Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Nýtt mælaborð Raforkueftirlitsins lítur dagsins ljós  

Raforkueftirlitið hefur tekið í notkun nýtt sjálfvirkt mælaborð Raforkuvísa sem markar tímamót í framsetningu upplýsinga. Með mælaborðinu birtast nýjar upplýsingar mun tíðar, yfirsýn yfir breytingar og þróun eykst til muna, og styður þessi breyting við raforkumarkaðinn, almenning og stjórnvöld með gagnsærri framsetningu. Kerfið byggir á umfangsmikilli sjálfvirkni sem eykur afköst starfsmanna og veitir svigrúm fyrir dýpri og tíðari greiningar. Þannig skapast ráðrúm til að miðla niðurstöðum oftar en áður. Markmiðið er að mælaborðið verði smám saman að fullu sjálfvirkt og að skýrslur byggi á nýjustu og sem áreiðanlegustu gögnum á hverjum tíma.  

Fjöldi nýjunga

Með innleiðingu nýja mælaborðsins breytist einnig birtingarhraði gagna. Skammtímamarkaðsverð verða nú uppfærð vikulega og önnur raforkuverð, ásamt upplýsingum um framleiðslu og notkun, birt mánaðarlega. Upplýsingar um truflanir verða svo teknar saman árlega og birtar af START hópnum á truflanir.is. Í stað þess að notendur þurfi að bíða eftir ársfjórðungslegum samantektum verður nú hægt að fylgjast með þróuninni talsvert nær rauntíma. 

Í fyrsta sinn eru markaðsverð raforku tekin saman og birt á einum stað hjá Raforkueftirlitinu. Á mælaborðinu má meðal annars sjá grunnorkuverð, stundarmánaðarverð, meðal jöfnunarorkuverð og fleira. Einnig eru birt dagleg meðaltöl fyrir skammtímaverð, þar á meðal fyrir Elmu, Vonarskarð og jöfnunarorkumarkað Landsnets. Þetta gerir samanburð einfaldari, styrkir upplýsingaflæði og stuðlar að gagnsærri umræðu um verðmyndun. 

Að auki er nýtt yfirlit yfir gjaldskrár sérleyfisfyrirtækja. Raforkueftirlitið birtir nú vegið meðalverð gjaldskráa dreifiveitna ásamt gjaldskrá flutningsfyrirtækisins. Hægt er að skoða gjöld bæði verðbætt með vísitölu og á verðlagi hvers árs. Með þessu verður mun auðveldara að fylgjast með þróun kostnaðar og meta breytingar yfir lengri tíma. 

Horft fram á veginn

Nýjustu Raforkuvísar sýna jafnframt að staða og horfur raforkuöryggis á fjórða ársfjórðungi 2025 og 2026 hafa áfram batnað. Mat á raforkuöryggi byggir á spám um framboð og eftirspurn. Núverandi stórnotkun hefur dregist saman tímabundið, allra helst vegna samdráttar á málmframleiðslu, og þar með er meira framboð til staðar en undir eðlilegum kringumstæðum. 

Nýja mælaborðið er aðeins fyrsta skrefið í lengra ferðalagi. Á næstu mánuðum verður áfram unnið að aukinni sjálfvirkni, skýrari framsetningu gagna og öðrum greiningum Raforkueftirlitsins. Með þessu styrkir Raforkueftirlitið hlutverk sitt sem miðlari áreiðanlegra upplýsinga og leggur grunn að betri, gagnsærri og upplýstri ákvarðanatöku í orkumálum landsins. 

Fleiri fréttir

Skoða
17. febrúar 2026
Slitið malbik veldur mikilli svifryksmengun
Mikil svifryksmengun mældist á höfuðborgarsvæðinu þann 16. febrúar 2026. Styrkur grófs svifryks fór víða yfir heilsuverndarmörk. Mestur styrkur mældist við Grensásveg. Hæsta klukkustundarmeðaltal á grófu svifryki (PM10) var 475 µg/m³ og sólarhringsmeðaltalið var 153 µg/m³. Við Dalsmára í Kópavogi mældist sólarhringsmeðaltalið 99 µg/m³. 11 sinnum yfir heilsuverndarmörk á Grensásvegi Heilsuverndarmörk fyrir gróft svifryk eru 50 µg/m³ að meðaltal fyrir heilan sólarhring. Ekki má fara oftar en 35 sinnum á ári yfir þau mörk. Það sem af er ári hefur svifryksmengun farið 11 sinnum yfir mörkin á Grensásvegi. Algengt á þessum árstíma Í meðalári mælast hæstu svifryksgildi oftast í febrúar og mars. Á þessum árstíma er stærstur hluti svifryksins malbiksryk sem verður til við slit á vegyfirborði. Það er að stærstum hluta af völdum nagladekkja. Þurrt veður og úrkomuleysi auka líkur á háum styrk. Rykbinding og götusópun Síðustu vikur hafa verið óvenju snjóléttar og götur hafa verið rykbundnar talsvert oftar en venjulega. Birgðir af rykbindiefni kláruðust því fyrr en áætlað var. Von er á nýrri sendingu til landsins í lok vikunnar. Það er erfitt að sópa götur í frosti. Um mánaðarmótin janúar-febrúar kom veðurgluggi með hlýindum sem var nýttur til að sópa götur. Vegagerðin sópaði þá helstu þjóðvegi í þéttbýli á höfuðborgarsvæðinu. Reykjavíkurborg sópaði á sama tíma allar þær götur sem má sjá á meðfylgjandi korti. Í mikill umferð þegar um 40% bíla eru á nagladekkjum er slitið malbik hins vegar fljótt að safnast upp aftur í vegköntum. Mynd: Götur sem eru rauðmerkar lét Reykjavíkurborg sópa um mánaðarmótin janúar-febrúar. Götur sem Vegagerðin sópaði eru ekki merktar inn. Það eru: Miklabraut/Hringbraut, Kringlumýrarbraut, Hafnarfjarðarvegur, Sæbraut og Reykjanesbraut að Hvaleyrarholti. Ráðleggingar til almennings Mengun er mest við stórar umferðaræðar en lækkar hratt með fjarlægð frá götu. Þar munar um hverja tíu metra sem farið er frá götu og í um 200 metra fjarlægð er mengun talsvert mikið minni en við götubrún. Fólki sem er viðkvæmt fyrir loftmengun er bent á að: Fylgjast með loftgæðaupplýsingum á loftgaedi.is. Takmarka útiveru nálægt umferðarþungum götum þegar mengun er mikil. Velja frekar gönguleiðir og útivistarsvæði fjarri helstu umferðaræðum.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800