Þróun raforkumarkaða 2025: Heildsöluverð lækkaði þegar leið á árið

Töluverðar breytingar áttu sér stað í raforkuvinnslu og stórnotkun árið 2025. Samhliða samdrætti í stórnotkun var staða miðlunarlóna ein sú besta á undanförnum fimm árum. Það hafði áhrif á stöðu heildsöluorkumarkaðarins og verðþróun. Þetta kemur fram í lokaútgáfu raforkuvísa fyrir árið 2025.
Minni raforkuvinnsla
Þrátt fyrir góða stöðu miðlunarlóna lækkaði vinnsla á milli ára. Það skýrist með breytingum í eftirspurn.
Raforkuvinnsla í desember 2025 mældist 17% lægri en árið 2024. Nýting vatnsafls var um 65% af uppsettu afli og framleiðsla smávirkjana um 28 GWh.
Stórnotkun dróst saman – almenn notkun stöðug
Breytingarnar á eftirspurnarhliðinni voru mestar hjá stórnotendum. Stórnotkun var 993 GWh í desember 2025. Samdrátturinn tengdist fyrst og fremst tímabundnum rekstrarstöðvunum hjá hluta Norðuráls og hjá PCC BakkiSilicon.
Notkun gagnavera fór vaxandi stöðugt yfir árið 2025 en var notkun samt sem áður lægri en á fyrra ári.
Almenn notkun var stöðug og fylgdi svipuðu mynstri og undanfarin ár. Einnig má sjá að hluti notkunar hefur færst frá skerðanlegri orku yfir í forgangsorku. Það endurspeglar aukna áherslu á tryggt framboð raforku.
Dreifi- og flutningskostnaður hækkaði
Í gjaldskrárhluta Raforkuvísa sést að umreiknaður dreifikostnaður á mánuði fyrir dæmigert heimili í desember var um:
- 6,3 þús. kr. í þéttbýli
- 10,5 þús. kr. í dreifbýli
Kostnaðurinn hefur hækkað frá fyrra ári, bæði vegna almennrar þróunar í gjaldskrám og vegna hærri flutningskostnaðar sem endurspeglast í dreifikerfinu.
Flutningsgjöld hækkuðu skarpt í upphafi árs 2025 fyrir bæði almenna notendur og stórnotendur. Helsta skýringin var endurgreiðsluþörf vegna innheimtu ólögmæts innmötunargjalds. Þá vógu einnig þungt fjárfestingaþarfir vegna nýrra og umfangsmikilla framkvæmda hjá sérleyfisfyrirtækjum. Gjaldskrá flutningsfyrirtækisins lækkaði þó aftur í upphafi árs 2026.
Heildsala lækkaði - smásala fylgdi ekki
Heildsöluverð raforku lækkaði þegar leið á árið. Stundarmánaðarverð lækkaði umtalsvert milli ára. Helstu ástæður voru góð staða miðlunarlóna og minni stórnotkun.
Þrátt fyrir lækkun á heildsölumarkaði hækkaði lægsta smásöluverð milli ára. Skýringarnar liggja meðal annars í því að:
- Virk samkeppni á smásölumarkaði er takmörkuð. Jafnframt hafa smásalar í auknum mæli tryggt stóran hluta af væntri orkuþörf lengra fram í tímann, á tímabili sem einkenndist af óvissu um framboð og raforkuöryggi.
- Eldri og ódýrari samningar í gegnum aflþjónustu Landsvirkjunar, sem höfðu haldið niðri heildarkostnaði smásölufyrirtækja, runnu út.
Niðurstaðan er sú að smásöluverð hefur ekki lækkað í sama mæli og heildsöluverð, þrátt fyrir betri stöðu á heildsölumarkaði þegar líður á árið.









