Græn skref
Um verkefnið
Græn skref er verkefni sem styður stofnanir og fyrirtæki í meirihlutaeigu ríkisins við að vinna markvisst að umhverfismálum, orkunýtni og hagræðingu í rekstri. Verkefnið byggir á fimm skrefum með skýrum gátlistum sem auðvelda þátttakendum að innleiða markvissar og mælanlegar aðgerðir í starfsemi sinni.
Í Grænum skrefum er jafnframt lögð áhersla á ábyrga nýtingu fjármuna og að innkaup séu í samræmi við rammasamninga ríkisins þar sem við á. Þannig stuðlar verkefnið að auknu aðhaldi í rekstri samhliða því að draga úr umhverfisáhrifum.
Umhverfis- og orkustofnun hefur umsjón með verkefninu, heldur utan um þátttöku og framkvæmir úttektir. Verkefnið stuðlar jafnframt að virkri þátttöku starfsfólks og aukinni þekkingu og umhverfisvitund í daglegri starfsemi.
Þátttakendur í verkefninu
Hvert er ferlið?
- Stofnun skráir sig til leiks
- Þriggja til fimm manna teymi skipað sem fer fyrir innleiðingu verkefnisins á vinnustaðnum
- Gátlista hlaðið niður hér
- Aðgerðir fyrsta skrefs (eða fleiri skrefa) uppfylltar – skoðið dæmi um vel útfylltan gátlista hér
- Útfylltur gátlisti sendur á umsjónarmenn Grænna skrefa
- Þegar umsjónarmenn telja að minnsta kosti 90% aðgerða uppfylltar er bókaður tími í úttekt
- Umsjónarmaður Grænna skrefa kemur í úttekt á vinnustað eða í gegnum Teams
- Skrefið er í höfn og stofnun fær sent viðurkenningarskjal. Við hvetjum ykkur til þess að fagna áfanganum!

Hér er hægt að hlaða niður plakati með hverju skrefi (PDF), en það er tilvalið efni sem leiðbeiningar til starfsmanna. Við mælum með því að hengja skrefin upp á vinnustaðnum á sýnilegum stað, til dæmis inni á kaffistofu eða birta þau á innri vef. Það getur reynst hvetjandi að leyfa starfsmönnum að fylgjast með verkefninu með því að merkja við þær aðgerðir sem búið er að framkvæma.
Var efnið hjálplegt?
Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins










