Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Varasöm efni

Þekktu efnin og forðastu þau

Varasöm efni í daglegu lífi

Við erum stöðugt umkringd efnum í okkar daglega lífi. Þau finnast á heimilinu, í garðinum, á vinnustaðnum og allt í kring.

Mörg efni eru skaðlaus en sum geta verið skaðleg fyrir heilsu manna eða umhverfið.

Hvernig getum við lært að þekkja þessi skaðlegu efni? Hvar finnast þau? Hvaða áhrif geta þau haft á okkur? Hvað getum við gert til að sniðganga þau?

Efni í leikföngum

Hvað getum við gert?

  • Veljum umhverfismerktar vörur, til dæmis merktar Svaninum eða Evrópublóminu þegar það er í boði.
  • Kaupum leikföng sem eru CE merkt.
  • Þvoum og loftum um ný leikföng fyrir notkun til að losna við efnaleifar úr framleiðsluferlinu og rokgjörn efni.
  • Kaupum leikföng sem henta aldri barnsins. Leikföng sem eru merkt fyrir börn undir 3 ára þurfa að uppfylla fleiri skilyrði en önnur leikföng. Þetta er einkum vegna þess að ungabörn eiga það til að stinga hlutum í munninn.
  • Forðumst leikföng úr mjúku plasti. Sérstaklega þau sem voru framleidd fyrir 2007, þá voru settar strangari reglur. Góð þumalputtaregla er að kaupa ekki plast sem er mýkra en Lego kubbur.
  • Forðumst lyktsterk og klístruð leikföng. Það getur verið merki um óæskileg efni.
  • Takmörkum snertingu við ilmefni í vörum. Þau geta valdið ofnæmi.
  • Forðumst að leyfa ungum börnum að leika sér með hluti sem eru ekki leikföng, eins og til dæmis raftæki. Innihald efna í slíkum vörum uppfylla ekki þær kröfur sem gerðar eru til efna í barnaleikföngum.
  • Forðumst leikföng sem eru hættumerkt.
  • Verum gagnrýnin á vörur sem framleiddar eru utan EES. Efnalöggjöfin í Evrópu er með þeim strangari í heiminum.

Almennt um leikföng

Leikföng er risastór hópur af ólíkum vörum, til dæmis raftæki, skrifföng, skart, föndurvörur, vörur úr plasti, úr tré og svo mætti lengi telja.

Innan EES gilda strangari reglur fyrir leikföng en aðra hluti. Í kröfum fyrir leikföng er tekið tillit til viðkvæmni barna fyrir útsetningu efna. Leikföng sem eru merkt sérstaklega fyrir börn yngri en 3 ára þurfa að uppfylla enn frekari skilyrði og kröfur. Þó geta leikföng innihaldið ósækileg efni fyrir heilsu og umhverfi ef ekki hafa verið færðar sönnur á skaðsemi þeirra og því ekki forsendur til að setja reglur um notkun þeirra.

Reglur um efnainnihald í leikföngum voru hertar árið 2007. Leikföng sem voru framleidd fyrir þann tíma geta innihaldið varasöm efni. Til dæmis þalöt í mjúku plasti, aðallega PVC plasti. Þalöt eru talin hormónaraskandi. Kröfurnar urðu enn stífari árið 2013 og ýmis ilmefni sem geta verið ofnæmisvaldandi voru bönnuð eða takmörkuð.

Mikilvægt er að huga að efnum í umhverfi barna þar sem þau eru viðkvæmari fyrir áhrifum efna en fullorðnir. Það er vegna þess að:

  • Húð barna er þynnri en fullorðinna.
  • Börn anda, borða og drekka meira en fullorðnir gera í hlutfalli við líkamsþyngd.
  • Mörg kerfi líkamans eru ekki fullþroskuð, meðal annars eru þau með viðkvæmara taugakerfi, ónæmiskerfi og æxlunarkerfi en fullorðnir. Þau hafa einnig minni getu til að vinnu úr og losa sig við efni úr líkamanum.
  • Ung börn eru gjörn á að stinga hlutum upp í sig.
  • Mörg börn stinga höndum upp í munninn við leik.
  • Efni geta losnað úr vörum og loðað við ryk og ung börn eyða miklum tíma í leik á gólfum þannig að þau geta verið útsettari fyrir þeim en fullorðnir.

Plast

Vinsælt er að nota plast í ýmis leikföng vegna þess hve ódýrt, fjölhæft og létt það er. Plast er hins vegar ekki eitt efni heldur oftast blanda af efnum til að ná fram ákveðnum eiginleikum, til dæmis lit, mýkt, viðnámi gegn UV-ljósi, viðnámi gegn íkveikju eða loga og svo framvegis. Sum þessara efna eru varasöm á meðan önnur teljast skaðlaus. Vandinn er að meirihluti efnanna hefur ekki verið rannsakaður nægilega til að fullvissa okkur um hvort þau eru hættuleg okkur eða ekki.

Mesta áhættan er í mjúkum plastleikföngum og rafmagnsleikföngum en í þeim er algengt að finnist þekkt hormónaraskandi efni og þungmálmar í of miklu magni. Gott er að miða við að forðast plast sem er mýkra en LEGO-kubbar. Að auki skal sýna varkárni með leikföng sem eru eldri en 2007 því þá voru settar strangari reglur um efnainnnihald leikfanga.

Nánari umfjöllun um efni í plasti.

Ilmefni

Yfirleitt er ilmefnum bætt við til að gefa vörum góðan eða ferskan ilm. Þeim er líka bætt við vörur til að fela vonda lykt hráefna sem notuð eru við framleiðslu þeirra. Leikföng sem hafa lykt eru líklegri til að innihalda efni sem ber að varast, bæði ilmefni og önnur aukaefni. Ilmefni geta verið ofnæmisvaldandi og valdið ertingu í húð og augu.

Nánari umfjöllun um ilmefni.

Raftæki

Það eru strangari kröfur um efnainnihald leikfanga en raftækja. Áhættumat leikfanga gerir ráð fyrir viðkvæmni barna fyrir útsetningu efna. Að auki eru ung börn gjörn á að setja hluti í munninn og því er mikilvægt að hafa þau undir eftirliti og lána þeim frekar leikfang með CE merkingu.

Nánari umfjöllun um efni í raftækjum.

Vörur utan EES og netverslanir

Efnalöggjöf EES er sú strangasta í heiminum og því geta efni sem eru takmörkuð eða bönnuð í Evrópu fundist í vörum sem keyptar eru utan svæðisins. Þetta á bæði við þegar verslað er í búðum erlendis sem markaðssetja ekki vörurnar í Evrópu og við netverslanir sem hafa ekki lager eða selja ekki í verslanir í Evrópu heldur senda beint til kaupandans. Sérstaklega er varasamt að kaupa mjúk plastleikföng en þau innihalda iðulega þalöt sem eru hormónaraskandi. Að auki ber að varast raftæki en þar geta fundist eldtefjandi efni og þungmálmar.

Nánari umfjöllun um efni í vörum utan EES.

Ráð um mjúk plastleikföng og leikföng úr vökva eða dufti á dönsku á heimasíðu Umhverfisstofnunar Danmerkur (Miljøstyrelsen).

10 ráð fyrir leikfangainnkaup leikskólaá dönsku á heimasíðu Umhverfisstofnunar Danmerkur (Miljøstyrelsen).

Ráð um leikföng á sænsku á heimasíðu Efnastofun Svíþjóðar (Kemikalieinspektionen).

Ráð um leikföng á íslensku á heimasíðu verkefnisins efnafræðilega snjöll eyja (Chemically clever island).

10 ráð frá Neytendasamtökum Danmerkur á dönsku um hvernig er hægt að minnka snertingu við ósækileg efni.

Efni í plasti

Hvað getum við gert?

  • Minnka neyslu, kaupa minna.
  • Velja umhverfismerktar vörur, til að mynda merktar Svaninum eða Evrópublóminu og helst án ilmefna.
  • Þvo eða þurrka af og lofta um vörur áður en þær eru teknar í notkun.
  • Velja matar- og drykkjarílát úr gleri eða ryðfríu stáli í stað plasts.
  • Velja frekar gler til að geyma mat í stað plasts.
  • Velja diska úr keramiki eða málmi frekar en plasti.
  • Varast að hita hluti úr plasti, ekki síst í örbylgjuofni.
  • Forðast leikföng úr mjúku plasti - sérstaklega þau sem voru framleidd fyrir 2007 (þá voru settar strangari reglur).
  • Forðast að nota brotin eða skemmd plastílát. Ef að matar- eða drykkjarílát eru rispuð eða skemmd að innan þá geta efnin losnað út í matvæli eða vökva.
  • Takmarka neyslu á matvælum sem eru í dósum, til að mynda niðursuðudósum.
  • Takmarka notkun plastíláta undir heit matvæli eða drykki.
  • Ryksuga og þurrka af að minnsta kosti 1 sinni í viku þar sem efnin eiga það til að loða við ryk.

Hvað er í plasti?

Plast er orðið órjúfanlegur hluti af okkar daglega lífi, til dæmis til að auka öryggi okkar (öryggishjálmar, gleraugu, barnabílstólar), til að auðvelda líf okkar (umbúðir utan um matvæli, tölvur, farsímar, burðarpokar) og fyrir skemmtanagildi (leikföng, sjónvörp, leikjatölvur).

Plast hefur í mörgum tilfellum aukið lífsgæði okkar en notkun þess hefur að sama skapi valdið mikilli mengun. Endingartími plasts er yfirleitt langur. Það er slitsterkt og því eyðist það ekki eða hverfur heldur brotnar niður í smærri og smærri platshluta sem kallast örplast.

Plast er hins vegar ekki eitt efni. Margar gerðir plasts samanstanda af efnum sem blandað er saman til að ná fram ákveðnum eiginleikum, til að mynda lit, mýkt, viðnámi gegn UV-ljósi, viðnámi gegn íkveikju eða loga og svo framvegis Margar rannsóknir hafa verið gerðar á efnum sem finnast í plasti og áhrifum þeirra á heilsu og umhverfi þar sem efnin geta losnað úr plastinu við notkun. Sum slíkra efna reynast hafa skaðleg áhrif á meðan önnur virðast skaðlaus. Vandinn er að meirihluti efnanna hefur ekki verið rannsakaður nægilega til að fullvissa okkur um hvort þau eru hættuleg okkur eða ekki.

Íblöndunarefni í plasti geta verið föst, þétt bundin, lauslega bundin eða alls ekki bundin við fjölliðuna – meginefni plastsins. Almennt gildir að aukaefni leka frekar úr plasti ef það er hitað eða kemst í snertingu við fitu eða sýru.

Mýkiefni

Mýkiefni (enska: plasticizer) er bætt út í hart eða stökkt plast til að ná fram mýkt og meiri sveigjanleika. Í gegnum tíðina hafa vörur úr mjúku plasti gjarnan verið framleiddar með því að bæta efnum úr hópi svokallaðra þalata út í tegund plasts sem kallast pólývínylklóríð (enska: polyvinyl chloride, PVC).

Þalöt finnast víða til að mynda í matvælaumbúðum, leikföngum, íþróttavörum, snyrtivörum, vínyl gólfefnum og öðrum bygginarefnum. Þau voru einnig mikið notuð í mjúk plastleikföng áður en reglur um efnainnihald í leikföngum voru hertar árið 2007.

Nánari umfjöllun um þalöt.

Herðiefni

Herðiefni (enska: hardener) er bætt út í plast til að herða plastið eins og nafnið gefur til kynna. Þetta er einkum notað í pólýkarbónat plast (enska: polycarbonate, PC) og epoxý. Flestir kannast eflaust við vinsæla herðiefnið bisfenól A (BPA) en það tilheyrir hópi svokallaðra bisfenóla sem eru mikið notuð í þessum tilgangi.

