Til baka
28. maí 2025
Flest loftmengunarefni undir heilsuverndarmörkum árið 2023

Styrkur svifryks (PM₁₀ og PM₂,₅), köfnunarefnisdíoxíðs (NO₂), brennisteinsdíoxíðs (SO₂) og brennisteinsvetnis (H₂S) í andrúmslofti var undir heilsuverndarmörkum í langflestum tilvikum árið 2023.
Þetta kemur fram í nýrri ársskýrslu um loftgæði árið 2023. Einnig er hægt að skoða samantekt úr ársskýrslunni.
Í heildina hafa loftgæði á Íslandi batnað með árunum, eða í það minnsta haldist tiltölulega óbreytt á langflestum stöðum.
Eini staðurinn þar sem styrkur loftmengunarefnis fór yfir heilsuverndarmörk var Reykjahlíð á Mývatni en þar fór ársmeðaltalsstyrkur H₂S lítillega yfir mörk, annað árið í röð. Uppruna H₂S á Mývatni má rekja til jarðvarmavirkjana í nágrenninu. H₂S mengun hefur tærandi áhrif á rafbúnað en langvarandi áhrif hennar á heilsufar fólks hafa lítið verið rannsökuð.
Utan þess voru loftgæði á Íslandi mjög góð árið 2023 og almennt séð eru loftgæði á Íslandi meðal þeirra bestu í Evrópu.
Í ársskýrslunni er hægt að skoða allar mælingar loftmengunarefna frá upphafi á Íslandi. Þar eru loftgæðamælingar settar í samhengi við gildandi reglugerðir og gögn sett fram í formi mynda og taflna.
Ársskýrslan 2023 er sjöunda samantekt sinnar tegundar á Íslandi. Henni fylgir einnig fylgiritið: Loftgæði á Íslandi – Umhverfisvísar, vöktun og uppsprettur.
Tengt efni: