Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Listi yfir varasöm efni

Hvar finnast efnin og hvernig forðumst við þau?

Listi yfir varasöm efni

Eftirfarandi efni geta fundist í vörum sem við notum í daglegu lífi og geta verið skaðleg heilsu og umhverfi. Leitaðu að efni eða vöru, eða veldu vöruflokk, og opnaðu efnið til að sjá hvar það finnst, hvaða áhrif það getur haft og hvernig þú dregur úr útsetningu.

Einfaldasta leiðin til að forðast flest þessara efna er að velja vörur með áreiðanlegu umhverfismerki.

Finnst í:

AlkýlfenólAlkýlfenól (enska: alkylphenols, APs) og etoxýlöt þeirra (enska: alkylphenol ethoxylates, APEOs) er stór hópur efna.Sjá nánar

Hvar finnast þau?

  • Textíl og leðri
  • Snyrtivörum
  • Hreinsiefnum
  • Þvottaefnum
  • Sótthreinsiefnum
  • Vörum úr plasti
  • Bíladekkjum
  • Málningu og lökkum
  • Límum
  • Ryki

Áhrif á heilsu

  • Dregið úr frjósemi
  • Truflað innkirtlastarfsemi líkamans
  • Líkt eftir hormóninu estrógen
  • Hormónatengd krabbameinsáhætta (enska: hormone related cancer risk)
  • Erting eða bruni í húð og augum
  • Skaðað lifrina við mikla og tíða útsetningu

Svona dregur þú úr útsetningu

  • Velja umhverfismerktar vörur, til að mynda merktar Svaninum eða Evrópublóminu.
  • Velja textíl sem er merktur með Oeko-Tex 1000.
  • Ryksuga og þurrka af að minnsta kosti 1 sinni í viku þar sem efnin eiga það til að loða við ryk.
ArsenArsen (enska: arsenic, As) er eitt af frumefnum jarðar.Sjá nánar

Hvar finnast þau?

  • Gagnvörðu timbri (fúavörn) frá árunum 1950 – 2004
  • Reyk frá kopar- og blýbræðslustöðvum
  • Innan í raftækjum
  • Steinefnaáburði
  • Tóbaki og tóbaksreyk
  • Rafgeymum
  • Ýmsum matvælum
  • Uppstoppuðum dýrum
  • Gömlu skordýraeitri

Áhrif á heilsu

  • Aukið líkur á ýmsum krabbameinum
  • Aukið líkur á húðsjúkdómum
  • Aukið líkur á efnaskiptaskjúkdómum
  • Aukið líkur á sykursýki
  • Aukið líkur á hjarta- og æðasjúkdómum
  • Eiturhrif á æxlun (til að mynda hætta á fæðingu andvana barns, lækkun á fæðingarþyngd nýbura, hætta á ungbarnadauða)
  • Frávik á þroska og mögulegur taugafræðilegur skaði á fóstrum og ungabörnum

Svona dregur þú úr útsetningu

  • Forðast reykingar og innöndun af tóbaksreyk.
  • Velja umhverfismerktar vörur, til að mynda merktar Svaninum eða Evrópublóminu.
  • Við úreldingu vara er mikilvægt að koma þeim í réttan farveg hjá móttökuaðilum. Við urðun geta efnin lekið út í jarðveginn.
BensófenónBensófenón (enska: benzophenone) eru náttúruleg efni sem gleypa og dreifa skaðlegum útfjólubláum geislum sólarinnar.Sjá nánar

Hvar finnast þau?

  • Snyrtivörum
  • Húðvörum
  • Hreinlætisvörum
  • Þvotta- og hreinsiefnum
  • Bragðefnum fyrir matvæli
  • Matarumbúðum úr kartoni
  • Textíl, skóm
  • Íþróttavörum
  • Sólgleraugum

Áhrif á heilsu

  • Grunuð um að trufla innkirtlastarfsemi líkamans
  • Auknar líkur á ljósofnæmi
  • Auknar líkur á snertiofnæmi
  • Lækkun á fæðingarþyngd nýbura
  • Geta haft áhrif á lengd meðgöngu

Svona dregur þú úr útsetningu

  • Velja vörur án bensófenóna þegar það er hægt.
  • Velja umhverfismerktar vörur, til að mynda merktar Svaninum eða Evrópublóminu.
  • Velja textíl sem er mertkur með Oeko-Tex 1000.
BisfenólBisfenól (enska: bisphenol) eru manngerð efni sem hafa verið framleidd síðan upp úr 1960. Á meðal þeirra er þekkta efnið bisfenól A (BPA).Sjá nánar

Hvar finnast þau?

  • Borðbúnaði úr plasti (til dæmis drykkjarflöskur, hnífapör og diskar)
  • Harða hlutanum á snuði úr plasti
  • Dósum undir matvæli (til að mynda niðursuðudósir)
  • Pelum úr plasti fyrir ungabörn
  • Leikföngum úr plasti
  • Textíl
  • Raftækjum
  • Málningu, lími og lökkum
  • Öryggisbúnaði úr plasti
  • Hitaþolnum pappír (til að mynda kassakvittanir, brottfararspjöld og stöðumælasektir)
  • Geisladiskum og geisladiskahulstrum
  • PC-plasti (pólýkarbónat plast)
  • Epoxý resín (til dæmis málning)

Áhrif á heilsu

  • Aukið líkur á hjarta- og æðasjúkdómum
  • Dregið úr frjósemi
  • Lækkun á fæðingarþyngd nýbura
  • Aukið líkur á offitu og efnaskiptasjúkdómum
  • Óæskileg áhrif á ónæmiskerfið
  • Hormónatengd krabbameinsáhætta (enska: hormone related cancer risk)
  • Taugaþroskunarfræðileg áhrif (enska: neurodevelopmental effects): Áhrif á tilfinningar, hreyfifærni, minni og lærdómsgetu og erfiðleikar með tungumál og tal.

Svona dregur þú úr útsetningu

  • Velja plastvörur sem eru merktar án allra bisfenóla, ekki er nóg að hluturinn sé merktur einungis án bisfenól A (BPA) þar sem því kann einfaldlega að hafa verið skipt út fyrir önnur bisfenól til dæmis bisfenól S (BPS), bisfenól F (BPF) eða bisfenól M (BPM).
  • Velja umhverfismerktar vörur, til að mynda merktar Svaninum eða Evrópublóminu.
  • Velja textíl sem er mertkur með Oeko-Tex 1000.
  • Velja drykkjarílát/brúsa úr gleri eða ryðfríu stáli í stað plasts.
  • Velja diska úr keramiki eða málmi frekar en plasti.
  • Varast að hita hluti úr plasti, ekki síst í örbylgjuofni.
  • Forðast að nota brotin eða skemmd plastílát. Ef að matar- eða drykkjarílát eru rispuð eða skemmd að innan þá geta efnin losnað út í matvæli eða vökva.
  • Takmarka neyslu á matvælum sem eru í dósum, til að mynda niðursuðudósum.
  • Takmarka notkun plastíláta undir heit matvæli eða drykki.
  • Ryksuga og þurrka af að minnsta kosti 1 sinni í viku þar sem efnin eiga það til að loða við ryk.
BlýBlý (enska: lead) er eitt af frumefnum jarðar og losnar bæði vegna náttúrulegra ferla og við athafnir manna.Sjá nánar

Hvar finnast þau?

  • Rafgeymum
  • Gamalli málningu (frá því fyrir áttunda áratug síðustu aldar)
  • Raf- og rafeindatækjum
  • Veiðarfærum
  • Litarefnum (til að mynda fyrir textíl)
  • Leikföngum lélegum gæðum
  • Ódýru skarti
  • Skotfærum
  • Tóbaksreyk
  • Ryki

Áhrif á heilsu

  • Aukið líkur á hjarta- og æðasjúkdómum
  • Aukið líkur á krabbameini
  • Aukið líkur á kvillum í ónæmiskerfinu
  • Truflað nýrnastarfsemi
  • Skaðað taugakerfið
  • Valdið blóðleysi/skorti á rauðum blóðfrumum
  • Aukið líkur á æxlunarvandamálum (getnaður/frjósemi)

Svona dregur þú úr útsetningu

  • Velja umhverfismerktar vörur, til að mynda merktar Svaninum eða Evrópublóminu.
  • Velja vandaðar vörur, sérstaklega leikföng, þar sem börn eru viðkvæmari fyrir áhrifum blýs.
  • Velja keramík án blýs en blý getur verið bætt í glerunginn.
  • Forðumst að leyfa ungabörnum að leika með lykla eða penna þar sem hætta er á að þau stingi þeim upp í sig.
  • Ryksuga og þurrka af að minnsta kosti 1 sinni í viku þar sem efnin eiga það til að loða við ryk.
Eldtefjandi efniEldtefjandi efni er heiti yfir alls kyns ólík manngerð efni sem eiga það sameiginlegt að vera bætt í hluti til að gera þá minna eldfima og hægja á útbreiðslu elds.Sjá nánar

Hvar finnast þau?

  • Frauði eða svampi úr plasti sem notað er sem fylling meðal annars í húsgögn
  • Raftækjum (til að mynda sjónvörpum, tölvum og símum)
  • Barnavörum (til að mynda bílstólum, skiptiborðum)
  • Byggingarefnum, einkum einangrunarefnum úr plasti
  • Bílum, flugvélum og lestum
  • Eldhústækjum
  • Leikföngum
  • Textíl
  • Vírum

Áhrif á heilsu

  • Aukin hætta á krabbameini
  • Innkirtla- og skjaldkirtilsraskanir
  • Eiturhrif á æxlun (enska: reproductive toxicity)
  • Skaðleg áhrif á þroska fósturs
  • Röskun á ónæmiskerfinu
  • Skert taugavirkni

Svona dregur þú úr útsetningu

  • Velja vörur sem eru merktar án eldtefjandi efna þegar það er hægt. Merkingar eru oftast á ensku sem: Flame Retardant Free, Free of Halogenated Flame Retardants
  • Velja umhverfismerktar vörur, til að mynda merktar Svaninum eða Evrópublóminu.
  • Velja textíl sem er mertkur með Oeko-Tex 1000.
  • Velja náttúrulegan efnivið þegar það er í boði.
  • Reyna að velja barnavörur og húsgögn sem eru fyllt með bómull, pólýester eða ull í staðinn fyrir pólýúretan plast (enska: polyurethane, PU) frauð eða svamp.
  • Lágmarka notkun gólfteppa og gardína.
  • Lofta um og þvo hluti áður en þeir eru teknir í notkun.
  • Ryksuga og þurrka af að minnsta kosti 1 sinni í viku þar sem efnin eiga það til að loða við ryk.
KadmíumKadmíum (enska: cadmium) er frumefni og finnst í jarðskorpunni í litlum styrk.Sjá nánar

Hvar finnast þau?

  • Tóbaksreyk
  • Batteríum
  • Litarefnum
  • Áburði
  • Málmvinnslum
  • Námuvinnslum
  • Plasti, einkum PVC

Áhrif á heilsu

  • Aukið líkur á krabbameini, einkum lungnakrabbameini
  • Aukið líkur á ófrjósemi
  • Aukið líkur á fæðingargöllum
  • Safnast upp í nýrum og valdið nýrnavandamálum
  • Skaðað lungu við háan styrk
  • Auknar líkur á beinþynningu
  • Grunuð um að valda stökkbreytingum

Svona dregur þú úr útsetningu

  • Velja umhverfismerktar vörur, til að mynda merktar Svaninum eða Evrópublóminu.
  • Forðast að reykja tóbaksvörur þar sem kadmíum safnast fyrir í laufum tóbaksplöntunnar.
  • Höldum börnum frá því að anda að sér tóbaksreyk.
  • Leyfum ekki börnum að leika með batterí.
  • Koma batteríum í réttan farveg hjá móttökuaðilum eftir notkun. Við urðun geta efnin lekið út í jarðveginn.
  • Fara eftir öryggisreglum, þvoum reglulega hendur og klæðumst viðeigandi vinnufatnaði við vinnu í stóriðju og við stórar byggingarframkvæmdir.
Klóruð paraffínKlóruð paraffín (enska: chlorinated paraffins, CPs) er samheiti fyrir stóran flokk efna sem hafa verið framleidd síðan um 1930. Algengasta notkun þeirra er sem mýkiefni í plasti og málningu og sem eldtefjandi efni í gúmmí, málningu og textíl.Sjá nánar

Hvar finnast þau?

  • Rafgeymum
  • Textíl
  • Leikföngum úr mjúku plasti
  • Hlutum úr plasti, einkum PVC
  • Vínyl gólfefnum
  • Hlutum úr gúmmíi
  • Málningu
  • Þéttiefnum
  • Rafstrengjum
  • Byggingarefnum
  • Lími
  • Ryki

Áhrif á heilsu

  • Truflað starfsemi skjaldkirtils
  • Skaðað lifur og nýru
  • Hægt á þroska ungabarna
  • Haft áhrif á þroska heilans
  • Aukið líkur á krabbameini

Svona dregur þú úr útsetningu

  • Velja umhverfismerktar vörur, til að mynda merktar Svaninum eða Evrópublóminu.
  • Velja Oeko-Tex merktan textíl en þá er ekki farið yfir leyfileg viðmiðunarmörk hættulegra efna í vefnaði og framleiðslu hans.
  • Forðast leikföng úr mjúku plasti.
  • Takmarka notkun á plastvörum sem eru úr PVC plasti (plasttegund nr. 3).
  • Ryksuga og þurrka af að minnsta kosti 1 sinni í viku þar sem efnin eiga það til að loða við ryk.
KrómKróm (enska: chromium) er eitt af frumefnum jarðar og er þungmálmur (enska: heavy metal).Sjá nánar

Hvar finnast þau?

  • Sementi
  • Textíl
  • Litarefnum
  • Leðri
  • Málningu
  • Viðarvörnum
  • Rafhlöðum
  • Flugeldum
  • Innan í raftækjum
  • Klæðningum
  • Gagnvörðu timbri (fúavörn) frá árunum 1950 – 2004

Áhrif á heilsu

  • Aukið líkur á lungnakrabbameini
  • Aukið líkur á ófrjósemi
  • Skaðað augu
  • Valdið snertiofnæmi, húðkláða og ertingu
  • Vandamálum í öndunarfærum (til að mynda astma, hósta, nefkvefi)

Svona dregur þú úr útsetningu

  • Velja umhverfismerktar vörur, til að mynda merktar Svaninum eða Evrópublóminu.
  • Velja Oeko-Tex merktan textíl en þá er ekki farið yfir leyfileg viðmiðunarmörk hættulegra efna í vefnaði og framleiðslu hans.
  • Notum hlífðarfatnað og öryggisbúnað í vinnunni þegar til þess er ætlast.
  • Við úreldingu vara er mikilvægt að koma þeim í réttan farveg hjá móttökuaðilum. Við urðun geta efnin lekið út í jarðveginn.
KvikasilfurKvikasilfur (enska: mercury) er eitt af frumefnum jarðar.Sjá nánar

Hvar finnast þau?

  • Amalgam tannfyllingum
  • Flúrljósum
  • Sparperum
  • Sumum hitamælum
  • Smárafhlöðum
  • Raftækjum
  • Í sumum snyrtivörum sem ætlaðar eru til að lýsa húðlit

Áhrif á heilsu

  • Skaðað lungu
  • Aukið líkur á hjarta- og æðasjúkdómum
  • Skert þroska heilans og taugakerfisins hjá fóstrum og ungabörnum
  • Skaðað útlæga og miðlæga taugakerfið og heilann (til að mynda skjálfti, svefnleysi, breytingar á hegðun og minnisskerðing)
  • Aukið líkur á nýrnaskemmdum
  • Skaðað meltingarveginn

Svona dregur þú úr útsetningu

  • Velja umhverfismerktar vörur, til að mynda merktar Svaninum eða Evrópublóminu.
  • Forðumst húðhvíttunarvörur sem innihalda kvikasilfur.
  • Forðumst að hita málmblöndur sem innihalda kvikasilfur.
  • Komum rafhlöðum, raftækjum og perum í réttan farveg eftir notkun til móttökuaðila.
Moskus efnasamböndMoskus efnasambönd (enska: musk compounds, synthetic musks) eru manngerð ilmefni sem eru notuð meðal annars í ilmvötnum, snyrtivörum og þvottaefnum.Sjá nánar

Hvar finnast þau?

  • Snyrtivörum
  • Hreinlætisvörum
  • Ilmkertum
  • Hreinsiefnum
  • Þvottaefnum
  • Bíla- og bátavörum

Áhrif á heilsu

  • Grunaðir krabbameinsvaldar
  • Sum eru grunuð um að trufla innkirtlastarfsemi líkamans

Svona dregur þú úr útsetningu

  • Velja umhverfismerktar vörur án ilmefna, til að mynda merktar Svaninum eða Evrópublóminu.
  • Velja vörur án ilmefna sérstaklega fyrir ung börn.
ParabenParaben eru manngerð efni sem hafa verið víða notuð síðan um 1920. Efnin eru notuð sem rotvarnarefni meðal annars í snyrtivörum fyrir bæði börn og fullorðna.Sjá nánar

Hvar finnast þau?

  • Snyrtivörum
  • Húðvörum
  • Hreinlætisvörum
  • Hárvörum
  • Ilmvötnum/rakspírum
  • Matvörum með E númerin (E214-219)

Áhrif á heilsu

  • Dregið úr frjósemi
  • Truflað innkirtlastarfsemi líkamans
  • Aukið líkur á þróun ofnæmis (sjaldgæft)

Svona dregur þú úr útsetningu

  • Velja vörur án parabena þegar það er hægt. Á innihaldslýsingu vara eru þau með endinguna –paraben. Sérstaklega bútýlparaben (enska: Butylparaben).
  • Velja umhverfismerktar vörur, til að mynda merktar Svaninum eða Evrópublóminu.
  • Ryksuga og þurrka af að minnsta kosti 1 sinni í viku þar sem efnin eiga það til að loða við ryk.
PFASPFAS efni (enska: per- and polyfluorinated alkyl substances) hafa þótt mjög eftirsóknarverð í alls kyns vörur vegna eiginleika þeirra að hrinda frá sér bæði vatni og fitu.Sjá nánar

Hvar finnast þau?

  • Textíl og leðri sem eru vatns- eða fitufráhrindandi (til dæmis fatnaður, skór, gólfmottur, tjöld, áklæði og töskur)
  • Viðloðunarfríum (enska: non-stick) pönnum og pottum
  • Snyrtivörum
  • Matvælaumbúðum
  • Hreinsiefnum
  • Raftækjum
  • Skíðavaxi
  • Vatnsvörnum, til að mynda spreyjum
  • Málningu og lökkum
  • Slökkvitækjafroðum

Áhrif á heilsu

  • Aukið líkur á skjaldkirtilssjúkdómum
  • Ónæmiseiturhrif (enska: immunotoxicity)
  • Aukið líkur á krabbameini í nýrum og eistum
  • Lifrarskemmdir
  • Eiturhrif á þroskun (enska: developmental toxicity)
  • Áhrif á æxlun og frjósemi
  • Lækkun á fæðingarþyngd nýbura
  • Hækkað kólesteról
  • Auknar líkur á sykursýki og offitu

Svona dregur þú úr útsetningu

  • Velja vörur sem merktar eru PFAS-fríar þegar það er hægt. Merkingar eru oftast á ensku sem: PFC free, Fluorine free, PFTE free
  • Velja umhverfismerktar vörur, til að mynda merktar Svaninum eða Evrópublóminu.
  • Velja potta og pönnur úr keramiki, ryðfríu stáli eða steypujárni í staðinn fyrir viðloðunarfríar (enska: non-stick).
  • Forðast skyndibita sem er vafinn inn í fitufráhrindandi pappír (enska: grease-proof paper).
  • Hugsa sig tvisvar um þegar kemur að því að vatnsverja og skoða hvaða efni eru í vatnsvörninni.
  • Ryksuga og þurrka af að minnsta kosti 1 sinni í viku þar sem efnin eiga það til að loða við ryk.
SíloxönSíloxön (enska: siloxanes) er hópur manngerðra efna sem hafa verið framleidd síðan um 1940. Þau eru mikið notuð í snyrti- og hreinlætisvörur til að auðvelda notkun varanna, til að mynda með því að gera krem smyrjanlegri, til að gera innihaldið kekkjalaust og til að bera viðbætt lyktarefni á líkamann.Sjá nánar

Hvar finnast þau?

  • Snyrtivörum
  • Húðvörum
  • Hárvörum
  • Hreinlætisvörum (til að mynda svitalyktaeyðum, sápum, sjampó)
  • Raftækjum
  • Bílaumhirðavörum
  • Hreinsiefnum
  • Málningu/lökkum
  • Einangrunarefnum
  • Eldsneyti
  • Sementi

Áhrif á heilsu

  • Dregið úr frjósemi
  • Safnast upp í líkamanum

Svona dregur þú úr útsetningu

  • Velja vörur án síloxan þegar það er hægt. Á merkingum koma heiti efnanna oftast fram á ensku sem: Cyclomethicone, *-siloxane (Heiti með endinuna -siloxane), D3, D4, D5, D6
  • Velja umhverfismerktar vörur, til að mynda merktar Svaninum eða Evrópublóminu.
  • Ryksuga og þurrka af að minnsta kosti 1 sinni í viku þar sem efnin eiga það til að loða við ryk.
TríklósanTríklósan (enska: triclosan) er efni sem hefur bakteríudrepandi virkni og telst örverueyðandi (enska: antimicrobial).Sjá nánar

Hvar finnast þau?

  • Snyrtivörum
  • Hreinlætisvörum (til dæmis tannkremum, svitalyktareyðum, munnskolum og sápum)
  • Hreinsiefnum
  • Fatnaði sem er merktur „antibacterial“

Áhrif á heilsu

  • Ertir húð og augu
  • Grunað um að hafa áhrif á innkirtlastarfsemi líkamans
  • Auknar líkur á ónæmi baktería fyrir efnum svo sem sýklalyfjum

Svona dregur þú úr útsetningu

  • Velja umhverfismerktar vörur, til að mynda merktar Svaninum eða Evrópublóminu.
  • Forðast tannkrem og svitalyktareyða sem innihalda tríklósan, sérstaklega þungaðar konur.
  • Forðast að kaupa föt sem eru merkt „antibacterial“.
ÞalötÞalöt (enska: phthalates) eru manngerð efni sem komu fyrst á markað á milli 1920 og 1930. Efnin eru aðallega notuð í plast til að mýkja það og gera sveigjanlegra.Sjá nánar

Hvar finnast þau?

  • Borðbúnaði úr plasti
  • Matvælaumbúðum úr plasti
  • Leikföngum úr plasti
  • Snyrtivörum (til dæmis sápur, sjampó, hárlökk, ilmvötn, naglalökk)
  • Textíl
  • Íþróttavörum
  • Uppblásnum dýnum úr plasti
  • Kynlífstækjum
  • Garðslöngum/vatnsslöngum
  • Byggingarvörum, húsgögnum, bílavörum og fjarskiptavörum úr PVC plasti
  • Einangrun í snúrum og vírum í rafeindabúnaði og byggingum.
  • Vínyl gólfefnum
  • Lími, þéttiefnum, málningu
  • Hreinsiefnum
  • Hlutum úr PVC, PP, PE, PET, PU plasti

Áhrif á heilsu

  • Aukið líkur á ofvirkni, athyglisbrest
  • Truflað á hormónastarfsemi
  • Aukið líkur á insúlínviðnámi
  • Dregið úr frjósemi
  • Aukið líkur á offitu
  • Auknar líkur á astma

Svona dregur þú úr útsetningu

  • Velja vörur án þalata, í innihaldslýsingu vara enda slík efni á -phthalate (enska heitið).
  • Velja umhverfismerktar vörur, til að mynda merktar Svaninum eða Evrópublóminu.
  • Velja textíl sem er mertkur með Oeko-Tex 1000.
  • Forðast leikföng úr mjúku plasti - sérstaklega þau sem voru framleidd fyrir 2007 (þá voru settar strangari reglur).
  • Forðast að hita hluti úr plasti, ekki síst í örbylgjuofni.
  • Forðast að leyfa börnum að leika sér með hluti sem ekki eru leikföng eins og til dæmis raftæki. Innihald efna í slíkum vörum uppfylla ekki þær kröfur sem gerðar eru til efna í barnaleikföngum.
  • Nota frekar gler eða ryðfrítt stál til að geyma mat og drykki í stað plasts.
  • Ryksuga og þurrka af að minnsta kosti 1 sinni í viku þar sem efnin eiga það til að loða við ryk.

Nánar um hvert efni

Hér fyrir neðan er ítarlegri umfjöllun um hvert efni, með tenglum á upplýsingar hjá systurstofnunum og alþjóðastofnunum.

Alkýlfenól

Alkýlfenól (enska: alkylphenols, APs) og etoxýlöt þeirra (enska: alkylphenol ethoxylates, APEOs) er stór hópur efna en alkýlfenól eru yfirleitt notuð við framleiðsluferli, þá sem hráefni eða milliefni fyrir fjölliðuframleiðslu, og alkýlfenóletoxýlöt hafa verið vinsæl yfirborðsvirk efni en þau bæta meðal annars úðunareiginleika í þvottaefnum og leysa upp fitu. Þegar alkýlfenóletoxýlöt losna út í umhverfið, einkum í gegnum skólphreinsistöðvar, þá brotna þau niður með því að missa etoxýhópa og umbreytast í akýlfenól. Niðurbrotsefnin eru mun skaðlegri en forverar þeirra, en þau eru þannig meðal efna sem auka eiturhrif sín með tímanum/niðurbrotinu. Algengt er að nefna alkýlfenól eftir keðjulengd efnisins en iðnaðurinn notast mest við keðjulengdir frá 1 (metýl) upp í 12 kolefnisatóm (dódekýl). Þekktustu og skaðlegustu alkýlfenólin er nónýlfenól (9 kolefni í keðjunni) og etoxýlöt þeirra.

Staðfest hefur verið að nokkur alkýlfenól og etoxýlöt þeirra hafa innkirtlatruflandi eiginleika og eru sérlega eitruð vatnalífverum, til að mynda 4-nónýlfenól og etoxýlöt, 4-tert-oktýlfenól og etoxýlöt, 4-heptýlfenól, 4-tert-pentýlfenól og 4-tert-bútýlfenól. Að auki brotna nónýl-, oktýl- og dódekýlfenól torlega niður í umhverfinu, eru vatnsfælin og geta safnast upp í lífverum.

Strangar reglur eru í gildi innan EES varðandi leyfilegan hámarksstyrk á nokkur efnanna, hér eru nokkur dæmi:

Vinna er enn í gagni við að meta og koma fleiri takmörkunum á efnahópinn en það er tímafrekt verk.

Ítarleg umfjöllun hjá systurstofnunum og öðrum alþjóðastofnunum

Almennt um alkýlfenól á norsku á heimasíðu Miljøstatus sem er ritstýrt af Umhverfisstofnun Noregs (Miljødirektoratet).

Skýrsla um alkýlfenól og alkýlfenóletoxýlöt á ensku sem er gefin út af Umhverfisstofnun Danmerkur (Miljøstyrelsen) árið 2013.

Efni síðunnar var síðast uppfært 2. apríl 2024 á ust.is.

Arsen

Arsen (enska: arsenic) er eitt af frumefnum jarðar og finnst í grjóti, jarðvegi, vatni, lofti, plöntum og dýrum. Arsen er málmleysingi og flokkast arsen efnasambönd sem lífræn eða ólífræn og geta báðir flokkar myndast í náttúrunni og við athafnir manna. Lífræn arsen efnasambönd innihalda arsen ásamt kolefni og öðrum frumefnum. Ólífræn arsen efnasambönd innihalda arsen ásamt öðrum frumefnum en eru án kolefnis. Mismunandi er á milli arsen efnasambanda hversu skaðleg þau geta verið en almennt eru ólífræn arsen efnasambönd mjög eitruð lífverum, einkum vatnalífverum, og eru líklegri til að valda heilsufarsvandamálum.

Mörg ólífræn arsen efnasambönd eru flokkuð sem krabbameinsvaldar og leiddi það til ýmissa takmarkana á notkun þeirra í vörum. Almennt er talið að börn séu næmari fyrir snertingu við arsen heldur en fullorðnir, en það er einnig persónubundið hversu vel líkaminn okkar brýtur niður og fjarlægir arsen úr líkamanum.

Áður fyrr var timbur gagnvarið með svokallaðri CCA þrýstimeðferð þar sem króm (C), kopar (C) og arsen (A) var þrýst inn í viðinn. Slíkt timbur var takmarkað hér á landi árið 2004 en um er að ræða timbur sem kemur fúavarið í innflutningi en ekki hefðbundin fúavörn sem hægt er að versla út í búð og bera á sjálfur með pensli. Efnin munu halda áfram að leka úr gömlu CCA meðhöndluðu timbri næstu árin, en CAA meðhöndlað timbur flokkast sem spilliefni og því verður að skila á endurvinnslustöð sem slíku. Það má ekki brenna slíkt timbur þar sem efnin mynda eitraðan reyk, ryk og ösku.

Arsen og arsen efnasambönd eru takmörkuð og/eða bönnuð í nokkrum reglugerðum hér á landi og innan EES. Vert er að nefna hér nokkrar þeirra:

ATH - Arsen getur komið fyrir í ýmsum matvælum en sú umfjöllun verður ekki rakin hér. Ef áhugi er á fróðleik og leiðbeiningum varðandi arsen í mat þá bendum við á Ráðleggingar vegna arsens í matvælum á síðu Matvælastofnunar. Að auki er hægt að skoða ráðleggingar frá Matvælastofnun Danmerkur vegna ólífrænna arsen efnasambanda á dönsku og Álit á arseni í mat frá Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) á ensku.

Ítarleg umfjöllun hjá systurstofnunum og öðrum alþjóðastofnunum

Upplýsingar um arsen á heimasíðu lífvöktunarverkefnis Evrópusambandsins (enska: HBM4EU):

Almennt um arsen á norsku á heimasíðu Miljøstatus sem er ritstýrt af Umhverfisstofnun Noregs (Miljødirektoratet).

Almennt um arsen á sænsku á heimasíðu Karolinska Institutet.

Efni síðunnar var síðast uppfært 3. apríl 2024 á ust.is.

Bensófenón

Bensófenón (enska: benzophenone) er stór efnahópur með efnum sem myndast í náttúrunni meðal annars í blómstrandi plöntum. Efnin gleypa eða hindra útfjólubláa geisla sólarinnar sem gerir það að verkum að þegar þeim er bætt út í vörur þá vernda bensófenónin önnur efni í vörunum fyrir skemmdum geislanna. Því hafa efnin verið mikið notuð í snyrtivörur og vörur til persónulegs hreinlætis til að vernda meðal annars lykt og lit gegn niðurbroti. Nokkuð er um að kalla þessi efni UV geislavarnarefni eða útblámasíur, en UV stendur fyrir ultra violet eða útfjólublátt.

Þekktasta og mest rannsakaða bensófenónið er bensófenón-3, einnig kallað BP-3 eða oxybenzone á ensku. Efnið hefur verið notað í margvíslegar vörur á borð við leikföng, snyrtivörur, ýmsar vörur úr plasti, hreinlætisvörur, fingramálningu, módelleir og ýmsar lyktarsterkar vörur. Talið er að efnið sé innkirtla- eða hormónatruflandi þar sem sýnt var fram á möguleg áhrif með tilraunum sem gerðar voru á dýrum. Það er nú í mati hjá Efnastofnun Evrópu (enska: ECHA) vegna hugsanlegra innkirtlatruflandi áhrifa í mönnum.

Vísindanefndin um öryggi neytenda (enska: SCCS) álítur að efnið geti hugsanlega valdið snerti- og ljósofnæmi. Í kjölfar þess álits voru settar takmarkanir á notkun efnisins í snyrtivörum og því má styrkur þess í sólarvörnum ekki fara yfir 6 % (massahlutfall) og ekki yfir 0,5 % (massahlutfall) í öllum tegundum snyrtivara til að vernda samsetninguna þeirra (reglugerð nr. 577/2013 um snyrtivörur sem innleiðir færslu 4 í VI. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1223/2009 með sama heiti; Umhverfis- og orkustofnun).

Bensófenón hafa einnig verið notuð sem íblöndunarefni í efnivið sem kemst í snertingu við matvæli. Matvælaöryggisstofnun Evrópu (enska: EFSA) tók bensófenón til skoðunar og komst að þeirri niðurstöðu að þolanleg dagleg inntaka (enska: tolerable daily intake, TDI) upp á 0,03 mg/kg líkamsþyngdar á dag kæmi í veg fyrir æxlismyndun. Rannsóknir á krabbameinsvaldandi áhrifum á nagdýrum sýndi fram á áhrif efnisins á lifur, nýru og blóðfrumnamyndandi kerfi nagdýra og því er til að mynda bannað að nota efnið í virk og gaumræn efni (enska: active and intelligent materials) og hluti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli (reglugerð nr. 838/2010; MAST).

Ítarleg umfjöllun hjá systurstofnunum og öðrum alþjóðastofnunum

Upplýsingar um bensófenón á heimasíðu lífvöktunarverkefnis Evrópusambandsins (enska: HBM4EU):

Umfjöllun um öryggi bensófenóns á ensku á heimasíðu Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (enska: EFSA).

Skýrsla á ensku um álit Vísindanefndar um öryggi neytenda (enska: SCCS) um bensófenón-3 (BP-3).

Efni síðunnar var síðast uppfært 21. desember 2022 á ust.is.

Bisfenól

Bisfenól er efnahópur sem samanstendur af um það bil 148 manngerðum efnum. Þau eru aðallega notuð við framleiðslu á pólýkarbónat plasti, epoxý resíni og öðrum fjölliðuefnum. Pólýkarbónat plast (enska: PC, plasttegund nr. 7) er mjög sterkt og hefur verið mikið notað meðal annars í vatnsbrúsa, matarílát, borðbúnað og pela fyrir ungabörn. Epoxý resín er oft notað til að fóðra matar- og drykkjarílát að innan, til að mynda niðursuðudósir, en slík fóðrun kemur í veg fyrir tæringu á málminum og að málmurinn berist í innihaldið.

Þekktasta og mest rannsakaða bisfenólið er bisfenól A (BPA) og er það framleitt í gífurlegu magni. Önnur bisfenól eru að ryðja sér til rúms vegna takmarkana sem Evrópusambandið setti á BPA. Má þar nefna bisfenól S (BPS), bisfenól F (BPF) og bisfenól M (BPM). Rannsóknir á mögulegum áhrifum þessara staðgönguefna eru hafnar og gefa niðurstöðurnar til kynna að efnin hafi mörg af sömu skaðlegu áhrifum á heilsu eins og BPA.

Bisfenól A hefur verið flokkað meðal annarssem efni sem hafa eiturhrif á æxlun (enska: reproductive toxicant), geta valdið ertingu í öndunarfærum, alvarlegum augnskaða og húðofnæmi. Efnið er innkirtlatruflandi og líkir eftir estrógeni, sem þýðir að það getur haft áhrif á starfsemi hormónakerfisins og gildir þetta fyrir öll spendýr. Lengi hefur verið rökrætt um þau mögulegu óæskilegu áhrif sem BPA geti valdið og þá hvort og við hvaða styrk efnisins þessi áhrif eiga sé stað. Ein ástæða rökræðnanna er sú að BPA brotnar frekar auðveldlega niður í vatni og safnast því aðeins að litlu leyti fyrir í lífverum og mönnum.

Sýnt hefur verið fram á að bisfenól A lekur í litlu magni úr matar- og drykkjarílátum úr plasti yfir í innihald ílátanna. Það magn eykst eftir því sem ílátin eru notuð meira, eru rispuð og/eða brotin. Efnið lekur mest úr ílátum við háan hita eða við lágt eða hátt sýrustig. Að auki berst bisfenól A inn í líkamann í gegnum húð við meðhöndlun á hitaþolnum pappír þar með talið kassakvittunum, en efnið hjálpar til við að láta blekið birtast á slíkum pappír.

Úr hópi bisfenóla er það einungis bisfenól A sem er takmarkað innan EES og kemur það við sögu í nokkrum reglugerðum. Vert er að nefna hér nokkrar takmarkanir og bönn:

Í ESB er til skoðunar að takmarka öll bisfenól og myndi Efnastofnun Evrópu (enska: ECHA) þá leggja mat á allan hópinn í stað þess að taka fyrir hvert efni fyrir sig. Sem stendur er ECHA að áhættumeta bisfenól S og bisfenól A og B hafa bæði verið sett á listann yfir sérlega varasöm efni samkvæmt REACH vegna innkirtlatruflandi eiginleika þeirra.

Ítarleg umfjöllun hjá systurstofnunum og öðrum alþjóðastofnunum

Almennt um bisfenól A í umbúðum matvæla á heimasíðu MAST.

Upplýsingar um bisfenól á heimasíðu lífvöktunarverkefnis Evrópusambandsins (enska: HBM4EU):

Almennt um bisfenól á ensku á heimasíðu Efnastofnun Evrópu (enska: ECHA).

Almennt um bisfenól A á ensku á heimasíðu Matvælaöryggisstofnun Evrópu (enska: EFSA).

Almennt um bisfenól A á dönsku á heimasíðu Umhverfisstofnun Danmerkur (Miljøstyrelsen).

Almennt um bisfenól A á norsku á heimasíðu Miljøstatus sem er ritstýrt af Umhverfisstofnun Noregs (Miljødirektoratet).

Almennt um bisfenól A á sænsku á heimasíðu Efnastofnun Svíþjóðar (Kemikalieinspektionen).

Efni síðunnar var síðast uppfært 14. október 2022 á ust.is.

Blý

Blý (enska: lead) er eitt af frumefnum jarðar og er þungmálmur (enska: heavy metal). Það finnst í örlitlu magni í ýmsu bergi, seti og jarðvegi. Á síðustu öld jókst notkun blýs þar sem byrjað var að bæta því í alls kyns varning, til að mynda bensín, málningu, litarefni, málmblöndur og vatnslagnir. Stórfelld notkun þess leiddi til útbreiddrar blýmengunar þar sem mikið af því barst út í andrúmsloftið, mest frá bílum, og í jarðveg í kringum atvinnusvæði svo sem málmbræðslur.

Flest þróuð ríki bönnuðu blýbætt bensín upp úr 1980 en sum lönd tóku lengri tíma að fasa því út og var síðasta landið, Alsír, að klára sínar birgðir árið 2021. Þessi aðgerð gegn blýbættu bensíni leiddi til þess að á síðustu áratugum hefur losun á blýi minnkað verulega og að sama skapi útsetning fólks fyrir því. Í dag er helsta losunin tilkomin vegna skotfæra úr blýi sem menga jarðveg þar sem þau eru yfirleitt ekki hreinsuð upp.

Blý er hættulegt og getur meðal annars haft eiturhrif á æxlun (skaðsemi á frjósemi), valdið fæðingargöllum og skaðað börn sem eru á brjósti. Að auki eru blýsambönd sérlega eitruð vatnalífverum. Það tekur líkamann langan tíma að losa sig við blý og það getur haft áhrif á heilsu jafnvel í litlu magni. Langvarandi útsetning fyrir blýi getur valdið skaða á taugakerfinu, hjarta- og æðasjúkdóma, hækkuðum blóðþrýstingi og nýrnaskemmdum. Blý getur borist til fósturs á meðgöngu en þau eru viðkvæmust fyrir útsetningu. Fóstur og ungabörn sem komast í snertingu við blý eru í aukinni áhættu fyrir skerta vitsmunalega getu, hegðunarröskun, skerta heyrn og hindraðan vöxt beinagrindar.

Blý er takmarkað innan EES og kemur við sögu í nokkrum reglugerðum. Vert er að nefna hér nokkrar takmarkanir og bönn:

Ítarleg umfjöllun hjá systurstofnunum og öðrum alþjóðastofnunum

Upplýsingar um blý á heimasíðu lífvöktunarverkefnis Evrópusambandsins (enska: HBM4EU):

Almennt um blý á ensku á heimasíðu Efnastofnunar Evrópu (enska: ECHA).

Almennt um blý á dönsku á heimasíðu Umhverfisstofnun Danmerkur (Miljøstyrelsen).

Almennt um blý á norsku á heimasíðu Miljøstatus sem er ritstýrt af Umhverfisstofnun Noregs (Miljødirektoratet).

Almennt um blý á sænsku á heimasíðu Karolinska Institutet.

Efni síðunnar var síðast uppfært 18. janúar 2024 á ust.is.

Eldtefjandi efni

Þrátt fyrir að eldtefjandi efni séu flokkuð sem hópur vegna þess að þau eru notuð í sama tilgangi eru efnin ekki öll með líka efnafræðilega byggingu. Þeim má því skipta í undirhópa eftir efnasamsetningu og algengastir þeirra eru:

  • Brómuð eldtefjandi efni (enska: Brominated flame retardands, BFRs):
  • Fjölbrómaðir dífenýleterar (enska: Polybrominated diphenyl ethers, PBDEs)
  • Tetrabrómóbisefnól A (enska: Tetrabromobisphenol A, TBBPA)
  • Hexabrómósýklódódekön (enska: Hexabromocyclododecanes, HBCDDs)
  • Fjölbrómuð bífenýl (enska: Polybrominated biphenyls, PBBs)
  • Hexabrómóbífenýl (enska: Hexabromobiphenyl, HBB)
  • Klóruð lífræn eldtefjandi efni (enska: Organochlorine flame retardants, OCFRs)
  • Eldtefjandi lífræn fosfatefni (enska: Organophosphate flame retardants, OPFRs)

Efnin byrjuðu að ryðja sér til rúms á áttunda áratug 20. aldar þegar húsgögn og önnur tæki úr manngerðum efnum svo sem plasti, svampi og öðrum gerviefnum fóru að taka yfir markaðinn í stað hefðbundinna efna svo sem trés, málma, glers og náttúrulegra textílefna. Nýju vörurnar reyndust mun eldfimari en eldri vörur og því ákváðu framleiðendur að meðhöndla efniviðinn í vörunum með enn fleiri efnum til að minnka eldfimina.

Þrátt fyrir að eldtefjandi efni hægi á myndun loga þá er kviknar hraðar í og heimili geta fyrr orðið alelda heldur en þegar notast er við hefðbundinn efnivið. Þess heldur auka eldtefjandi efni reykinn sem myndast.

Eldtefjandi efni sem innihalda bróm hafa verið skilvirkust og vinsælust, en að auki hafa efni sem innihalda aðra halógena (flúor og klór) verið afar vinsæl þar sem þau haga sér mjög svipað. Upp úr síðustu aldamótum vöknuðu grunsemdir um skaðleg áhrif brómuðu efnanna á heilsu manna og umhverfis, einkum efnahópsins PBDE. Að auki kom í ljós að flest efnanna sem innihalda halógena safnast fyrir í fituvefjum lífvera og brotna hægt niður í líkama og náttúru. Þegar þau að lokum brotna niður í náttúrunni geta enn skaðlegri efni myndast við niðurbrotið. Sem dæmi má nefna niðurbrot í díoxín afleiður. Efnin losna út í náttúruna með því að leka úr hlutum – ýmist hlutum í notkun eða sem orðnir eru að úrgangi – og komast þannig í andrúmsloft, jarðveg og vatn.

Eftir að áhrif og eiginleikar brómuðu efnanna komu í ljós var ákveðið að takmarka notkun þeirra í Evrópu, en samhliða því fór atvinnulífið að skoða staðgöngukosti. Ákvörðun iðnaðarins var sú að notast við lífræn eldtefjandi efni, sem innihalda klór eða fosfathópa, við flestar aðstæður. Rannsóknir benda til að þessar nýrri tegundir eldtefjandi efna geti haft jafn skaðleg áhrif á heilsu manna og umhverfi eins og þau sem innihalda bróm. Nokkur þessara nýlegri efna hafa nú þegar verið takmörkuð og/eða bönnuð. Hins vegar liggja ekki fyrir nægar upplýsingar um áhrif allra efnanna þar sem rannsóknir eru tímafrekar og kostnaðarsamar vegna fjölbreytileika og stærðar hópsins.

Erfitt getur reynst fyrir neytendur að fá upplýsingar um efnainnihald í vörum, ekki síst um tegundir eldtefjandi efna sem gætu verið til staðar. Þetta er vegna þess að fyrirtækjum ber ekki skylda til að merkja vörur með nákvæmum innihaldslýsingum og upplýsingar geta týnst í aðfangakeðjunni einkum fyrir innfluttar vörur. Hópur efnanna sem notaður er í þessum tilgangi er einnig mjög stór og notaður í alls konar tilgangi og því er líklegt að við komumst í snertingu við nokkur mismunandi efni á hverjum degi. Þekkingu skortir á því hvort eða hvernig slíkur efnakokteill hefur áhrif á heilsu okkar og umhverfið.

Fjölbrómaðir dífenýleterar - PBDEs

Aðallega notuð í plast, textíl, raftæki, húsgögn og víra. Þetta voru framan af mest notuðu eldtefjandi efnin en notkun þeirra tók að dala í kringum síðustu aldamót í kjölfar aukinnar þekkingar á skaðsemi þeirra. Efnin geta auðveldlega lekið úr vörum vegna þess að þeim er bætt í vörur án þess að vera sérstaklega bundin við efnið/efnaviðinn sem þeim er bætt út í. Af þessum sökum geta þau farið út í andrúmsloftið og til að mynda bundist við ryk.

Lítið brómeruð PBDE efni geta safnast fyrir í fituvefjum lífvera og helmingunartími þeirra í líkama fólks nemur oft nokkrum árum. PBDE efni sem eru meira brómeruð hafa styttri helmingunartíma. Vegna þess að efnin geta safnast fyrir í fituvefjum dýra þá geta þau borist í okkur í gegnum kjötvörur og fituríkan mat. Í nokkrum löndum hefur verið fylgst með magni efnanna í brjóstamjólk og það virðist fara dvínandi í kjölfar takmarkana og banna á tilteknum PBDE efnum.

Þekktustu og mest rannsökuðu PBDE efnin eru listuð hér ásamt niðurstöðum rannsókna í dýrum:

  • Penta-BDE: Þrávirk og brotna lítið niður, geta magnast upp fæðukeðjuna líkt og PCB, hafa skaðleg áhrif á lifur, æxlunarfæri, skjaldkirtilshormón, ónæmiskerfið og þroska fósturs. Efnin geta borist til afkvæmis með brjóstamjólk.
  • Okta-BDE: Þrávirk og safnast mjög auðveldlega fyrir í lífverum. Geta haft áhrif á frjósemi, valdið fæðingargöllum og lækkað fæðingarþyngd nýbura.
  • Deka-BDE: Þrávirk, magnast upp fæðukeðjuna og ferðast auðveldlega langar vegalengdir og brotna niður í skaðlegri PBDE efni eins og til að mynda okta-BDE. Geta haft áhrif á tauga- og hormónakerfið og haft skaðleg áhrif á frjósemi.

Samþykkt var að setja tetra-, penta-, hexa-, hepta- og deka-BDE inn í Stokkhólmssamninginn um þrávirk lífræn efni til að stöðva notkun þeirra og framleiðslu. Nokkrar undanþágur eru hins vegar til staðar til notkunar í sértækum tilgangi. Hér á landi eru þessi efni takmörkuð með reglugerð nr. 954/2013 um þrávirk lífræn efni sem innleiðir reglugerð (ESB) nr. 1021/2019 sama efnis.

ATH! PBDE efni eru enn notuð við framleiðslu plasts í Kína og því er mikilvægt að vera gagnrýnin á vörur sem framleiddar eru utan EES þar sem efnalöggjöfin er með þeim strangari í heiminum.

Tetrabrómóbisefnól A - TBBPA

Efnið er aðallega notað í fjölliður og má meðal annars finna í prentplötum, rafeindatækjum og hitadeigu plasti (til dæmis fyrir sjónvörp). Talið er að notkun þess innan Evrópu sé mikil. Það er krabbameinsvaldandi og mjög hættulegt vatnsumhverfi. Efnastofnun Evrópu (enska: ECHA) er að meta hvort efnið hafi innkirtlatruflandi áhrif og hvort það sé þrávirkt.

TBBPA binst um 90% við plastfjölliður ólíkt öðrum eldtefjandi efnum og er því talið að útsetning okkar fyrir því sé almennt frekar lág. Hins vegar eykst sú útsetning í vinnuumhverfi starfsmanna sem vinna við að taka raftæki í sundur, til að mynda tölvur. Efnið er ekki takmarkað innan EES eins og er.

Hexabrómósýklódódekan - HBCDDs

Efnin voru notuð í einangrun í byggingariðnaði, einkum sem íblöndunarefni í pólýstýren (enska: Polystyrene, PS) froðu/svamp. Þau eru þrávirk, safnast fyrir í lífverum og eru eitruð, sérstaklega vatnalífverum. Efnin eru einnig grunuð um að valda skaða á frjósemi og fæðingargöllum. Að auki geta þau haft áhrif á þroska/þróun kerfa innan líkamans til að mynda beinagrindina, taugakerfið og ónæmiskerfið.

Efnin voru sett inn í Stokkhólmssamningin um þrávirk lífræn efni til að stöðva notkun þeirra og framleiðslu, en undanþága er veitt til notkunar í framleiðslu á pressuðu eða þöndu pólýstýren plasti (meðal annars frauðplasti) sem notað er í byggingariðnaði. Undanþágur eru oftast veittar vegna þess að ekki er búið að finna hentuga staðgöngulausn. Hér á landi eru þessi efni takmörkuð með reglugerð nr. 954/2013 um þrávirk lífræn efni sem innleiðir reglugerð (ESB) nr. 1021/2019 sama efnis.

Fjölbrómuð bífenýl - PBBs

Efnin voru mikið notuð á árum áður í textíl og nokkuð í plast og raftæki. Þeim var skipt út fyrir PBDE efni á áttunda áratug 20. aldar þegar notkun þeirra í textíl var bönnuð af ESB vegna skaða þeirra á heilsu manna. Þau eru bönnuð innan EES í textílvörum sem ætlað er að komast í snertingu við húð (REACH, XVII. viðauki, færsla 8; Umhverfis- og orkustofnun).

Hexabrómóbífenýl - HBB

Efnið var notað í húðun kapla, lökk, bílaáklæði og hitadeigt plast, einkum fyrir raftæki. Það hefur ekki verið notað innan EES í nokkra áratugi og framleiðsla þess og notkun er bönnuð í þeim löndum sem eru aðilar að Stokkhólmssamningnum um þrávirk lífræn efni. Að auki hefur efnið verið flokkað sem krabbameinsvaldandi. Tiltölulega auðvelt var að skipta efninu út þar sem staðgöngukostir voru þegar til staðar og fremur ódýrir.

Eldtefjandi lífræn fosfatefni - OPFRs

Þegar byrjað var að fasa út og takmarka notkun PBDE og annarra brómaðra efna í eldtefjandi tilgangi fór iðnaðurinn að skipta þeim út fyrir meðal annars OPFRs. Efnin eru notuð í margvíslegum tilgangi, meðal annars sem mýkiefni fyrir plast, og þau eru nú í öðru sæti yfir mest notuðu eldtefjandi efnin í Evrópu. Þau eru ekki bundin efniviðnum sem þeim er bætt við og geta því losnað út í umhverfið með uppgufun, núningi og/eða útskolun. Nokkur hafa verið takmörkuð og hættuflokkuð innan EES, má þar nefna:

Efnin hafa fundist á Norðurskautinu sem gefur til kynna að þau geti ferðast langar vegalengdir en þau brotna mjög hægt niður í náttúrunni. Að auki hafa þau greinst í þvagi Norskra barna og mæðrum þeirra.

Ítarleg umfjöllun hjá systurstofnunum og öðrum alþjóðastofnunum

Almennt um eldtefjandi efni á íslensku á heimasíðu verkefnisins efnafræðilega snjöll eyja (enska: chemically clever island).

Upplýsingar um eldtefjandi efni á heimasíðu lífvöktunarverkefnis Evrópusambandsins (enska: HBM4EU):

Almennt um brómeruð eldtefjandi efni á dönsku á heimasíðu Umhverfistofnun Danmerkur (Miljøstyrelsen).

Almennt um brómeruð eldtefjandi efni á norsku á heimasíðu Miljøstatus sem er ritstýrt af Umhverfisstofnun Noregs (Miljødirektoratet).

Almennt um eldtefjandi lífræn fosfórefni á norsku á heimasíðu Miljøstatus sem er ritstýrt af Umhverfisstofnun Noregs (Miljødirektoratet).

Upplýsingar um eldtefjandi efni á sænsku á heimasíðu Karolinska Institutet:

Efni síðunnar var síðast uppfært 28. desember 2022 á ust.is.

Kadmíum

Kadmíum (enska: cadmium) er eitt af frumefnum jarðar og er þungmálmur (enska: heavy metal). Það losnar bæði í náttúrunni við eldgos og við athafnir manna en það síðarnefnda veldur meiri losun efnisins út í umhverfið. Upptaka efnisins í líkamann er fremur lítil en vandamálið er að það safnast frekar auðveldlega fyrir í lifur og nýrum en það hefur um 10 – 30 ára líffræðilegan helmingunartíma sem þýðir að erfitt er að losna við efnið þegar það er komið inn í líkamann. Ekki er vitað til þess að kadmíum þjóni tilgangi í lífverum en það hermir eftir öðrum málmum sem eru nauðsynlegir í ýmsum líffræðilegum ferlum. Algengara er fyrir yngri konur en karla að taka upp kadmíum vegna þess að konur á barneignaraldri og þungaðar konur eru líklegri til að vera með járnskort og við það ástand á líkaminn það til að taka upp meira kadmíum úr fæðunni.

Kadmíum er flokkað meðal annars sem efni sem hefur bráð eiturhrif, stökkbreytandi áhrif á kímfrumur, krabbameinsvaldandi áhrif og að hafa bráð og langvarandi eiturhrif á líf í vatni. Flest kadmíum efnasambönd eru mjög eitruð í miklu magni og er talið að þau auki líkur á krabbameini einkum í lungum. Að auki er talið að efnin geti haft áhrif á frjósemi, myndun fæðingargalla, nýrnaskemmdir og beinþynningu. Verið er að meta kadmíum vegna stökkbreytandi áhrifa og eiturhrifa á æxlun af Efnastofnun Evrópu (enska: ECHA).

Kadmíum og efnasambönd þess eru takmörkuð og/eða bönnuð með nokkrum reglugerðum hér á landi og innan EES. Vert er að nefna hér nokkrar þeirra:

ATH - Kadmíum getur komið fyrir í ýmsum matvælum en sú umfjöllun verður ekki rakin hér. Ef áhugi er fyrir fróðleik og leiðbeiningum varðandi kadmíum í mat þá bendum við á ráðleggingar frá Matvælastofnun Danmerkur vegna kadmíum efnasambanda á dönsku og Álit varðandi kadmíum í mat frá Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA) á ensku.

Ítarleg umfjöllun hjá systurstofnunum og öðrum alþjóðastofnunum

Upplýsingar um kadmíum á heimasíðu lífvöktunarverkefnis Evrópusambandsins (enska: HBM4EU):

Almennt um kadmíum á norsku á heimasíðu Miljøstatus sem er ritstýrt af Umhverfisstofnun Noregs (Miljødirektoratet).

Almennt um kadmíum á sænsku á heimasíðu Karolinska Institutet.

Efni síðunnar var síðast uppfært 11. janúar 2024 á ust.is.

Klóruð paraffín

Klóruð paraffín (enska: chlorinated paraffins, CPs) er samheiti fyrir stóran flokk efna. Þeim má skipta í þrjá meginundirhópa eftir lengd kolefniskeðjunnar og teljast þá hafa stutta (enska: short-chain CPs (SCCPs), C10-C13), miðlungslanga (enska: medium-chain CPs (MCCPs), C14-C17) eða langa (enska: long-chain CPs (LCCPs), C18-C28) keðju. Algengt er að nota blöndu af efnunum í hluti en ekki einungis eitt efni úr hópnum.

Efnin eru notuð aðallega sem eldtefjandi efni í plasti, gúmmíi og textíl og einnig sem mýkiefni í plasti, einkum pólývínýlklóríð plasti (enska: PVC, plasttegund nr. 3), og málningu. Algengt er að klóruðum paraffínum sé bætt í textíl við framleiðslu til að hrinda frá vatni og öðrum efnum og einnig sem fúavörn. Þau geta hins vegar sloppið út í umhverfið við framleiðslu, notkun og úreldingu, til að mynda í landfyllingum, við bruna úrgangs og í seyru.

Bæði SCCP og MCCP hóparnir eru skilgreindir sem þrávirk efni sem safnast fyrir í lífverum og eru eitruð (enska: persistent, bioaccumulative and toxic substances, PBTs). Að auki eru þeir báðir flokkaðir sem hættulegir fyrir vatnsumhverfi (Bráð eit. á vatn 1 og Langv. eit. á vatn 1). SCCP eru nú í mati hjá Efnastofnun Evrópu (enska: ECHA) sem mögulegir krabbameinsvaldar en búið er að meta flokkinn sem þrávirk lífræn efni (enska: persistent organic pollutants, POPs). Erfitt hefur reynst að efnagreina og meta efnin og því skortir enn frekari þekkingu varðandi áhrif flestra efnanna á heilsu fólks og umhverfis. Bæði Efnastofnun Evrópu og Matvælaöryggisstofnun Evrópu (enska: EFSA) hafa kallað eftir frekari upplýsingum og rannsóknum á efnunum.

Ákveðið hefur verið að takmarka klóruð paraffín eftir kolefnislengd. Byrjað var að takmarka SCCP vegna útbreiðslu og mikillar framleiðslu. Samþykkt var að setja flokkinn inn í Stokkhólmssamninginn um þrávirk lífræn efni til að stöðva notkun hans og framleiðslu. Innan EES er bannað að framleiða, markaðssetja eða nota SCCP efni nema þau komi fyrir sem óviljandi snefilefni í styrk sem er lægri en 1% af heildarþyngd vöru eða styrk lægri en 0,15% af þyngd efnablöndu (I. viðauki, POPs; Umhverfis- og orkustofnun). Að auki er flokkurinn bannaður í öllum snyrtivörum (reglugerð nr. 577/2013 um snyrtivörur sem innleiðir reglugerð (EB) nr. 1223/2009 með sama heiti, sjá II. viðauka, Umhverfis- og orkustofnun).

Eftir að byrjað var að takmarka SCCP fóru framleiðendur að skipta efnunum sem tilheyra flokknum út fyrir efni sem tilheyra MCCP. Efnastofnun Evrópu hefur lagt til við framkvæmdarstjórn ESB að takmarka notkun MCCP og er hægt að fylgjast með þeirri vinnu hér. Að auki er vinna hafin við að koma MCCP inn í Stokkhólmssamninginn og er hægt að fylgjast með þeirri framvindu hér. Enn sem komið er skortir þekkingu á LCCP og því er notkun efnanna í þeim flokki ekki takmörkuð innan EES.

Ítarleg umfjöllun hjá systurstofnunum og öðrum alþjóðastofnunum

Almennt um klóruð paraffín á norsku á heimasíðu Miljøstatus sem er ritstýrt af Umhverfisstofnun Noregs (Miljødirektoratet).

Áhættumat á klóruðum paraffínum á ensku á heimasíðu Matvælaöryggisstofnun Evrópu (enska: EFSA).

Skýrsla um áhættugreiningu á stuttkeðju klóruðum paraffínum á ensku sem birt er á heimasíðu Efnastofnunar Evrópu (enska: ECHA).

Efni síðunnar var síðast uppfært 11. janúar 2024 á ust.is.

Króm

Króm (enska: chromium) er eitt af frumefnum jarðar og finnst í fjölmörgum efnasamböndum sem eru misskaðleg. Króm kemur fyrir í grjóti, plöntum, jarðvegi og lífverum og er meðal annars talið að þrígilt króm sé nauðsynlegt næringarefni þegar það er í snefilmagni fyrir sumar lífverur. Króm í formi málms (Cr(0)) er ekki skaðlegt heilsu okkar og er aðalleg notað við framleiðslu á ryðfríu stáli en það hefur hátt tæringarþol og eðlishörku. Hættulegustu krómsamböndin eru sexgild krómsambönd (Cr(VI)) og eru þau sérlega eitruð vatnalífverum. Myndun þeirra er einkum vegna athafna manna en þau finnast í sementi og hafa einnig verið notuð við vinnslu á leðri. Algengasta aðferðin við að undirbúa húðir fyrir leðurgerð nú til dags notast við þrígilt króm (Cr(III)).

Áður fyrr var timbur gagnvarið með svokallaðri CCA þrýstimeðferð þar sem krómi (C), kopar (C) og arseni (A) var þrýst inn í viðinn. Slíkt timbur var takmarkað hér á landi árið 2004 en um er að ræða timbur sem kemur fúavarið í innflutningi en ekki hefðbundin fúavörn sem hægt er að versla út í búð og bera á sjálfur með pensli. Efnin munu halda áfram að leka úr gömlu CCA meðhöndluðu timbri næstu árin, en CAA meðhöndlað timbur flokkast sem spilliefni og því verður að skila á endurvinnslustöð sem slíku. Það má ekki brenna slíkt timbur þar sem efnin mynda eitraðan reyk, ryk og ösku.

Þegar talað er um skaðsemi og hættu vegna krómsambanda er yfirleitt verið að fjalla um þrígild og sexgild krómsambönd, en flestar takmarkanir eru á því síðarnefnda. Sexgild krómsambönd eru krabbameins- og ofnæmisvaldandi, auka líkur á exemi og hafa eiturhrif á erfðaefni. Þeir sem eru í mestri hættu af mögulegum áhrifum sexgildra krómsambanda eru vinnumenn í málningarframleiðslu, málmbræðslum, sementframleiðslu, leðurvinnslu og við framleiðslu á viðarvörnum. Þrígild krómsambönd eru talin minna skaðleg en sexgild en þau eru hins vegar varhugaverð og geta til að mynda valdið ofnæmi og exemi hjá fólki. Að auki hefur það komið fyrir að þrígild krómsambönd oxist yfir í sexgild í leðurvörum við geymslu.

Króm og efnasambönd þess eru takmörkuð og/eða bönnuð undir nokkrum reglugerðum hér á landi og innan EES. Vert er að nefna hér nokkrar þeirra:

Ítarleg umfjöllun hjá systurstofnunum og öðrum alþjóðastofnunum

Upplýsingar um sexgilt króm á heimasíðu lífvöktunarverkefnis Evrópusambandsins (enska: HBM4EU):

Almennt um króm á norsku á heimasíðu Miljøstatus sem er ritstýrt af Umhverfisstofnun Noregs (Miljødirektoratet).

Almennt um króm á sænsku á heimasíðu Karolinska Institutet.

Efni síðunnar var síðast uppfært 2. apríl 2024 á ust.is.

Kvikasilfur

Kvikasilfur (enska: mercury) er eitt af frumefnum jarðar og er í flokki þungmálma (enska: heavy metal). Kvikasilfur og efnasambönd þess, bæði ólífræn og lífræn, eru meðal hættulegustu eiturefna sem við þekkjum bæði fyrir heilsu okkar og umhverfið. Það er ólíkt öðrum málmum á ýmsan hátt og er til að mynda eini málmurinn sem er á fljótandi formi við stofuhita. Kvikasilfur gufar upp að hluta jafnvel við stofuhita og getur ferðast langar vegalengdir frá uppruna sínum. Kvikasilfur oxast í háloftunum og fellur til jarðar með rigningu. Örverur geta svo, undir ákveðnum skilyrðum, breytt kvikasilfri í metýlkvikasilfur sem er mjög eitrað og magnast upp fæðukeðjuna.

Kvikasilfur myndast náttúrulega í jarðskorpunni og kemst upp á yfirborðið með eldgosum en er þá ekki í mikilli snertingu við okkur þar sem það er bundið í steinefnum. Athafnir manna og notkun kvikasilfurs í vörur hafa leitt til þess að það dreifist út í umhverfið og kemst þá í snertingu við okkur og aðrar lífverur. Algengt var til að mynda að nota kvikasilfur í hitamæla og sem tannfyllingar, amalgam, en nú er það mikið til takmarkað og bannað. Aðrar uppsprettur kvikasilfurs eru meðal annars brennsla á kolum, sorpbrennsla, málmbræðsluver, námuvinnslur á gulli sem eru smáar í sniðum og bálstofur.

Fóstur og ungabörn eru hve viðkvæmust fyrir útsetningu á kvikasilfri en það getur borist úr blóði móður í gegnum fylgjuna og til fósturs. Þar getur það haft skaðleg áhrif á miðtaugakerfið og þá sérstaklega þroska heilans í fóstrinu. Skaðsemi kvikasilfurseitrunar blasti við alþjóðasamfélaginu þegar þúsundir manna í Japan urðu fyrir slíkri eitrun vegna frárennslis frá efnaverksmiðju í Minamata sem innihélt mikið magn kvikasilfurs, en kvikasilfurseitrun kallast einnig Minamata sjúkdómurinn.

Vegna skaðsemi kvikasilfurs var ákveðið að stofna til alþjóðasamnings til að vernda heilsu manna og umhverfið fyrir kvikasilfri og kvikasilfursefnasamböndum sem eru tilkomin af mannavöldum. Sá samningur heitir Minamatasamningurinn og er Ísland aðili að honum ásamt um 140 öðrum löndum. Almennt hefur iðnríkjum tekist vel að skipta út kvikasilfri fyrir staðgöngukosti en þeir geta reynst dýrir og þar af leiðandi eru þróunarríkin ekki eins vel stödd og þar heldur notkunin áfram að vera vandamál.

Á EES svæðinu er kvikasilfur bannað og/eða takmarkað og kemur við sögu í nokkrum reglugerðum. Hér eru nokkrar þeirra:

Bannað er að markaðssetja og nota kvikasilfur í vörur sem eru ætlaðar eru til að hindra vöxt örvera, plantna eða dýra á skip, tæki eða búnað fyrir fiskeldi, hvern þann búnað sem er alveg eða að hluta til á kafi í vatni. Að auki má ekki nota það til viðarvarnar, við gegndreypingu slitþolinna iðnaðartextíla og garns í framleiðsluferlinu og við meðhöndlun vatns frá iðnaði (REACH, XVII. viðauki, færsla 18; Umhverfis- og orkustofnun).

Bannað er að markaðssetja líkamshitamæla og önnur mælitæki sem eru ætluð til sölu til almennings sem innihalda kvikasilfur (REACH, XVII. viðauki, færsla 18a; Umhverfis- og orkustofnun).

Sérstök viðmiðunarmörk gilda fyrir kvikasilfur þegar það er notað í þurru, stökku duftkenndu eða þjálu leikfangaefni, í fljótandi eða límkenndu leikfangaefni eða í leikfangaefni sem er skafið af (II. viðauki við reglugerð nr. 944/2014 um öryggi leikfanga, 3. gr. 13. gr.; HMS).

Í tilteknum raf- og rafeindatækjum má kvikasilfur ekki vera meira en 0,1 % af þyngd í einsleitum efnum (reglugerð nr. 630/2014 um takmarkanir á notkun tiltekinna, hættulegra efna í raf- og rafeindabúnaði; HMS).

Ekki er heimilt að nota amalgam við tannlæknameðferð barnatanna fyrir börn sem eru undir 15 ára nema algjör nauðsyn þyki (reglugerð nr. 640/2022 um kvikasilfur; Umhverfis- og orkustofnun)

ATH - Kvikasilfur getur komið fyrir í ýmsum fiskum, einkum túnfiski, en sú umfjöllun verður ekki rakin hér. Ef áhugi er fyrir fróðleik og leiðbeiningum vegna kvikasilfurs í mat þá bendum við á ráðleggingar frá Matvælastofnun Danmerkur vegna kvikasilfurs á dönsku og Áliti á kvikasilfri í mat frá Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA) á ensku.

Ítarleg umfjöllun hjá systurstofnunum og öðrum alþjóðastofnunum

Upplýsingar um kvikasilfur á heimasíðu lífvöktunarverkefnis Evrópusambandsins (enska: HBM4EU):

Almennt um kvikasilfur á dönsku á heimasíðu Miljøstyrelsen

Almennt um kvikasilfur á norsku á heimasíðu Miljøstatus sem er ritstýrt af Miljødirektoratet

Almennt um kvikasilfur á sænsku á heimasíðu Karolinska Institutet

Efni síðunnar var síðast uppfært 2. apríl 2024 á ust.is.

Moskus efnasambönd

Moskus efnasambönd (enska: musk compounds, synthetic musks) eru manngerð ilmefni sem voru þróuð til þess að líkja eftir moskusilmefnum sem fengin eru frá hjartardýrum og uxum. Almennt er moskus efnasamböndum skipt í þrjá undirhópa, nítrómoskus (enska: nitro musk), fjölhringja moskus (enska: polycyclic musk) og stórhringja moskus (enska: macrocyclic musk). Efni sem tilheyra nítrómoskus hópnum voru mjög vinsæl á árum áður innan EES, einkum moskusxýlen (enska: musk xylene) og moskusketón (enska: musk ketone). Þrjú önnur efni tilheyra nítróhópnum, moskusambrett (enska: musk ambrette), moskusmosken (enska: musk moskene) og moskustibeten (enska: musk tibetene), en þau eru almennt bönnuð vegna alvarlegra áhrifa þeirra.

Nítrómoskus efni brotna mjög hægt niður í umhverfinu og safnast upp í lífverum, einkum í fituvefjum en efnin eru ekki vatnsleysanleg. Moskusxýlen og moskusketón eru bæði flokkuð sem mjög eitruð vatnalífverum með langvarandi áhrifum og eru grunuð um að vera krabbameinsvaldar. Efnin tvö eru takmörkuð í snyrtivörum og gildir eftirfarandi:

  • moskusxýlen má vera til staðar í allt að 1 % í ilmvötnum, 0,4 % í kölnarvatni (enska: eau de toilette) og 0,03 % í öðrum vörum.
  • moskusketón má vera til staðar í snyrtivörum í allt að 1,4 % í ilmvötnum, 0,56 % í kölnarvatni og 0,042 % í öðrum vörum.

sbr. reglugerð nr. 577/2013 um snyrtivörur sem innleiðir færslur 96 og 97 í III. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1223/2009 með sama heiti.

Vert er að nefna að moskusxýlen er leyfisskylt efni og þar sem tímafresturinn til að sækja um leyfi fyrir framleiðslu þess og notkun rann út án þess að umsóknir bærust er efnið í raun bannað innan EES (XIV. viðauki við REACH, færsla 1; Umhverfis- og orkustofnun). ATH moskusxýlen og moskusketón eru enn mikið notuð í Kína, Indlandi og Bandaríkjunum.

Þegar byrjað var að takmarka nítrómoskus efnin þá fór iðnaðurinn að skipta þeim út fyrir fjölhringja moskus efni. Meðal þekktra efna þess hóps eru galaxólíð (enska: galaxolide/HHCB), tónalíð (enska: tonalide), selestólíð (enska: celestolide) og traseólíð (enska: traseolide). Efnin eru ekki takmörkuð innan EES en galaxólíð hefur samræmda flokkun sem mjög eitrað vatnalífverum með langvarandi áhrifum og er í mati hjá Efnastofnun Evrópu (enska: ECHA) sem innkirtlatruflandi efni og PBT efni (þrávirkt efni sem safnast upp í lífverum og er eitrað). Tónalíð er einnig í mati hjá ECHA varðandi innkirtlatruflandi eiginleika og er grunað um að vera mjög eitrað vatnalífverum. Að auki hefur það verið tilkynnt til ECHA að efnið beri með sér flokkunina bráð eiturhrif 4 (enska: acute tox. 4), bráð eiturhrif á vatn 1 (aquatic acute 1) og langvarandi eitrunarhrif á vatn 1 (enska: aquatic chronic 1).

Moskus ilmefni eru ódýr og veita langvarandi ilm sem gera þau vinsæl, en innan EES er galaxólíð mest notað af fjölhringja moskus efnum.

ATH – Yfirleitt eru þessi heiti efna ekki að finna á innihaldslýsingum snyrtivara en almennt tíðkast að nota „parfum“ eða „fragrance“ fyrir ilmefni þar sem fleiri en eitt ilmefni er til staðar í snyrtivörum.

Ítarleg umfjöllun hjá systurstofnunum og öðrum alþjóðastofnunum

Almennt um musk efnasambönd á norsku á heimasíðu Miljøstatus sem er ritstýrt af Umhverfisstofnun Noregs (Miljødirektoratet).

Skýrsla á ensku um álit Vísindanefndar um öryggi neytenda (enska: SCCS) á moskusxýlen og moskusketón.

Efni síðunnar var síðast uppfært 3. apríl 2024 á ust.is.

Paraben

Paraben er hópur líkra efna sem notuð eru sem rotvarnarefni í til að mynda snyrtivörum fyrir bæði börn og fullorðna, matvælum og hreinlætisvörum. Rotvarnarefni hindra bakteríu- og mygluvöxt og viðhalda gæðum vara í lengri tíma. Í snyrtivörum tíðkast að nota efnin metýl-, etýl-, própýl- og bútýlparaben. Oft eru notuð fleiri en eitt þessara efna í sömu vöruna, en paraben eru oftast notuð í lágum styrk.

Deilt hefur verið um skaðsemi efnanna en almennt teljast þau sýna skaðleg áhrif þegar þau koma fyrir í háum styrk (að minnsta kosti hærri en 0,4 %). ATH – innihaldsefni snyrtivara birtast í styrkleikaröð á vörunni, paraben ættu að vera meðal þeirra síðarnefndu á listum. Hins vegar er ekki til nægileg þekking á áhrifum efnanna á okkur þegar við erum í sífelldri snertingu við þau í lágum styrk. Sum þeirra eru talin herma eftir hormóninu estrógen, önnur eru talin draga úr frjósemi karla og hafa áhrif á gæði sæðis á meðan enn önnur eru talin ekki hafa óæskileg áhrif yfirhöfuð. Skaðleg áhrif efnanna virðist aukast með stærð sameindarinnar (svo sem með aukinni lengd og greinum alkýl hliðarkeðjunnar).

Samkvæmt mati Efnastofnunar Evrópu (enska: ECHA) er eitt efnanna, bútýlparaben (enska: butylparaben), innkirtlatruflandi (enska: endocrine disrupting) og hefur verið bætt á listann yfir sérlega varasöm efni. Tvö önnur paraben eru nú í mati vegna gruns um innkirtlatruflandi eiginleika, en það eru efnin própýlparaben (enska: propylparaben) og metýlparaben (enska: methylparaben). Eins og staðan er í dag hyggst ECHA ekki meta etýlparaben (enska: ethylparaben) þar sem ekki er grunur um innkirtlatruflandi eiginleika þess. Engu að síður hafa dýratilraunir sýnt annars konar óæskileg áhrif efnisins þegar það kemur fyrir í stórum skömmtum (hægt er að skoða þau gögn undir tenglum neðst á þessari síðu hjá SCCS og EFSA).

Vísindanefnd um öryggi neytenda (enska: SCCS) lagði fram álit sitt á parabenum (nýjasta útgáfa er frá 2013) og var það tekið til greina við ákvörðun um takmarkanir á parabenum í snyrtivörum:

  • Leyfilegur hámarksstyrkur fyrir metýl- eða etýlparaben sem rotvarnarefni er 0,4 % af heildarþyngd vörunnar af hvoru efni fyrir sig.
  • Bútýl- eða própýlparaben mega ekki fara yfir 0,14 % af heildarþyngd snyrtivara sem rotvarnarefni.
  • Bútýl- eða própýlparaben mega ekki vera í snyrtivörum sem hannaðar eru til notkunar á bleyjusvæði barna yngri en 3 ára.
  • Heildarstyrkur fyrir metýl-, etýl-, bútýl- og própýlparaben þegar þau eru notuð í sömu vöruna má ekki fara yfir 0,8 % af heildarþyngd vörunnar.

Fimm aðrar gerðir parabena eru bannaðar í framleiðslu á snyrtivörum og mega ekki vera til staðar hvort sem er ein og sér eða sem blanda, það er isóprópýlparaben, ísóbútýlparaben, fenýlparaben, benzýlparaben og pentýlparaben.

Hægt er að forðast snyrtivörur sem innihalda paraben með því að kaupa áreiðanlegar umhverfisvottaðar vörur, til að mynda Svaninn. Slík merki beita oft varúðarráðstöfunum þar sem að ef einhver grunur leikur á að efni hafi neikvæð áhrif á heilsu eða umhverfi þá eru þau tekin úr umferð til öryggis.

Ítarleg umfjöllun hjá systurstofnunum og öðrum alþjóðastofnunum

Almennt um paraben á dönsku á heimasíðu Umhverfisstofnun Danmerkur (Miljøstyrelsen).

Umfjöllun um paraben og snyrtivörur á dönsku á heimasíðu Umhverfisstofnun Danmerkur (Miljøstyrelsen).

Almennt um rotvarnarefni á norsku á heimasíðu Svansmerkisins.

Álit varðandi paraben, nýjasta útgáfa á ensku birt af vísindanefnd um öryggi neytenda, ESB (enska: SCCS).

Álit á öryggi parabena í matvælum á ensku á heimasíðu Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (enska: EFSA).

Efni síðunnar var síðast uppfært 21. desember 2022 á ust.is.

PFAS

PFAS (enska: per- and polyfluorinated alkyl substances) er stór efnahópur sem samanstendur af tugþúsunda manngerða efnum. Öll eiga þau það sameiginlegt að hafa mjög sterkt efnatengi á milli kolefnis og flúoratóma sem gerir það að verkum að þau eru afar óhvarfgjörn og stöðug við notkun og í umhverfinu. Rannsóknir benda til að efnin brotni ekki að fullu niður í náttúrunni. Sum þeirra brotna ekkert niður á meðan önnur brotna mjög hægt niður en mynda þá önnur PFAS efni. Því eru efnin kölluð þrávirk og geta magnast upp í mönnum, dýrum og umhverfinu með tímanum.

Efnin eru mörg hver vatnsleysanleg og hreyfanleg í jarðvegi. Þegar þau losna út í umhverfið ferðast þau aðallega með loft- og vatnsstraumum og geta því borist langa leið frá uppruna sínum. Þau hafa fundist bæði í lífverum og í umhverfinu um allan heim meðal annars á Norðurlöndunum og norðurskautssvæðinu.

Þekktustu og mest rannsökuðu PFAS efnin eru PFOS (enska: perfluorooctanesulfonate) og PFOA (enska: perfluorooctanoic acid) og hafa þau bæði verið flokkuð meðal annars sem efni sem hafa eiturhrif á æxlun (enska: reproductive toxicant) og sem grunaðir krabbameinsvaldar. PFOA (einnig þekkt sem C8) var notað í nokkra áratugi til að framleiða Teflon viðloðunarfríar pönnur en var fasað út eftir að skaðsemi þess kom í ljós. Síðustu ár hefur vísindasamfélagið lagt áherslu á að skoða skaðsemi PFAS efna en vegna fjölda þeirra er það tímafrekt verk sem er hvergi nærri lokið. Því skortir enn þekkingu varðandi áhrif flestra PFAS efna á heilsu fólks og umhverfið.

Efnin finnast í alls kyns vörum sem við notum dags daglega. Fyrirtækjum ber ekki skylda til að taka fram að PFAS efni séu til staðar í vörum þeirra. Þess vegna er góð leið til að forðast efnin að velja vörur sem eru umhverfismerktar eða sérstaklega merktar sem PFAS-fríar.

Nokkur PFAS efni eru takmörkuð innan EES með reglugerð (ESB) nr. 1021/2019 um þrávirk lífræn efni. Takmarkanirnar ná til tiltekinna efna en ná ekki yfir allan PFAS efnahópinn sem slíkan. Þetta getur leitt til þess að efnum sem heyra undir takmarkanirnar sé skipt út fyrir lík PFAS efni sem ekki eru takmörkuð. Í ESB er til skoðunar að takmarka öll PFAS efni og myndi Efnastofnun Evrópu (enska: ECHA) þá leggja mat á allan hópinn einu í stað þess að taka fyrir eitt efni fyrir sig.

Ítarleg umfjöllun hjá systurstofnunum og öðrum alþjóðastofnunum

Upplýsingar um PFAS á heimasíðu lífvöktunarverkefnis Evrópusambandsins (enska: HBM4EU):

Almennt um PFAS efni á ensku á heimasíðu Efnastofnunar Evrópu (enska: ECHA).

Fróðleikur um PFAS efni á ensku á heimasíðu OECD.

Almennt um PFAS efni á dönsku á heimasíðu Umhverfisstofnun Danmerkur (Miljøstyrelsen).

Almennt um PFAS efni á norsku á heimasíðu Miljøstatus sem er ritstýrt af Umhverfisstofnun Noregs (Miljødirektoratet).

Almennt um PFAS efni á sænsku á heimasíðu Umhverfisstofnun Svíþjóðar.

Umfjöllun um PFAS efni á sænsku á heimasíðu Efnastofnunar Svíþjóðar (Kemikalieinspektionen):

Efni síðunnar var síðast uppfært 20. september 2022 á ust.is.

Síloxön

Síloxön er stór hópur manngerðra efna sem innihalda efnatengið Si-O og mynda með því stuttar eða langar keðjur eða hringi með ólíkum hliðarhópum tengdum við kísilatómin. Þessi umfjöllun einskorðast við hringuð síloxön vegna útbreiddrar notkunar og þekktra skaðlegra áhrifa þeirra. Nokkuð er um að keðjulaga síloxön séu látin koma í stað hringaðra en ekki er til nægileg þekking á skaðsemi og eiginleikum þeirra til að fjalla um þá eins og er.

Hringuð síloxön

Efnin eru flest hver mjög rokgjörn og ferðast einkum með lofti og vatni langar vegalengdir. Í andrúmsloftinu geta efnin hvarfast við hýdroxý radíkala/stakeindir en eru annars mjög þolin gagnvart oxun, afoxun og ljóssundrun. Að auki eru þau frekar torleyst í vatni og eiga það til að bindast við agnir og set og safnast þar upp. Þetta á sérstaklega við um seyru í skólphreinsistöðvum, en hár styrkur síloxana hefur greinst í seyru á Norðurlöndunum, einkum Finnlandi og Danmörku.

Algengast er að finna efnin í snyrti- og hreinlætisvörum en þau eru einnig notuð í framleiðslu á sílikon fjölliðum. Ástæða þess að þeim er bætt út í slíkar vörur er sú að efnin auðvelda notkun varanna, til að mynda með því að gera krem smyrjanlegri, til að gera innihaldið kekkjalaust og til að bera viðbætt lyktarefni á líkamann. Að auki eru efnin mýkjandi, afrafmagnandi, froðueyðandi og geta leyst önnur innihaldsefni upp. Við notkun á húð gufa síloxönin frekar auðveldlega upp eða um 70% af magni þeirra að talið er. Samt sem áður hafa efnin greinst í blóðsýnum fólks á Norðurlöndunum.

Við uppgufunina enda efnin í náttúrunni en þau geta haft óafturkræf skaðleg áhrif á lífríki vatns og sjávar. Einnig eiga þau til að magnast upp fæðukeðjuna og safnast fyrir í lífverum. Nú þegar hafa nokkur efnanna verið flokkuð sem þrávirk efni sem safnast fyrir í lífverum og eru eitruð, svo kölluð PBT-efni, þau eru:

  • Oktametýlsýklótetrasíloxan (D4) - Einnig grunað um að vera efni sem hefur eiturhrif á æxlun, undir mati Efnastofnunar Evrópu sem þrávirkt lífrænt efni (POPs) og hefur hættuflokkunina langvarandi eiturhrif á vatn 1.
  • Dekametýlsýklópentasíloxan (D5) - Ekki er búið að ákvarða samræmda hættuflokkun hjá Efnastofnun Evrópu en verið er að meta nokkrar möguleika.
  • Dódekametýlsýklóhexasíloxan (D6) - Ekki er búið að ákvarða samræmda hættuflokkun hjá Efnastofnun Evrópu en verið er að meta nokkrar möguleika .

Öll þrjú efnin hafa verið sett álistann yfir sérlega varasöm efni samkvæmt REACH vegna PBT og vPvB (mjög þrávirkt efni sem safnast fyrir í lífverum í miklum mæli) eiginleika þeirra. Að auki var sett takmörkun á leyfilegt innihald D4 og D5 í snyrtivörum. Styrkur hvors efnanna í snyrtivörum sem þvegnar eru af skal vera minni en 0,1 % miðað við þyngd (sjá REACH, XVII. Viðauka, færsla 70; Umhverfis- og orkustofnun). Sem dæmi um slíkar vörur má nefna sjampó, hárnæringu og sápur. Þessi takmörkun tók gildi 31. janúar 2020 og því gæti verið að eldri snyrtivörur innihaldi efnin í hærri styrk.

Aðrar tegundir snyrtivara mega ekki innihalda D4 (reglugerð nr. 577/2013 um snyrtivörur sem innleiðir reglugerð (EB) nr. 1223/2009með sama heiti, sjá II. viðauka; Umhverfis- og orkustofnun) vegna mögulegra áhrifa þess á frjósemi og æxlun, en reglugerðin tekur ekki á D5 og því er leyfilegt að bæta því við ýmsar vörur, til að mynda svitalyktaeyða.

Snyrtivörur fylgja oft öðrum nafnahefðum heldur en aðrar vörur og því gæti verið að snyrtivara sem er til á heimilinu sé með hringað síloxan þó það standi ekki á innihaldslýsingu vörunnar. Innan snyrtivörugeirans eru hringuð síloxön kölluð sýklómetíkon (enska: cyclomethicone) og er það að hluta til vegna þess að oft eru blöndur af hringuðum síloxönum til staðar í einni vöru og þá listuð sem almenna heitið sýklómetíkon. Vert er að nefna að Svanurinn bannar síloxön í vörum sem bera þeirra merki.

Í Noregi er virk skimun á ýmsum efnum í skólphreinsistöðvum og síðustu ár hefur styrkur efnanna D4, D5, D6 verið að aukast í seyrunni sem bendir til þess að notkun þeirra sé að aukast. Noregur fylgist áfram með þróuninni og vinnur að því að auka þekkingu á fleiri hringuðum síloxönum. Efnastofnun Evrópu vinnur einnig að mati á hættuflokkun og eiginleika efnanna.

Ítarleg umfjöllun hjá systurstofnunum og öðrum alþjóðastofnunum

Almennt um síloxöná norsku á heimasíðu Miljøstatus sem er ritstýrt af Umhverfisstofnun Noregs (Miljødirektoratet).

Yfirlit um síloxöná ensku á heimasíðu Norwegian Institute for Air Research (enska: NILU).

Skýrsla um síloxön á Norðurlöndunumá ensku á vegum undirhóps Norrænu ráðherranefndarinnar.

Efni síðunnar var síðast uppfært 3. nóvember 2022 á ust.is.

Þalöt

Þalöt eru stór hópur efna með mismunandi eiginleika og notkun, en efnin hafa öll sömu grunnbyggingu. Algengasta notkun þeirra er sem mýkiefni fyrir pólývínýlklóríð plast (enska: PVC, plasttegund nr. 3). PVC er í eðli sínu mjög hart/stökkt og er því almennt mýkt með um 40-50% af þyngd sinni með mýkiefnum á borð við þalöt. Notkunarsvið PVC er afar breitt en það er meðal annars notað í leikföng, pípulagnir, rafkapla, textíl, gólfefni, lækningatæki, matvælaumbúðir, íþróttabúnað og umbúðir.

Þalöt eru einnig notuð sem leysar og sem bindiefni, til að mynda til að halda ilm í vörum, draga úr sprungumyndun í naglalakki og auðvelda vörum að komast í gegnum húðina og gefa henni raka. Því má áætla að útsetning okkar í daglegu lífi sé mikil.

Útgufun og leki þalata úr efninu/miðlinum, til dæmis plasti, er lítill en stöðugur þar sem þau eru ekki bundin við plastið og eru lítið rokgjörn við venjulegar aðstæður. Losunin eykst þegar varan/hluturinn hitnar eða kemst í snertingu við fitu, til að mynda ost eða feitt kjöt. Þalöt sem losna út í umhverfið bindast gjarnan við ryk og geta þannig borist langar vegalengdir með lofti. Í umhverfinu brotna mörg efnanna frekar auðveldlega niður í vatni, en mun hægar í seti og jarðvegi. Að auki geta þalöt safnast upp í mismiklu mæli í lífverum, en það fer allt eftir getu lífveranna til að brjóta efnin niður.

Skaðsemi þalatanna díbútýl þalats (enska: DBP) og bis(2-etýlhexýl) þalats (enska: DEHP) á frjósemi manna hefur verið kunn um áratugaskeið. Faraldsfræðilegar rannsóknir hafa sýnt fram á tengsl á milli útsetningar fyrir þalötum (einkum DEHP og DBP) og skaðlegra áhrifa á frjósemi og þróun og virkni æxlunarfæra sérstaklega hjá drengjum. Slíkar rannsóknir benda einnig til mögulegra tengsla á milli útsetningar fyrir þalötum og astma, snemmbúins kynþroska stúlkna, skemmda í sæðisfrumum og skjaldkirtilsvandamála en frekari rannsóknir þarf til að geta dregið sterkari ályktanir.

Vegna fjölda tegunda þalata er tímafrekt verk að skoða skaðsemi hvers og eins og er þeirri vinnu hvergi nærri lokið. Eftirfarandi er listi yfir þekktustu efnin og hættuflokkun þeirra:

  • Bis(2-etýlhexýl) þalat (DEHP) – hefur eiturhrif á æxlun (Eit. á æxlun 1B) og er innkirtlatruflandi.
  • Díbútýl þalat (DBP) – hefur eiturhrif á æxlun (Eit. á æxlun 1B), er innkirtlatruflandi og hættulegt fyrir vatnsumhverfi (Bráð eit. á vatn 1). Að auki er verið að meta það fyrir PBT-eiginleika (þrávirkt efni sem safnast fyrir í lífverum og er eitrað).
  • Díísíbútýl þalat (DIBP) – hefur eiturhrif á æxlun (Eit. á æxlun 1B) og er innkirtlatruflandi.
  • Bensýl bútýl þalat (BBP) – hefur eiturhrif á æxlun (Eit. á æxlun 1B), er innkirtlatruflandi og hættulegt fyrir vatnsumhverfi (Bráð eit. á vatn 1 og Langv. eit. á vatn 1).
  • Dípentýl þalat (DPP) – hefur eiturhrif á æxlun (Eit. á æxlun 1B), er innkirtlatruflandi og hættulegt fyrir vatnsumhverfi (Bráð eit. á vatn 1).
  • Dísýklóhexýl þalat (DCHP) – hefur eiturhrif á æxlun (Eit. á æxlun 1B), er innkirtlatruflandi og næmir húð (Húðnæm. 1B).

Ákveðnir hópar eru viðkvæmari og berskjaldaðri fyrir efnunum en aðrir. Þetta á sérstaklega við ungabörn og fóstur sem eru útsett fyrir efnum í móðurkviði. Að auki vilja vísindamenn skilgreina unglinga á kynþroskaskeiði, einkum stráka, sem sérstakan áhættuhóp.

Nokkur þalöt eru takmörkuð innan EES og kemur það við sögu í nokkrum reglugerðum. Vert er að nefna hér nokkrar takmarkanir og bönn:

Athugið að DEHP er enn mikið notað í löndum utan Evrópu og því ber að sýna varkárni með val á vörum sem framleidd eru utan svæðisins.

Ítarleg umfjöllun hjá systurstofnunum og öðrum alþjóðastofnunum

Upplýsingar um þalöt á heimasíðu lífvöktunarverkefnis Evrópusambandsins (enska: HBM4EU):

Almennt um þalöt á ensku á heimasíðu Efnastofnunar Evrópu (enska: ECHA).

Almennt um þalöt á dönsku á heimasíðu Umhverfisstofnun Danmerkur (Miljøstyrelsen).

Umfjöllun um þalöt í leikföngum á dönsku á heimasíðu Umhverfisstofnun Danmerkur (Miljøstyrelsen).

Almennt um þalöt á norsku á heimasíðu Miljøstatus sem er ritstýrt af Umhverfisstofnun Noregs (Miljødirektoratet).

Almennt um þalöt á sænsku á heimasíðu Efnastofnun Svíþjóðar (Kemikalieinspektionen).

Efni síðunnar var síðast uppfært 20. september 2022 á ust.is.

Tríklósan

Tríklósan (enska: triclosan) er hættuflokkað sem húðertandi, augnertandi og mjög eitrað lífi í vatni með langvarandi áhrifum. Að auki liggur efnið undir mati hjá Efnastofnun Evrópu (enska: ECHA) vegna gruns um innkirtlatruflandi eiginleika og mats á hvort það teljist til PBT-efna (þrávirk efni sem safnast upp í lífverum og eru eitruð). Það sem veldur helst áhyggjum er að það er talið að bakteríur geti orðið ónæmar fyrir efninu og þar af leiðandi verður aukning á fjölónæmisbakteríum sem verða einnig ónæmar fyrir fleiri efnum, til dæmis sýklalyfjum. Það þýðir að sýklalyf hætta að virka gegn bakteríum, sem veldur sýkingum og það getur leitt til þess að smávægilegar sýkingar sem við getum í dag unnið á með hjálp sýklalyfja valdi alvarlegum veikindum.

Eftirfarandi takmarkanir gilda um tríklósan í efnavörum:

- Bannað sem virkt efni í sæfivörur og meðhöndlaðar vörur (reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur; Umhverfis- og orkustofnun)

- Bannað sem rotvarnarefni í snyrtivörur að undanskildum eftirfarandi takmörkunum:

  • Hámark 0,3% (massahlutfall) sem rotvarnarefni í tannkremum, handsápum, sturtusápum, svitalyktareyðum, andlitspúðrum og -hyljurum og naglavörum til að hreinsa neglur fyrir ásetningu gervinagla;
  • Hámark 0,2% (massahlutfall) sem rotvarnarefni í munnskoli,

sbr. reglugerð nr. 577/2013 um snyrtivörur sem innleiðir færslu 25 í V. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1223/2009 með sama heiti.

Notkun efnisins hefur farið minnkandi innan EES vegna stífrar takmörkunar en þær eru meðal annars byggðar á áliti Vísindanefndar um öryggi neytenda (enska: SCCS) sem telur að efnið hafi ekki áhrif á fólk þegar það er undir ákveðnum styrkleika og einungis leyft í ákveðnum vörum.

Ítarleg umfjöllun hjá systurstofnunum og öðrum alþjóðastofnunum

Almennt um tríklósan á norsku á heimasíðu Miljøstatus sem er ritstýrt af Umhverfisstofnun Noregs (Miljødirektoratet).

Skýrsla um tríklósan og önnur rotvarnarefni í snyrtivörum á sænsku á heimasíðu Efnastofnunar Evrópu (Kemikalieinspektionen).

Skýrsla á ensku um álit Vísindanefndar um öryggi neytenda (enska: SCCS) um tríklósan.

Efni síðunnar var síðast uppfært 16. janúar 2024 á ust.is.

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800