Merki Umhverfis- og orkustofnunar
Fréttir og viðburðir
Fleiri fréttir
13. maí 2026
Samstarf um framkvæmd umhverfislöggjafar – Stjórn IMPEL í heimsókn
Stjórn IMPEL (European Union Network for the Implementation and Enforcement of Environmental Law) heimsótti Ísland dagana 5. og 6. maí 2026 og átti fundi með stjórnvöldum og stofnunum sem annast stjórnsýslu og framkvæmd umhverfismála á Íslandi. Umhverfis- og orkustofnun fer með hlutverk landsfulltrúa Íslands innan IMPEL og skipulagði heimsóknina í samstarfi við þátttakendur innan netsins. IMPEL er rótgróið samstarfsnet umhverfisyfirvalda í Evrópu og hefur starfað frá árinu 1992. Markmið IMPEL er að efla framkvæmd og eftirfylgni umhverfislöggjafar með því að miðla reynslu, þróa verkfæri og auka samstarf milli eftirlits- og leyfisveitandi stjórnvalda í Evrópu. Á fundunum var farið yfir skipulag og framkvæmd umhverfiseftirlits á Íslandi, áskoranir tengdar innleiðingu EES-regluverks og kynningar á verkefnum og sérfræðihópum IMPEL. Einnig var rætt um möguleika á aukinni þátttöku íslenskra aðila í verkefnum IMPEL og hvernig starfið getur stutt við þróun framkvæmdar og eftirlits á Íslandi. Sérstök áhersla var lögð á umræður um: Úrgangsmál Mengunarvarnir og iðnaðareftirlit Haf- og vatnamál Náttúrvernd Umhverfisglæpi Áhættumiðað eftirlit Nýjar stafrænar lausnir Á fundunum var góð þátttaka lykilstofnana í framkvæmd umhverfislöggjafar, sem skapaði lifandi umræður og skýran vilja til að efla samstarf og auka skilvirkni í stjórnsýslunni. Ísland hefur verið virkur þátttakandi í IMPEL frá 2010, þar sem að Umhverfisstofnun var upphaflega meðlimur og svo Umhverfis- og orkustofnun.  IMPEL er mikilvægt samstarfsnet sem hefur styrkt íslensk stjórnvöld með því að efla samræmda, skilvirka og faglega framkvæmd umhverfislöggjafar í gegnum þekkingarmiðlun og samstarf á evrópskum vettvangi.
Viðburðir framundan
Sjá fleiri
6. maí 2026
Lyfjaleifar greinast í vatni sem tengist fráveitu
Lyfjaleifar greinast aðallega í yfirborðsvatni sem tengist fráveitukerfum sveitarfélaga. Þar sem losun fráveitu er mikil mælast fleiri lyf og í hærri styrk. Þetta sýna niðurstöður vöktunar Umhverfis- og orkustofnun á skaðlegum efnum í vatni árið 2025. Á stöðum án beinnar tengingar við fráveitu greindust hins vegar fá eða engin lyf yfir greiningarmörkum, jafnvel í þéttbýli. Sýnatökur á fjórum stöðum Skimað var fyrir um 160 mismunandi hormónum og lyfjaleifum á fjórum stöðum: Kópavogslæk Reykjavíkurtjörn Varmá í Hveragerði (við Öxnalæk) Ölfusá við Selfossi (við Geitanes) Lyfjaleifar greindust í Varmá og Ölfusá, þar sem bein tenging er við fráveitu. Í Kópavogslæk og Reykjavíkurtjörn greindust hins vegar fá eða engin efni. Niðurstöðurnar sýna að samsetning lyfjaleifa í yfirborðsvatni endurspeglar íbúafjölda, umfang fráveitukerfa og almenna lyfjanotkun í samfélaginu. Mikilvægt er að taka fram að um er að ræða eina skimun á tilteknum tíma. Niðurstöðurnar sýna því stöðuna á þeim tímapunkti en ekki langtímaþróun. Ekki er hægt að staðfesta að lyfjaleifar séu alltaf til staðar eða aldrei. Sýnatökurnar fóru fram í nóvember 2025. Hvaða efni eru mæld? Frá árinu 2018 hefur stofnunin skimað fyrir efnum á vaktlista Evrópusambandsins. Þar eru efni sem geta haft áhrif á vatnalíf, til dæmis: Verkjalyf, geðlyf og hjarta- og æðalyf Sýklalyf Kynhormón Plöntuvarnarefni Efni úr sólarvörnum Hvernig berast lyfjaleifar í vatn? Lyf berast í umhverfið þegar þau skiljast út úr líkamanum með þvagi og hægðum. Einnig geta lyf farið í fráveitu ef þeim er sturtað í salerni. Skólphreinsistöðvar á Íslandi eru almennt ekki hannaðar til að fjarlægja lyfjaleifar. Hormónar og sýklalyf sérstakt áhyggjuefni Lyfjaleifar sem innihalda hormóna valda sérstökum áhyggjum vegna þess að þau geta haft skaðleg áhrif á lífríki, jafnvel í mjög litlum styrk. Sama á við um sýklalyf. Sýklalyfjaónæmi er í hraðri þróun á heimsvísu. Sjá nánar í aðgerðaáætlun heilbrigðisráðuneytisins gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis Skynsamleg lyfjanotkun og rétt förgun Skynsamleg lyfjanotkun skiptir máli fyrir heilsu, samfélag og umhverfi. Mikilvægt er að: Heilbrigðisstarfsfólk sé meðvitað um áhrif lyfja á umhverfi Einstaklingar noti lyf samkvæmt leiðbeiningum Ónotuðum lyfjum sé skilað til förgunar í apótek Lyfjum sé aldrei fargað í niðurföll eða salerni Starfsmenn í teymi hafs og vatns við sýnatökur. Skimunin hluti af vatnaáætlun Íslands Vöktun á skaðlegum efnum í vatni er hluti af verkefnum undir vatnaáætlun Íslands og LIFE Icewater verkefninu. Vatnaáætlun Íslands er ætlað að vernda vistfræðilegt og efnafræðilegt ástand vatns. Í framkvæmd nær hún fyrst og fremst til hefðbundinna mengunarefna. Í dag eru engin lyf með lögbundin viðmiðunargildi í vatni, en búast má við að slík viðmið verði sett fyrir ákveðin efni á næstu árum.
5. maí 2026
Sendinefnd frá Taívan kynnti sér íslenska reynslu af jarðhita
Fimmtán manna sendinefnd frá National Science and Technology Council (NSTC) í Taívan heimsótti Umhverfis- og orkustofnun í apríl 2026. Markmið var að kynna sér íslenska reynslu af nýtingu jarðhita, stjórnsýslu, rannsóknum og tæknilegri þróun. Íslensk reynsla í brennidepli Á fundinum var fjallað um íslenska reynslu af jarðhitanýtingu, hlutverk stjórnvalda og stofnana, rannsóknir, gagnasöfnun, leyfisveitingar, eftirlit og auðlindastýringu. Sérstök áhersla var lögð á að árangur Íslands byggist á góðu samspili stefnumótunar, rannsókna og samstarfs opinberra aðila, fyrirtækja og vísindasamfélagsins. Rætt var um hvernig leyfisveitingar og umhverfisvernd spila saman. Einnig var fjallað um reynsla Umhverfis- og orkustofnunar af alþjóðlegu jarðhitasamstarfi innan Uppbyggingarsjóðs EES, meðal annars í Póllandi, Rúmeníu og Búlgaríu. Eftirspurn eftir slíkri þekkingarmiðlun hefur aukist, ekki síst eftir orkukreppuna í Evrópu, þar sem jarðhiti er talinn mikilvægur valkostur til að styrkja orkuöryggi og styðja við loftslagsmarkmið. Fram kom að samstarfið hefur þegar skilað góðum árangri, meðal annars í Póllandi. Aukinn áhugi á jarðhita Fulltrúar NSTC kynntu stöðu jarðhitaverkefna í Taívan, rannsóknaráherslur og framtíðaráform. Fram kom að verkefnin í Taívan beinast meðal annars að jarðeðlisfræðilegum rannsóknum, þrívíddarlíkönum, bor- og vöktunartækni og mati á möguleikum djúpra og háhitakerfa. Til lengri tíma er stefnt að þróun djúpra jarðhitaborhola og útbreiðslu Enhanced Geothermal Systems og Advanced Geothermal Systems Taívan vinnur að uppbyggingu jarðhitanýtingar sem hluta af orkuskiptum landsins og markmiðum um kolefnishlutleysi árið 2050. NSTC er ríkisstofnun sem ber ábyrgð á að móta og samræma tækni- og vísindastefnu Taívans. Hún fjármagnar meðal annars rannsóknir og styður nýsköpun. Stofnunin leggur áherslu á lausnir á borð við jarðhita, vetni og kolefnisföngun. Hún stuðlar einnig að samstarfi milli háskóla, atvinnulífs og alþjóðlegra samstarfsaðila til að efla tæknilega þróun Taívans. Áframhaldandi samstarf