Bisfenól finnast meðal annars í vatnsbrúsum, matarílátum, borðbúnaði og barnapelum úr plasti. Notkun bisfenóls A er háð takmörkunum innan EES meðal annars hvað varðar leikföng, barnapela úr PC plasti og kassakvittanir. Þegar upp komst um skaðsemi BPA og takmarkanir á notkun þess hófst þá ákvað iðnaðurinn að skipta því út fyrir önnur bisfenól efni sem eru nú talin hafa sömu óæskilegu áhrif og BPA. Þess vegna er ekki nóg að kaupa vörur sem eru merktar BPA fríar því mjög líklegt er að því hafi einfaldlega verið skipt út fyrir bisfenól S (BPS), bisfenól M (BPM) eða bisfenól F (BPF).

Nánari umfjöllun um bisfenól

Eldtefjandi efni

Eldtefjandi efni (enska: flame retardant) er bætt út í plast til að gera það minna eldfimt og til að hægja á útbreiðslu elds ef það kviknar í. Algengasti efnahópurinn sem hefur verið notaður í þessum tilgangi eru brómuð eldtefjandi efni, einkum fjölbrómaðir dífenýleterar (enska: PBDEs). Nokkur þeirra hafa verið takmörkuð eða bönnuð.

Efnin finnast í alls kyns plastvörum en þau eru meðal annars mikið notuð í fyllingar í bólstruðum húsgögnum svo sem pólýúretan (enska: Polyurethane, PU) svamp. Einnig er vert að nefna raftæki, barnabílstóla, byggingarefni, eldhústæki, leikföng og textíl.

Nánari umfjöllun um eldtefjandi efni

Vatns- og olíufráhrindandi efni

Vatns- og olíufráhrindandi efnum eru bætt út í plast til að það hrindi bæði vatni og fitu frá sér sem hefur þótt afar eftirsóknarverður eiginleiki. Efnahópurinn sem hér er verið að fjalla um kallast PFAS og heyra mörg efni undir þann hóp, en efnin geta valdið skaða á heilsu manna og umhverfis.

Algengt er að finna efnin í raftækjum, málningu og take away boxum sem hafa plasthúð eða eru alfarið úr plasti. Notkun nokkurra af þessum efnum hefur verið takmörkuð eða bönnuð en það er aðeins lítið brot af hópnum þar sem hann inniheldur um tugþúsunda efna. Sum þeirra eru talin innkirtlatruflandi, grunuð um að valda krabbameini og aukið líkur á skaða á ónæmiskerfið. PFAS eru þrávirk, brotna lítið sem ekkert niður í umhverfinu, og geta því verið til staðar í þúsundir ára í náttúrunni.

Efni í raftækjum

Hvað getum við gert?

Þegar við kaupum raftæki:

  • Veljum umhverfismerktar vörur, til að mynda merktar Svaninum eða Evrópublóminu þegar það er í boði.
  • Raftæki eiga að vera CE merkt. CE merking gefur til kynna að tækið uppfylli þær lágmarkskröfur um öryggis-, heilsu- og umhverfisvernd sem tilskipanir Evrópusambandsins kveða á um.

Raftæki á heimilinu og í vinnunni:

  • Notum raftækin í þeim tilgangi sem þeim er ætlað og fylgjum leiðbeiningum framleiðanda.
  • Ekki leyfa litlum börnum að naga eða skrúfa í sundur raftæki.
  • Slökkvum á raftækjum þegar þau eru ekki í notkun.
  • Förum vel með raftækin en gott viðhald á raftækjum tryggir betri endingu þeirra og minnkar brunahættu af völdum rafstraums.
  • Loftum reglulega út og ryksugum og þurrkum af að minnsta kosti 1 sinni í viku svo til að tryggja gott inniloft og minnka ryk sem efnin geta loðið við.
  • Loftræsting skiptir miklu máli sérstaklega starfsaðstöður sem hafa mikið af raftækjum og lítil rými eins og barnaherbergi.
  • Þrífum og loftum um tækin reglulega, til dæmis safnast mikið ryk innan í tölvum og sjónvörpum, ef til vill er gott að fara með tölvuna á verkstæði og láta ryksuga hana að innan, sérstaklega lyklaborð.

Endurnotkun eða endurvinnsla raftækja:

  • Þau raftæki sem virka enn vel er kjörið að gefa eða selja. Efnin hafa minnkað til muna eftir því sem raftækið er notað.
  • Aldrei henda raftækjum í almennt rusl heldur komum því fyrir til móttökuaðila fyrir raftæki.
  • Sum fyrirtæki taka við gömlum eða biluðum raftækjum og nota sem aukahluti til viðgerða. Mörg þeirra borga fyrir tækið sem þú kemur með.
  • Kort sem syngja eða skór sem blikka teljast líka sem raftæki og þarf að koma fyrir í réttan farveg.
  • Rafhlöður og rafgeymar flokkast sem spilliefni vegna þeirra efna sem þau geta innihaldið eins og kadmíum, kvikasilfur, blý og ætandi sýrur.

Hvað er í raftækjum?

Raftæki er heiti yfir ýmis konar varning sem við kaupum til að einfalda líf okkar, allt frá tölvum og kaffivélum til ísskápa og þvottavéla. Ýmis efni og auðlindir þarf til að útbúa einn hlut, meðal annars verðmætum málmum eins og gull, silfur og kopar og umhverfisskaðlegum efnum eins og kvikasilfur, blý og eldtefjandi efni. Öll efnin eru til staðar í hlutum til að þjóna ákveðnum tilgangi.

Óæskileg efni sem finnast í raftækjum geta haft áhrif á heilsu manna og umhverfis á öllum stigum lífsferils vörunnar.

  • Starfsmenn og nærliggjandi samfélög geta verið mjög útsett fyrir skaðlegum efnum við efnisvinnslu og framleiðslu, þar á meðal hærri tíðni krabbameins.
  • Á meðan notkun raftækisins stendur geta efni losnað úr tækinu og í umhverfi sitt þar sem það getur komist í snertingu við okkur eða loðað við rykagnir innandyra.
  • Ef tækið er urðað (landfyllingar) en ekki komið fyrir í endurvinnslu eða annan farveg þá geta efnin í tækjunum mengað jarðveginn og umhverfið á urðunarstaðnum. Því er mikilvægt að flokka raftæki rétt og koma þeim fyrir í réttan farveg.

Við almenna notkun raftækja þá losna efnin mest úr þeim þegar þau eru ný og þegar það er kveikt á þeim. Þó svo að styrkur efna sem er að losna út í umhverfið sé mjög lítill, sem er í sjálfu sér ef til vill skaðlaus, þá getur það leitt til vandamála þar sem það sameinast öðrum mengunarvöldum innandyra sem geta magnað upp áhrifin.

Ef raftæki eru notuð á þann hátt sem þeim er ætlað þá ætti útsetning efnanna í þeim fyrir okkur að vera takmörkuð þar sem innvols raftækja eru ekki að komast í beina snertingu við okkur, til að mynda þá snertir húð okkar ekki prentplötuna í farsímanum okkar. Aftur á móti þá eru efni sem eru útvortis til dæmis eru í plastinu á raftækjunum að komast í snertingu við húð okkar og losna út í umhverfið.

Plast

Mikið af raftækjum okkar eru úr plasti en plast er mikill efnakokteill. Ítarleg umfjöllun og möguleg óæskileg efni sem geta fundist í plasti er að finna hér.

Þungmálmar

Þungmálmar (enska: heavy metals) eru enn taldir nauðsynlegir í flestum raftækjum en iðnaðurinn er í sífeldri þróun að leita nýrra leiða. Dæmi um mögulega þungmálma:

  • Kadmíum - vinsælt í rafhlöður tölva, tengiliði og rofa.
  • Kvikasilfur - notað í fljótandi kristalsskjáum (enska: liquid crystal displays, LCD) farsíma og tölvuskjáa, rofa, rafhlöður og flúrljómandi lampa.
  • Blý - notað í myndlampa/bakskautslampa (enska: cathode ray tubes, CRT) sem finnast í tölvum og sjónvarpssjáum.
  • Nikkel – stundum notað í rásarborð farsíma og lóðningum.
  • Blý og kadmíum blöndur - notað í rafhlöður leikjatölva og rafmagnsleikfanga.
  • Sexgilt króm - var mikið notað í málmvirki raftækja, en er mikið til takmarkað í raftækjum.

Eldtefjandi efni

Algengt er að finna eldtefjandi efni í raftækjum til að hægja á eldi ef hann kemur upp og minnka líkur á íkveikju. Þau eru gerð til að duga í langan tíma eða líftíma raftækis og brotna því niður erfiðlega í náttúrunni. Efnin geta sloppið út í nærumhverfi sitt og loðað við ryk, en ný raftæki eiga það til að losa efnin þegar það er kveikt á þeim og þau verða heit.

Sýnt hefur verið fram á að sum efnanna geti haft óæskileg áhrif á heilsu okkar og umhverfi og hafa verið takmörkuð og/eða bönnuð. Nánari umfjöllun um eldtefjandi efni má nálgast hér.

Fráhrindandi efni

PFAS efni hafa verið notuð í ýmsar vörur vegna eiginleika þeirra að hrinda frá sér vatni- og olíu. Þetta gagnast vel fyrir raftæki þar sem vökvi getur skemmt tækið. Hins vegar hafa nokkur efnanna sýnt heilsuspillandi eiginleika og hafa verið takmörkuð en þar sem efnahópurinn er stór gengur hægt að rannsaka þau öll.

Nánar um PFAS efni má nálgast hér.

Efni í snyrtivörum

Hvað getum við gert?

  • Velja umhverfismerktar vörur, til að mynda merktar Svaninum eða Evrópublóminu þegar það er í boði.
  • Fáum aðstoð við valið og náum í app í símann til dæmis QuelProduit, INCI Beauty, Yuka, Good Face Project, Cosmethics sem gefur einkunn fyrir efnainnihald snyrtivörunnar og ásamt fróðleik um efnin.
  • Aukum efnalæsi okkar og lærum að þekkja nokkur efni sem eru varasöm.
  • Takmörkum notkun okkar á ilmefnum hvort sem það eru náttúruleg ilmefni eða manngerð, en þau geta bæði haft óæskileg áhrif á okkur.
  • Einstaklingar sem ganga með barn ættu að sýna varkárni við val á snyrtivörum, ef til vill að minnka notkun á þeim, og forðast vörur með ilmefnum.
  • Fylgjum notkunarleiðbeiningum til að lágmarka hættu á slysum.
  • Höldum notkun á sjampó, sápum og kremum fyrir ung börn í lágmarki. Húð barna er þunn og viðkvæm og eru gjörn á að fá útbrot og exem vegna ertingar.
  • Ekki er gert ráð fyrir notkun aflitunarefna eða hárlita fyrir börn og unglinga undir 16 ára.
  • Ekki er mælt með notkun hárlita eða aflitunarefna fyrir einstaklinga sem ganga með barn eða eru með barn á brjósti.

Almenn umfjöllun

Snyrtivörur eru ómissandi hluti af daglegu lífi og nota flestir nokkrar tegundir á dag til dæmis sjampó, tannkrem, svitalyktaeyði, rakakrem og ýmsar sápur. Framleiðendur snyrtivara eru skyldugir til að gefa upp innihaldsefni á umbúðum snyrtivara í röð eftir lækkandi styrk í vörunni. Nafnahefðir geta verið ólíkar fyrir snyrtivörur og fyrir aðrar efnavörur, en í snyrtivörum er til að mynda notað heitið „aqua“ fyrir vatn og leyfilegt er að nota yfirheitið „parfum“ eða „aroma“ (ilmefni/lyktarefni) fyrir ilmefni sem ekki eru á lista yfir ofnæmisvaldandi ilmefni í stað efnaheita ilmefnanna.

Efnin í snyrtivörum eru margs konar og er þeim bætt út í vegna sérstakra eiginleika þeirra og/eða til að þjóna ákveðnum tilgangi. Ströngustu kröfur varðandi efnainnihald snyrtivara er innan EES en þó eru efni sem geta verið til staðar sem valda ofnæmi eða öðrum óæskilegum áhrifum á heilsu okkar eða umhverfi þar sem rannsóknir á efnum eru mislangt komnar og smám saman eykst þekking á eiginleikum efna og áhrif þeirra á mannslíkamann og umhverfið. Algengt er að rotvarnarefni, ilmefni og efni notuð til hárlitunar geti valdið ofnæmi en það er mjög einstaklingsbundið og því miður ekki alltaf hægt að sjá fyrir/segja til um hverjir eru viðkvæmari fyrir efnunum en aðrir.

Rotvarnarefni

Rotvarnarefni hindra bakteríu- og mygluvöxt og viðhalda gæðum vara í lengri tíma. Sum rotvarnarefni eru skaðleg heilsu manna og umhverfis, en þau eru oft á tíðum ofnæmisvaldandi. Dæmi um rotvarnarefni sem eru takmörkuð í snyrtivörum eru sum paraben vegna innkirtlatruflandi áhrifa þeirra og tríklósan sem er talið geta valdið því að bakteríur verði ónæmar fyrir sýklalyfjum auk þess að vera mjög eitrað lífverum í vatni.

Nánari umfjöllun um paraben.

Nánari umfjöllun um tríklósan.

Ilmefni

Manngerð og náttúruleg ilmefni (til að mynda ilmkjarnaolíur, e. essential oils) geta valdið snertiofnæmi og ertingu í augum og húð. Þau ilmefni sem eru þekkt sem mögulegir ofnæmisvaldar ber skylda að merkja þau með efnaheiti sínu í stað þess að vera undir yfirheitinu „parfum“ eða „aroma“ í snyrtivörum. Dæmi um slík efni eru til dæmis

  • moskus efnasambönd,
  • límónen (enska: limonene),
  • línalól (enska: linalool), og
  • sítrónellól (enska: citronellol).

Sumir geta notað vörur með ilmefnum án vandræða en aðrir geta þróað með sér snertiofnæmi, því miður er ekki hægt að segja til um hverjir eru líklegri til að þróa með sér ofnæmi. Mikilvægt er að sýna varkárni varðandi notkun ilmefna á og í kringum ungabörn þar sem þau eru almennt viðkvæmari en fullorðnir og því er best að kaupa vörur án allra ilmefna.

Nánari umfjöllun um ilmefni.

Vatns- og olíufráhrindandi efni

Vatns- og olíufráhrindandi efnum eru bætt út í sumar snyrtivörur til að hrinda frá bæði vatni og fitu sem er afar eftirsóttur eiginleiki. Slíkur tilgangur hjálpar oft til við að vernda vöruna og viðhalda gæði hennar eða til að láta vöruna vera lengur eftir á húðinni. Efnahópurinn sem hér er verið að fjalla um kallast PFAS og heyra mörg efni undir þann hóp, en efnin geta valdið skaða á heilsu manna og umhverfis.

Notkun nokkurra efna úr efnahópnum hafa verið takmörkuð eða bönnuð en það er aðeins lítið brot þar sem hópurinn inniheldur tugþúsunda efna. Sum þeirra eru talin innkirtlatruflandi, grunuð um að valda krabbameini og aukið líkur á skaða á ónæmiskerfið. PFAS eru þrávirk, brotna lítið sem ekkert niður í umhverfinu, og geta því verið til staðar í þúsundir ára í náttúrunni.

Nánari umfjöllun um PFAS efni.

Fleiri varasöm efni sem geta verið í snyrtivörum

Eins og áður hefur komið fram þá eru margar tegundir efna notaðar í snyrtivörur og hægt væri að hafa umfjöllunina mun lengri. Þess í stað bendum við hér á nokkra efnaflokka sem hafa verið algengir í snyrtivörum en eru að hluta til takmarkaðir.

Bensófenón – vernda meðal annars lykt og lit gegn niðurbroti, einnig kallað útbláma sía (enska: UV filter).

Síloxön - gera krem smyrjanlegri, innihald kekkjalaust og bera viðbætt lyktarefni á líkamann.

Þalöt - halda ilm í vörum, draga úr sprungumyndun í naglalakki og auðvelda vörum að komast í gegnum húðina og gefa henni raka.

Orðabók um algeng innihaldsefni í snyrtivörum á dönsku á heimasíðu Umhverfisstofnunar Danmerkur.

Snyrtivörureglugerðin - innihaldsefni

Á heimasíðu framkvæmdastjórnar ESB er hægt að fletta upp í leitarglugga hvort einstök efni séu viðurkennd, bönnuð eða hvort ákveðnar reglur eða takmarkanir gilda um efnin. Í niðurstöðum leitar efnis koma fram upplýsingar um efnið með viðauka reglugerðar (EB) nr. 1223/2009 (athygli er vakin á því að listinn yfir viðurkennd innihaldsefni er ekki tæmandi).

Við uppflettingu birtist listi efna í töfluformi og í síðasta dálki kemur fram takmörkun/viðauki/númer. Ef takmörkun á við þá koma fram rómverskir tölustafir fyrir viðauka og tölustafur fyrir númer hvað töluliður í viðaukanum er hægt að finna efnið. En viðaukarnir eru eftirfarandi:

II. Skrá yfir efni sem eru bönnuð í snyrtivörum

III. Skrá yfir efni sem snyrtivörur mega ekki innihalda nema samkvæmt settum takmörkunum og skilyrðum

IV. Skrá yfir litarefni/litgjafa sem eru leyfð í snyrtivörum

V. Skrá yfir rotvarnarefni sem eru leyfð í snyrtivörum

VI. Skrá yfir útblámasíur (UV filters) sem eru leyfðar í snyrtivörum

Almennt um efni í snyrtivörum á ensku á heimasíðu Efnastofnunar Evrópu (enska: ECHA).

Snyrtivörur – vissir þú? á íslensku á heimasíðu verkefnisins efnafræðilega snjöll eyja (enska: chemically clever island).

Góð ráð fyrir baðherbergið á íslensku á heimasíðu verkefnisins efnafræðilega snjöll eyja (enska: chemically clever island).

Innihaldsefni snyrtivara á íslensku á heimasíðu verkefnisins efnafræðilega snjöll eyja (enska: chemically clever island).

Almennt um snyrtivörur og innihaldsefni þeirra á dönsku á heimasíðu Umhverfisstofnun Danmerkur (Miljøstyrelsen).

Almenn ráð varðandi vörur fyrir persónulega umhirðu á dönsku á heimasíðu Umhverfisstofnun Danmerkur (Miljøstyrelsen).

Vörurnar í baðherbergisskápnum – umfjöllun um innihaldsefni í snyrtivörum á sænsku á heimasíðu Umhverfisstofnunar Svíþjóðar.

Skýrsla um PFAS efni í snyrtivörum á ensku á heimasíðu Efnastofnunar Svíþjóðar (Kemikalieinspektionen).

Ilmefni

Hvað getum við gert?

  • Veljum vörur án ilmefna, einkum snyrtivörur sem við skiljum eftir á húðinni.
  • Bæði náttúruleg ilmefni (til dæmis ilmkjarnaolíur) og manngerð ilmefni geta valdið óæskilegum áhrifum og því ætti að setja þau undir sama hatt þegar við veljum vörur.
  • Gott er að spreyja ilmvatninu eða rakspíranum á fötin frekar en beint á húðina til að lágmarka líkur á snertiofnæmi.
  • Óléttir einstaklingar og þeir sem eru með barn á brjósti ættu að forðast að mestu vörur með ilmefnum.
  • Forðumst vörur með ilmefnum fyrir börn, einkum ungabörn.
  • Minnkum notkun ilmefna á heimilinu heilt yfir.
  • Ef við viljum ilma vel þá er gott ráð að velja eina snyrtivöru/hreinlætisvöru með ilm og hafa hinar ilmefnalausar.
  • Sýnum tillitsemi við fólkið í kringum okkur þegar við erum í þröngum rýmum eins og til dæmis búningsklefum. Spreyjum ilmvatninu, rakspíranum og öðrum vörum sem innihalda ilmefni í spreyformi frekar þegar við erum komin út. Mögulega er einstaklingur í rýminu sem er með viðkvæm öndunarfæri.

Almenn umfjöllun

Meira en 2500 þekkt ilmefni eru notuð í vörur sem við notum í okkar daglega lífi til að mynda snyrtivörur, hreinlætisvörur, þvotta- og hreinsiefni, mýkingarefni, hárliti, ilmkerti og aðrar heimilisvörur. Ilmefni geta verið manngerð eða náttúruleg en efni úr báðum flokkum geta haft óæskileg áhrif á okkur. Yfirleitt er ilmefnum bætt út í til að gefa vörum góðan eða ferskan ilm en þeim er líka bætt við vörur til að fela vonda lykt hráefna sem notuð eru við framleiðslu þeirra.

Snertiofnæmi

Algengasta orsök snertiofnæmis eru ilmefni en meiri áhætta er á að þróa snertiofnæmi af vörum sem við skiljum eftir á húðinni svo sem krem og svitalyktaeyða heldur en í vörum sem við skolum af til að mynda sturtusápum og sjampó. Sumir geta notað vörur með ilmefnum án vandræða en aðrir geta þróað með sér snertiofnæmi, því miður er ekki hægt að segja til um hverjir eru líklegri til að þróa með sér ofnæmi. Mikilvægt er að sýna varkárni á að setja vörur með ilm á ungabörn þar sem húð þeirra er almennt þynnri og viðkvæmari en fullorðinna.

Kláði, bólgur og öndunaróþægindi

Vandamál vegna ilmefna eru ekki einungis vegna möguleika á að þróa snertiofnæmi heldur geta sum ilmefni ert augu og húð. Að auki geta þau ert öndunarfæri viðkvæmra einstaklinga eins og þeirra sem eru með astma eða frjókornaofnæmi. Mikilvægt er að vera meðvitaður um að bæði náttúruleg ilmefni og manngerð ilmefni geta valdið óæskilegum áhrifum og því gott að setja þau undir sama hatt við val á vörum.

Merkingar ilmefna í vörum

Alls eru 26 ilmefni sem krafist er að séu nafngreind í innihaldslýsingu á umbúðum snyrtivara og þvotta- og hreinsiefna ef efnin eru fyrir hendi. Lista yfir efnin og ýmsar nánari upplýsingar má finna í skýrslu Vísindanefndar um öryggi neytenda (enska: SCCS) um álit þeirra á ilmefnum í snyrtivörum sem valda ofnæmi. Efnin eru einnig öll skráð í III. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur. Efnin linalool, limonene, citronellol og cinnamal eru öll á þessum lista en algengt er að finna þau í snyrtivörum og þvotta- og hreinsiefnum. Fleiri ilmefni eru grunuð um að valda ofnæmi og öðrum óæskilegum áhrifum. Erfitt getur reynst að finna út hvaða ilmefni eru til staðar í vörum eins og snyrtivörum þar sem leyfilegt er að nota hugtakið ilmefni eða „parfum/perfume“ og „aroma“ í stað nafna ilmefnanna. Þetta er einkum gert til einföldunar á merkingum umbúða þar sem notast er við blöndu af ilmefnum.

Skýrsla Vísindanefndar um öryggi neytenda (enska: SCCS) á ensku um álit þeirra á ilmefnum í snyrtivörum sem valda ofnæmi.

Almennt um ilmefni á sænsku á heimasíðu Karolinska Institutet.

Ráðleggingar vegna ilmefna á dönsku á heimasíðu Umhverfisstofnun Danmerkur (Miljøstyrelsen).

Innkirtlatruflandi efni

Innkirtlatruflandi efni (enska: endocrine disrupting chemicals, EDCs), einnig kölluð hormónaraskandi efni (enska: hormone disrupting chemicals), eru manngerð og náttúruleg efni eða efnablöndur sem trufla hormónastarfsemi lífvera með hugsanlegum skaðlegum áhrifum á heilsu þeirra. Þau eru til staðar í vörum sem við notum dags daglega og geta hermt eftir náttúrulegum hormónum líkamans.

Hvar er líklegt að finna þau?

  • Vörum sem við notum í okkar daglega lífi, til að mynda:
  • Textíl
  • Húsgögnum
  • Raftækjum
  • Leikföngum
  • Snyrtivörum
  • Málningu
  • Plastvörum
  • Losun frá atvinnustarfsemi, til að mynda:
  • Byggingarefni
  • Útblæstri
  • Úrgangi
  • Ryki
  • Seyru

Hvernig geta þau komist inn í líkamann?

  • Í gegnum fylgjuna til fósturs
  • Í gegnum fæðuna
  • Með innöndun
  • Með upptöku í gegnum húð

Hvernig geta þau haft áhrif á heilsu?

  • Dregið úr frjósemi
  • Flýtt fyrir kynþroska
  • Haft áhrif á gæði sæðisfrumna
  • Aukið líkur á krabbameini, til að mynda í eistum
  • Aukið líkur á fæðingargöllum á kynfærum drengja
  • Aukið líkur á skjaldkirtilssjúkdómum
  • Aukið líkur á offitu og sykursýki 2
  • Aukið líkur á hjartasjúkdómum
  • Truflað efnaskipti líkamans
  • Truflað þroska ónæmiskerfisins
  • Truflað þroska taugakerfisins
  • Lækkað fæðingarþyngd nýbura
  • Haft áhrif á lengd meðgöngu

Hverjir eru viðkvæmastir?

  • Fóstur
  • Ungabörn
  • Einstaklingar á kynþroskaskeiðinu

Hvað getum við gert?

  • Minnka neyslu, kaupa minna.
  • Velja umhverfismerktar vörur, til að mynda merktar Svaninum eða Evrópublóminu, helst án ilmefna.
  • Velja textíl merktan Oeko-Tex 1000.
  • Þvo eða þurrka af og lofta um vörur áður en þær eru teknar í notkun.
  • Ryksuga og þurrka af að minnsta kosti 1 sinni í viku þar sem efnin eiga það til að loða við ryk.
  • Lofta út hýbýli að minnsta kosti tvisvar á dag, að lágmarki 5 mín í senn.
  • Takmarka snertingu við efni svo sem málningu, úðaefni og hárlitunarvörur.
  • Neyta fjölbreyttrar fæðu daglega.
  • Mikilvægt er að velja vörur vel og minnka notkun til að mynda snyrtivara og ilmefna þegar við erum ófrísk eða með barn á brjósti.
  • Nota ekki daglega smyrsl, sápur eða álíka vörur á ungbarnið.
  • Kaupum ekki leikföng sem eru án CE-merkinga, velja ilmefnalaus leikföng og henda gömlum mjúkum plastleikföngum sérstaklega þeim sem framleidd voru fyrir 2007 (þá voru settar strangari reglur).
  • Sýna varkárni varðandi vörur utan EES svæðisins en það er með ströngustu kröfur um efnainnihald í heiminum.

Þekkt og grunuð innkirtlatruflandi efni

Listi yfir þekkt og grunuð innkirtlatruflandi efni á ensku sem er haldið er úti af Umhverfisstofnun Danmerkur í samstarfi við upplýsingar frá fimm öðrum ESB löndum.

Innkirtlakerfið okkar

Innkirtlakerfið samanstendur af innkirtlum (enska: endocrine glands) sem finnast víðsvegar um líkamann til að mynda heiladingull, skjaldkirtill, nýrnahettur og hóstarkirtill. Innkirtlar líkamans mynda hormón sem eru boðefni líkamans sem ferðast með blóðrásinni. Hormón eru send út í blóðrásina eftir þörfum og bindast við ákveðnar markfrumur (enska: target cells), en innkirtlakerfið er flókið kerfi samskipta á milli taugakerfisins og helstu starfsemi líkamans til að mynda efnaskipti, æxlun, ónæmiskerfið, hegðun og vöxt og þroska. Hægt er því að líkja hormónum við eins konar sendiboðum sem koma skilaboðum áfram á milli staða. Innkirtlakerfið finnst ekki einungis hjá okkur mannfólkinu heldur einnig spendýrum, fuglum, fiskum og mörgum öðrum tegundum.

Innkirtlatruflandi efni

Innkirtlatruflandi efni (enska: endocrine disrupting chemicals, EDCs), einnig kölluð hormónaraskandi efni (enska: hormone disrupting chemicals), eru manngerð og náttúruleg efni eða efnablöndur sem trufla hormónastarfsemi lífvera með hugsanlegum skaðlegum áhrifum á heilsu þeirra eða afkvæma. Efnin geta hermt eftir hinum ýmsu hormónum til að mynda estrógeni, andrógeni og skjaldkirtilshormónum og gerir líkaminn þá ekki greinarmun á náttúrulegum hormónum líkamans eða aðskotaefnunum. Því geta þau aukið eða hamlað áhrif náttúrulegra hormóna á líkamann eða truflað hvernig hormónin myndast, brotna niður eða flytjast í líkamanum.

Lítið magn af innkirtlatruflandi efnum þarf til að geta truflað hormónajafnvægi og starfsemi þar sem hormón verka yfirleitt í mjög litlu magni hverju sinni. Möguleg áhrif efnanna koma oft ekki fram fyrr en töluvert eftir snertingu við þau. Því hefur ekki verið eins augljós tenging við mjöguleg áhrif þessara efna á heilsu manna og umhverfis, en skaðleg áhrif hafa verið mun sýnilegri á aðrar lífverur, einkum vatnalífverur. Talið er að efnin sem hafa verið tengd við skaðleg áhrif á dýr geti mögulega valdið áhrifum á mannfólk en enn sem komið er hafa færri rannsóknir verið gerðar í tengslum við áhrif á okkur mannfólkið.

Vísindasamfélagið hefur mestar áhyggjur af mögulegum áhrifum efnanna á fóstur og ungabörn þar sem ýmis líffæri, kirtlar og önnur kerfi þróast yfir stuttan tíma og skiptir hormónastarfsemi og jafnvægi miklu máli við vöxt og þroska þeirra. Að auki geta ungabörn verið í meiri snertingu við efnin heldur en fullorðnir því þau eyða meiri tíma á gólfinu og eru gjörn á að stinga hlutum upp í munninn. Efnin geta samt sem áður haft áhrif hvenær sem er á æviskeiðinu og ber að sýna varkárni þegar gengið er í gegnum kynþroskaskeiðið en sami efnastyrkur hefur ekki sömu áhrif á ólík æviskeið.

Þegar verið er að meta hættu af völdum efnanna er mikilvægt að meta þau saman í uppsöfnuðu magni. Við komumst yfirleitt í snertingu við efnin í tiltölulega litlu magni en takmörkuð þekking er á því hvernig mörg efni, sem við erum í daglegri snertingu við, hafi áhrif á heilsu okkar. Því er gott að reyna minnka snertingu okkar við möguleg varasöm efni eins og við getum með því að auka efnalæsi, velja umhverfismerktar vörur og nota minna.

Til þess að takmarka og/eða banna efni þarf fyrst að rannsaka þau og sanna orsök og afleiðingu þeirra. Efnin kunna líka að vera notuð til að ná fram eftirsóttum eiginleikum í vörum og það getur þurft að vega og meta hættuna sem fylgir tilteknu efni í samanburði við ávinninginn af notkun þess, til dæmis í rannsóknarskyni. Það getur því tekið þónokkurn tíma að koma takmörkunum varðandi efni inn í regluverk og einungis er búið að rannsaka brot af þeim efnum sem eru í umferð.

Fróðleiksmoli – Evrópusambandið áformar að gera breytingar á reglum um flokkun, merkingu og umbúðir hættulegra efna og efnablandna (CLP). Tilgangur breytinganna er að auðvelda neytendum val á efnavörum með skýrari upplýsingum um áhættu. Ráðgert er að fjölga hættuflokkum til að bæta við efnum sem eru talin hormónaraskandi eða þrávirk. ESB samráðsgátt um málið er hér.

Almennt um hormónaraskandi efni og umfjöllun með fókus á atvinnulífið á dönsku á heimasíðu Umhverfisstofnun Danmerkur (Miljøstyrelsen).

Almennt um hormónaraskandi efni á norsku á heimasíðu Miljøstatus sem er ritstýrt af Umhverfisstofnun Noregs (Miljødirektoratet).

Almennt um hormónaraskandi efni á sænsku á heimasíðu Karolinska Institutet.

Skýrsla um stöðu vísindaþekkingar á innkirtlatruflandi efnum 2012 á ensku birt á heimasíðu Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna (enska: UNEP).

Umfjöllun um innkirtlatruflandi efni á ensku á heimasíðu Efnastofnunar Evrópu (enska: ECHA).

Umfjöllun um innkirtlatruflandi efni á ensku á heimasíðu framkvæmdarstjórnar ESB.

Efni í vörum utan EES

Atriði sem gott er að hafa í huga þegar keyptar eru vörur utan EES, einkum í gegnum netverslanir sem ekki eru með lager eða verslun í Evrópu:

  • Hvaðan er varan að koma?

Niðurstöður evrópskra eftirlitsverkefna benda til að meiri líkur séu á óæskilegum efnum í vörum frá Kína, Indlandi, Tælandi og Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

  • Er selt innan EES/ESB sérstaklega?

Netverslanir sem selja sérstaklega innan svæðisins þurfa að vera með nafn, heimilisfang, símanúmer og tölvupóstfang á vefsíðunni. Meiri líkur eru á því að vörur frá slíkum verslunum standist kröfur Evrópusambandsins þar sem eftirlitmenn aðildarríkjanna eiga auðveldara með að hafa eftirlit með slíkum fyrirtækjum.

  • Er verðið of gott til að vera satt?

Hugsum okkur þá tvisvar um hvort þetta séu góð kaup – mjög lágt verð getur bent til að framleiðendur hafi stytt sér leið við framleiðslu vörunnar – oft á kostnað öryggis.

Hugsum okkur tvisvar um ef við viljum versla eftirfarandi:

  • Snyrti- og húðvörur
  • Leikföng fyrir börn undir 3 ára
  • Leikföng úr mjúku plasti
  • Aðrar vörur úr mjúku plasti

Almenn umfjöllun

Undanfarin ár hefur það færst í aukana að versla á netinu alls konar varning þar sem þægindi, framboð og verð spila stórt hlutverk. Ýmis öpp og vefsíður selja nú aðeins rafrænt og hafa ekki búðir þar sem kaupandi getur komið og skoðað. Þessu fylgir því miður aukin hætta á að vörur sem keyptar eru af netverslunum utan EES innihaldi varasöm efni.

Innan EES er að finna ströngustu efnalöggjöfina í heiminum. Ýmis varasöm efni hafa nú þegar verið bönnuð og/eða takmörkuð í alls kyns hlutum svo sem leikföngum, snyrtivörum, fatnaði og skóm, eldhúsvörum og öðrum hversdagshlutum. Þetta þýðir að þegar við verslum erlendis eða af netverslunum sem eru utan svæðisins þá getum við aukið líkur á snertingu við varasöm efni sem eru óæskileg fyrir heilsu okkar og umhverfið.

Þótt netverslanir utan EES sendi til Íslands er ekki hægt að taka því sem vísu að vörurnar standist löggjöf EES um efnainnihald. Þetta á við um alla þá sem búa innan svæðisins og eru að versla utan þess vegna þess að þegar netverslun tilheyrir ekki svæðinu eiga yfirvöld og eftirlitsstofnanir erfiðara með að láta þær fylgja reglum svæðisins. Því er meiri áhætta á að vörurnar innihaldi óæskileg efni eða jafnvel efni sem eru bönnuð hérlendis en ekki í upprunalandinu.

Mikilvægt er því fyrir neytendur að vera meðvitaðir um hvaðan varan sem þeir eru að panta er að koma og hugsa sig tvisvar um þegar verðið er of gott til að vera satt.

Eftirlit og athuganir á vörum utan svæðisins

Neytendasamtök Danmerkur athuga reglulega efnainnihald ýmissa vara og birta á heimasíðu sinni. Þau létu athuga nokkrar snyrtivörur og leikföng sem keyptar voru af netverslunum utan svæðisins og voru þó nokkrar með varasöm efni.

Efnastofnun Svíþjóðar fór í eftirlit með Tollgæslunni til að skoða innflutta skartgripi og hægt er að nálgast skýrsluna hér, en mikið var um of hátt magn blýs og kadmíums.

Skýrsla um aukna efnaáhættu vegna vara sem keyptar eru af netverslunum sem gefin er út af Efnastofnun Svíþjóðar má nálgast hér. Þar er bent á aukna áhættu þegar vörur eru keyptar frá löndum utan EES sem eru ekki með ábyrgan rekstraraðila innan svæðisins.

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800