Vegna starfsdags verður móttaka á Suðurlandsbraut lokuð á fimmtudag. Hægt verður að hafa samband símleiðis. Móttakan verður svo opin samkvæmt venju á föstudag.

Merki Umhverfis- og orkustofnunar

Haf og vatn

Stjórn vatnamála, fráveitumál, hreinsun stranda og varnir gegn mengun hafs og vatns.

Athugið að hluti af efninu er hýstur á ust.is, vefsíðu forvera Umhverfis- og orkustofnunar.

Umhverfis- og orkustofnun vinnur að vernd hafs og vatns á Íslandi. Stofnunin fer með stjórn vatnamála og vinnur vatnaáætlun fyrir Ísland í samstarfi við Veðurstofu Íslands og fleiri stofnanir. Hún vaktar jafnframt ástand vatns og sjávar við landið.

Stofnunin sinnir fráveitumálum og ber ábyrgð á viðbrögðum við bráðamengun hafs og stranda utan hafnarsvæða. Hún hefur eftirlit með mengun frá skipum og með aðstöðu í höfnum til að taka á móti úrgangi frá skipum, og veitir leyfi til að varpa efnum í hafið og leggja lagnir í sjó.

Umhverfis- og orkustofnun veitir einnig styrki úr Strandhreinsun Íslands til að hreinsa plast og annan úrgang af ströndum landsins.

Málaflokkar

Stjórn vatnamála

Markmiðið er að viðhalda líffræðilegri fjölbreytni og náttúrulegu ástandi vistkerfa ferskvatns og strandsjávar.

Vatnavefsjá

Upplýsingar um ástand vatns og strandsjávar um allt land. Rekin í samstarfi við Veðurstofu Íslands.

Strandhreinsun Íslands

Taktu þátt í að hreinsa strandlengjuna af plasti og öðrum úrgangi.

Bráðamengun

Viðbrögð við bráðamengun, eftirlit og samantektir.

Fráveitumál

Fráveituvatn getur verið mengunarvaldur en góð hreinsun getur dregið verulega úr neikvæðum áhrifum þess.

Vöktun og ástand

Vegna athafna manna á landi og á sjó lenda ýmis efni í hafinu og geta sum þessara efna verið hættuleg umhverfi sjávar.

Alþjóðlegt samstarf

Ísland leggur í alþjóðlegu samstarfi áherslu á verndun hafsins gegn mengun, sjálfbæra nýtingu auðlinda hafsins og endurnýjanlega orkugjafa.

Plastmengun

Árlega enda milljónir tonna af plasti í hafinu, með alvarlegum afleiðingum fyrir náttúruna, dýralífið og heilsu mannfólks.

Mengun frá skipum

Almennt gildir að losun mengandi efna og úrgangs frá skipum er óheimil. Á þessu eru þó undantekningar.

Varp í hafið og lagnir í sjó

Almennt er óheimilt að varpa efni eða hlutum í hafið. Á þessu eru þó undantekningar.

Móttaka úrgangs frá skipum

Umhverfis- og orkustofnun hefur eftirlit með aðstöðu í höfnum og staðfestir áætlanir um móttöku og meðhöndlun úrgangs og farmleifa.

Almennt um vatn

Vatn er forsenda alls lífs á jörðinni. Álag á vatn, hringrás vatns og gott vatn fyrir alla.

Hleður gögnum...

Var efnið hjálplegt?

Hjálpaðu okkur að bæta gæði efnisins

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800