Fundurinn skapaði góðan grundvöll fyrir áframhaldandi samtal um jarðhita, nýsköpun, orkuskipti og alþjóðlegt rannsóknasamstarf. Lilja Ólafsdóttir, sviðsstjóri umhverfisgæða, tók á móti sendinefndinni fyrir hönd Gests Péturssonar forstjóra. Auk Lilju voru Baldur Pétursson, verkefnisstjóri í teymi alþjóðamála, og Hörn Halldóru- og  Heiðarsdóttir, sérfræðingur teymi orkuskipta og orkunýtni, einnig þátttakendur í fundinum. Baldur Pétursson fjallaði um reynslu Umhverfis- og orkustofnunar af alþjóðlegu jarðhitasamstarfi.
30. apríl 2026
Sérfræðingar í losunarbókhaldi á Norðurlöndunum hittust í Reykjavík
Umhverfis- og orkustofnun og Land og skógur héldu saman norræna ráðstefnu sérfræðinga í losunarbókhaldi (e. Nordic Inventory Experts Meeting) í Reykjavík 16.–17. apríl 2026. Ráðstefnan er árlegur viðburður og vettvangur þar sem Norðurlöndin bera saman bækur sínar, ræða það sem virkar, það sem er flókið og það sem þarf að leysa. Í almennri umræðu var meðal annars farið yfir hvernig ákvarðanir eru teknar þegar breytingar á aðferðafræði hafa áhrif á alþjóðlegar skuldbindingar. Einnig var fjallað um nýtt norrænt verkefni um útgáfu losunarstuðla sem miðar að því að einfalda fyrirtækjum, stofnunum, sveitarfélögum og einstaklingum að reikna losun gróðurhúsalofttegunda frá sinni starfsemi. Orka Í orkugeiranum beindist umræðan meðal annars að því hvernig eigi að meðhöndla losun frá æfingaflugi, heræfingum ríkja og nýrri starfsemi á borð við kolefnisföngun þar sem CO₂ er flutt milli landa. Einnig voru tekin dæmi um að nýjar mælingar gefi til kynna meiri metanleka frá efnaiðnaði og olíuhreinsunarstöðvum erlendis en áður var talið. Landbúnaður Í landbúnaðargeiranum var fjallað um nýjustu rannsóknir og gögn. Þar á meðal um metan frá nautgripum og N₂O losun frá jarðvegi, auk þess hvernig taka skuli tillit til nýrra loftslagsaðgerða eins og notkunar fóðuraukefna. Þá var einnig rætt hvernig bæta megi útreikninga þegar gögn eru takmörkuð, til dæmis varðandi áburðarnotkun og meðhöndlun plöntuleifa. Landnotkun Í landnotkunargeiranum (LULUCF) snerist umræðan um þróun aðferða til að meta losun og bindingu kolefnis og hvenær flóknari líkanagerð á við. Mörg málefni voru rædd, þar á meðal upptaka nýrra losunarstuðla, jarðvegslíkön og ólíkar skilgreiningar landanna á lífrænum jarðvegi. Úrgangur Í úrgangsgeiranum var fjallað um losun frá brennslu úrgangs, hvernig reikna eigi losun frá stöðvum sem sameina lífgassöfnun og jarðgerð og hvaða farvegir eru til staðar fyrir seyru. Einnig var rætt hvort hægt sé að meta losun vegna fráveitu frá fiskeldi, þar sem gögn eru breytileg milli landa og það skortir aðferðafræði í leiðbeiningar IPCC. Um 100 manns tóku þátt í dagskránni. Þar af um 40 á staðnum í húsakynnum Umhverfis- og orkustofnunar á Suðurlandsbraut og um 60 í fjarfundi. Norðurlöndin skiptast á að halda fundinn og næst verður hann haldinn í Finnlandi.
Loftgæði
Umhverfis- og orkustofnun heldur utan um mælingar á gæðum þess lofts sem við öndum að okkur og miðlar þeim í gegnum til þess gert vefsvæði. Á vefnum er einnig að finna mæla frá öðrum aðilum. Þeir eru í flestum tilvikum ekki nákvæmnismælar, heldur grófir skynjarar, en geta þó veitt vísbendingar um loftmengun.
Opna loftgæðavef
Orkubúskapur
Raforkuvinnsla
Vatnsafl
13.604 GWst
Jarðvarmi
5.986 GWst
Vindorka
12,7 GWst
Rafvæðing
Fólksbílar
29.764
Hópferðabílar
35
Sendibílar
1.213
Vörubilar
26
Eldsneytisnotkun
Vegasamgöngur
289 ktoí
Skip
269 ktoí
Flug
267 ktoí

