivörur til sölu getur varðað við almenn hegningarlög.

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800