Gagnasöfn

Aðrir vefir tengdir stofnuninni
Upplýsingar um efnamál, eftirlit, haf- og vatnsmál, hringrásarhagkerfi, leyfi, loftgæði og loftslagsmál.
Orkustofnun - lógó
Upplýsingar tengdar náttúruauðlindum og orkuskiptum, auk upplýsinga um Raforkueftirlitið og Orkusjóð.
Loftgæði - lógó
Rauntímamælingar og spá um loftgæði á landinu.
Orkusetur - lógó
Hlutverk Orkuseturs er að stuðla að aukinni vitund almennings og fyrirtækja um skilvirka orkunotkun og möguleika til orkusparnaðar.
Svanurinn - lógó
Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna og ætlað að draga úr umhverfisáhrifum af vörum eða þjónustu og auðvelda neytendum að velja umhverfisvænni kosti.
Úrgangur - lógó
Upplýsingar um úrgangsmál fyrir heimili og rekstraraðila.
Græn skref - lógó
Verkefnið Græn skref er fyrir ríkisstofnanir sem vilja draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum af starfsemi sinni og efla umhverfisvitund starfsmanna.
Saman gegn sóun - lógó
Saman gegn sóun er almenn stefna umhverfis, orku- og loftslagsráðherra um úrgangsforvarnir sem gildir til ársins 2027.
Starfsemi - lógó
Yfirlit um þá starfsemi sem heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga hefur samþykkt skráningu fyrir. Sótt er um skráningu á Island.is.
Vettvangur opinberra aðila til að sameina aðgerðir tengdar jarðvarmaorku og auka þátt hennar í orkuskiptum á heimsvísu.
Með setningu laga um stjórn vatnamála var sett á fót nýtt stjórnkerfi sem miðar að verndun íslenskrar vatnsauðlindar til framtíðar.
Icewater lógó
Verkefninu LIFE Icewater er ætlað að vinna að verkefnum til að flýta fyrir og bæta innleiðingu vatnaáætlunar á Íslandi.
Orkuspá Íslands er samstarfsverkefni Landsnets, Raforkueftirlitsins og Umhverfis- og orkustofnunar.

Kennitala: 700924-1650

Akureyri

Rangárvellir 2, hús 8, IS-603

Egilsstaðir

Tjarnarbraut 39B, IS-700

Reykjavík

Suðurlandsbraut 24, IS-108

Selfoss

Austurvegur 20, IS-800